24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Fyrirtækið Tengi er vel þekkt
innan byggingariðnaðarins, enda
hefur það boðið efni fyrir pípu-
lagnir til margra ára. Á sýningunni
Verk og vit ætlar Tengi að kynna
umhverfisvænar skolphreinsi-
stöðvar en mengunarmál hafa auð-
vitað verið mikið í umræðunni.
Þessar stöðvar eru hugsaðar fyrir
sumarhús og geta þær þjónað allt
að 50 íbúum. Fyrirtæki hafa t.d.
keypt þessar nýju skolphreinsi-
stöðvar fyrir starfsmannabústaði
sína. Skolphreinsistöðin vinnur
þannig að hún skilar úrganginum
út sem ómenguðu vatni. Komin er
árs reynsla á þessar stöðvar hér á
landi og hafa þær gefist mjög vel,
að sögn Árna Birgissonar hjá Tengi.
„Þetta er ánægjuleg þróun sem
orðið hefur undanfarin ár í líf-
rænni hreinsun skolps í fráveitum
og minni rotþróm. Það er þýska
fyrirtækið Kessel sem hefur stigið
stórt framfaraskref með hönnun
þessarar umhverfisvænu skolp-
hreinsistöðvar þar sem súrefni
gegnir stóru hlutverki við niður-
brot seyrunnar,“ segir Árni enn-
fremur.
„Í venjulegri rotþró er einfaldur
búnaður til að grófhreinsa skolpið
áður en það fer í siturlögn en hún
er nauðsynleg til að ljúka hreins-
unarferlinu en í skolpvatni úr
rotþró eru milljónir örvera sem
geta verið skaðlegar heilsu manna
og dýra. Uppbygging skolphreinsi-
stöðvarinnar frá Kessel er frá-
brugðin venjulegum rotþróm um
margt. Hólfin eru tvö í þrónni, í
það fremra bunar skolpið og botn-
fellur, gruggugt vatnið fer yfir í aft-
ara hólfið og þar fer fram súrefn-
isvirkt hreinsunarferli. Þegar
hreinsunarferlinu lýkur botnfellur
seyran sem er flutt yfir í fremra
hólfið og botnfellur en nokkuð
hreint vatn skilar sér í púkkbrunn
sem hvílir á malarpúða aftan við
þróna og þaðan rennur vatnið út í
jarðveginn. Í þetta kerfi þarf ekki
siturlögn. Stýribúnaður er hafður
innanhúss og ekki þörf fyrir situr-
lagnir, skolphreinsistöðin hentar
vel alls staðar þar sem ekki er að-
gengi að fráveitu, einnig þar sem
þörf er talin á hreinsun fráveitu-
vatns sem næst ekki með hefð-
bundnum aðferðum, t.d. á við-
kvæmum vatnasvæðum eða þar
sem talin er þörf á meiri umhverf-
isvernd.
Á sýningunni verða einnig kynnt
nýjustu gólfhitakerfin en þau nýt-
ast t.d. vel fyrir eldri hús en í þeim
er hljóðeinangrun.
„Þá verða sýndar tengigrindur
sem kæla niður heitt vatn og upp-
hitun á köldu vatni,“ segir Árni.
„Það verður fullt af nýjungum í
básnum okkar á sýningunni.“
Tengi kynnir nýjungar fyrir sumarhúsaeigendur
Umhverfisvænar skolphreinsistöðvar
Umhverfisvænt Ný
þróun í hreinsun skolps.
Iðnskólinn og Fjöltækniskóli Íslands sameinast
Nýtt nafn afhjúpað
Hinn nýi sameinaði skóli
Iðnskólans í Reykjavík
og Fjöltækniskóla Ís-
lands tekur til starfa 1.
júlí næstkomandi og
verður með sameining-
unni stærsti framhalds-
skóli landsins.
Standa saman
Nemendur og kenn-
arar velta vöngum.
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@gmail.com
Á sýningunni Verk og vit í ár verð-
ur stefna og markmið sameinaðs
skóla kynnt auk þess sem nýtt nafn
skólans verður afhjúpað.
