24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@gmail.com Síðan Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskólinn sameinuðust árið 2004 hefur starfsemi hins samein- aða skóla verið á nokkrum stöðum í höfuðborginni. Nú eru hins vegar hafnar byggingarframkvæmdir við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík þar sem kraftmikið og öflugt þekk- ingarsamfélag mun starfa í fram- tíðinni. Nýbygging háskólans kemur til með að vera 36.000 fermetrar að stærð og verður staðsett á 20 hekt- ara landi við rætur Öskjuhlíðar of- an við Nauthólsvík. Á svæðinu er einnig rými fyrir nýsköpunar- og rannsóknarstofnanir, sprotafyr- irtæki og stúdentaíbúðir. Líkan byggingarinnar til sýnis Þorkell Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjóri nýsköpunar og þró- unar hjá Háskólanum í Reykjavík, segir hið nýja húsnæði koma til með að bjóða bæði starfsfólki og nemendum úrvalsaðstöðu til framtíðar. Þá er gert ráð fyrir að stækka skólabygginguna um allt að 20.000 fermetra á næstu árum ef þörf krefur. Á sýningunni Verk og vit gefst almenningi kostur á að kynna sér nýbyggingu háskólans og starfsemi hans. Útbúið hefur verið glæsilegt líkan af byggingunni þar sem hægt er að sjá skipulag hennar auk þess sem að útbúið hefur verið ítarlegt kynningarrit um nýja húsnæðið. 3.250 manna þekkingar samfélag „Byggingin kemur til með að vera á 2-3 hæðum en í miðju hennar verður stórt yfirbyggt torg sem hýsir þjónusturými, s.s. bók- sölu, verslun, bókasafn, mötuneyti og fleira,“ útskýrir Þorkell. „Út frá miðjunni verða síðan álmur fyrir deildir skólans, þar sem starfsfólk og nemendur hafa aðstöðu. Á jarð- hæð verða 50 kennslustofur, allt frá litlum stofum fyrir 20-30 manns og upp í 200 manna fyrirlestrasal.“ Í dag stunda í kringum 3.000 nemendur nám við fimm deildir skólans: tækni- og verkfræðideild, tölvunarfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og kennslufræði- og lýð- heilsudeild. Auk þess starfa 250 manns við kennslu, rannsóknir og ýmis önnur störf innan stofnunar- innar. Þorkell segir skólann ekki sjá fyrir að stækka mikið eftir flutn- inginn í Öskjuhlíðina. „Við leggj- um áherslu á gæði frekar en fjölda,“ segir hann. 16 mánuðir í fyrstu flutninga Fyrsti áfangi nýju bygging- arinnar verður tilbúinn í ágúst 2009 en þá flytur starfsemi tækni- og verkfræðideildar, tölv- unarfræðideildar og viðskipta- deildar í nýja húsnæðið. Í ágúst ári síðar flytur svo það sem eftir er starfseminnar. „Tíminn er fljótur að líða og aðeins 16 mánuðir í fyrstu flutninga,“ segir Þorkell sem jafnframt telur samkeppnishæfni Háskólans í Reykjavík koma til með að aukast til muna þegar öll starfsemi skólans verður komin undir sama þak í sérhannað og glæsilegt húsnæði miðsvæðis í höf- uðborginni. Háskólinn í Reykjavík stækkar Kraftmikið samfélag rís í Öskjuhlíðinni ➤ 36.000 fermetra nýbyggingHR rís í Öskjuhlíðinni á næstu tveimur árum. ➤ Fyrri áfangi klárast í ágúst2009, sá síðari í ágúst 2010. ➤ Á háskólasvæðinu verðurrými fyrir ýmis konar þekk- ingar- og nýsköpunarstarf- semi ásamt stúdentaíbúðum. ➤ Yfir 50 kennslustofur verða íbyggingunni ásamt því að hver deild hefur sína eigin álmu. HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍKByggingarframkvæmdir eru hafnar við nýbygg- ingu Háskólans í Reykja- vík í Nauthólsvík. Þar mun rísa kraftmikið og öflugt þekkingarsam- félag. Á Verk og vit gefst fólki kostur á að kynna sér nýbyggingu háskól- ans og starfsemi hans. Framtíðin Hér má sjá hvernig nýbygging Há- skólans í Reykjavík kemur til með að líta út í Öskjuhlíðinni. Vinnusvæði Allt á fullu við uppbyggingu þekk- ingarsamfélagsins „Við hjá Margt smátt bjóðum upp á þennan sterka en lipra vinnufatnað frá F. Engel K/S,“ segir Magnús Ólafsson, sölustjóri vinnufatnaðar hjá fyrirtækinu. „Hann hefur verið framleiddur síðan 1927, þannig að þetta er traust merki sem hefur ávallt verið í fararbroddi hvað varðar nýjungar í efnum og sniðum er henta í fjöl- breyttustu aðstæðum.“ Magnús segir að fyrirtækið F. Engel leggi sterka áherslu á að vinnuföt séu bæði þægileg og örugg en um leið nútímaleg og bjóði upp á lausnir sem þyki góðar. Nær allur fatnaður gerir til að mynda ráð fyrir farsíma. Þá er fyr- irtækið í fararbroddi hvað varðar lausnir í endurskinsfatnaði og unnið að þróun öryggisstaðla hvað hann varðar. „Við tókum þátt í sýningunni árið 2006,“ segir Magnús. „Við ætlum að vera með viðameiri kynningu í ár. Þetta er vinsæl vara frá F. Engel sem við höfum til sölu hjá okkur í Margt smátt og vöru- úrvalið er breitt og því ætlum við að koma til skila á sýningunni,“ segir Magnús frá og býður fólk vel- komið í básinn að kynna sér þenn- an níðsterka fatnað. dista@24stundir.is Vel varðir í sterkum vinnufatnaði Níðsterk en þægileg Vegna framkvæmdanna í Naut- hólsvík er hafin uppbygging á svæðinu og endurbætur á aðstöðu til útivistar. Göngu -og hjólastígar verða endurnýjaðir og færðir út fyrir byggingarsvæðið. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar verða stígarnir teknir í notkun áður en þeir eldri verða aflagðir og því eiga breyting- arnar ekki að hafa mikil áhrif á umferð þeirra sem eiga leið um Öskjuhlíðina og í Nauthólsvík en aðkoma að Nauthólsvík verður op- in allan tímann sem framkvæmdir standa yfir. Uppbygging vegna framkvæmda Endurnýjun í Öskjuhlíð Hawa Junior 80 eru glæsilegar rennibrautir fyrir 8-10-12 mm hert gler eða timburhurðir. Útvegum hert gler eftir máli. Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.