Baldur Gíslason, annar tveggja
skólameistara sameinaða skólans,
segir skólann vera framfaraskref í
þágu iðn- og starfsmenntunar í
landinu. „Með sameiningunni
kemur skólinn til með að tengjast
atvinnulífi landsins og samtökum
á vinnumarkaði enn betur,“ út-
skýrir Baldur. Þá munu samskipti
við háskólasamfélagið klárlega
aukast með nýja skólanum. „Við
leggjum áherslu á að skapa nem-
endum okkar þá tegund fram-
haldsnáms sem hefur að litlu leyti
verið í boði fram að þessu.“ Nýja
skólanum verður skipt upp í ellefu
sjálfstæða undirskóla sem koma til
með að vera sjálfstæðir, hver með
sinn skólastjóra.
Á fjórða hundrað tillögur
Iðnskólinn hefur tekið þátt í
sýningunni Verk og vit áður og
segir Baldur þátttökuna vera
ákveðið nemendaverkefni. „Nem-
endur á listnámsbraut hanna sýn-
ingarbásinn, trésmíðanemar sjá
um að vinna hluti í básinn og nem-
endur á upplýsinga- og margmiðl-
unarsviði útbúa kynningarefni,“
lýsir Baldur.
Líkt og áður segir verður nafn
hins nýja skóla afhjúpað á sýning-
unni en samkeppni um nafn var
haldin á meðal starfsfólks og nem-
enda beggja skólanna þar sem á
fjórða hundrað tilnefningar bárust.
„Okkur bárust svona 120-150
nöfn, en margir lögðu til sömu
nöfnin,“ segir Baldur. „Það var úr
vöndu að ráða en nú er búið að
ákveða nafnið og ég tel að það verði
sátt um það.“ Sigurvegari sam-
keppninnar hlýtur að launum sér-
merkt bílastæði við skólann auk
ókeypis hádegismatar í mötuneyti
skólans í heilt ár.
Hársnyrtingarnám vinsælt
Rúmlega 200 starfsmenn og
3000 nemendur koma til með að
tilheyra nýju samfélagi hins sam-
einaða skóla. Baldur segir hug-
myndir um ný húsakynni vera í
umræðunni og að engin launung
sé á því að skólinn vilji komast í
sérhannað húsnæði sem geti hýst
allar deildir skólans undir sama
þaki.
Að sögn Baldurs er misjafnt á
milli ára hvaða námsgreinar eru
vinsælastar, hins vegar séu náms-
brautir byggingarsviðs, listnáms-
brautin, hársnyrting og margmiðl-
un alltaf vinsælar. „Þá er vaxandi
ásókn í fataiðn, ljósmyndun og
gull- og silfursmíði en í síðast-
nefndu greinina sækja yfirleitt
mjög margir um en aðeins er hægt
að taka á móti fáum.“
Baldur Gíslason Mis-
jafnt hvaða námsgreinar
eru vinsælastar.
Sýningin Verk og vit 2008 er nú
sett upp í annað sinn í Laug-
ardalshöllinni en að þessu sinni
koma að henni 100 sýnendur úr
byggingariðnaði, skipulags-
málum og mannvirkjagerð. Er
stefnt að því að þetta verði veg-
legasta sýning sinnar tegundar
sem sett hefur verið upp hér á
landi.
Sýningin hefst á fimmtudag fyrir
fagaðila en um helgina, 19.-20.
apríl, er hún opin almenningi frá
klukkan 12 til 18 á laugardeg-
inum og 12-17 á sunndeginum.
Samhliða sýningunni Verk og vit
verða hinir ýmsu viðburðir í
gangi í Höllinni og má þar nefna
Íslandsmót iðngreina og ráð-
stefna verður á fimmtudag undir
yfirskriftinni Skipulag eða stjórn-
leysi?
Að auki verða ýmsir viðburður á
vegum sýnenda í Laugardalshöll
og má þar nefna ráðstefnu um
áhættu í verktöku á vegum Sam-
taka iðnaðarins. Hádegisverðar-
fundur verður fyrir boðsgesti á
vegum Landsbanka Íslands undir
yfirskriftinni Atvinnuhúsamark-
aðurinn. Á föstudag verður fund-
ur undir yfirskriftinni Íslenska
orkuútrásin og ÍSMAR verður
með opinn kynningarfund ásamt
Trimble undir yfirskriftinni
Trimble Express. Þá verður Olís
með kynningarfund sem nefnist
Hljóðvist á laugardag.
Það er iðnaðarráðherra, Össur
Skarphéðinsson, sem opnar sýn-
inguna.
Verk og vit 2008
Stórsýning í Laugardalshöll um helgina