24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Það hefur verið mikil uppbygging
í þjóðfélaginu síðustu ár og því
eðlilegt að margir séu spenntir fyr-
ir því að kynna sér það nýjasta í
byggingariðnaði, skipulagsmálum
og mannvirkjagerð,“ segir Margit.
Margit Elva, framkvæmdastjóri
AP sýninga, dótturfyrirtækis AP
almannatengsla, sem er fram-
kvæmdaraðili Verks og vits. Hún
lauk BS-gráðu í fjölmiðlafræði og
blaðamennsku árið 1990 frá Ohio
University í Bandaríkjunum og
hefur síðan þá unnið við almanna-
tengsl, verkefnastjórnun, umsjón
og skipulagningu ýmissa viðburða
og ráðstefna. „Við settum Verk og
vit á laggirnar fyrir tveimur árum
og fékk sýningin mjög góðar við-
tökur. Þá kom greinilega í ljós að
grundvöllur var fyrir reglulegar
stórsýningar í byggingariðnaði,
skipulagsmálum og mann-
virkjagerð,“ segir Margit sem hefur
haft nóg að gera við undirbúning
sýningarinnar.
Áhugaverð fagsýning
Verk og Vit 2008 verður haldin í
Laugardalshöll dagana 17.- 20.
apríl næstkomandi. „Þetta er fyrst
ogfremst fagsýning þar sem fyr-
irtæki og stofnanir kynna sig,
framleiðslu sína og þjónustu, efla
viðskiptasambönd og styrkja
ímynd sína,“ segir Margit. „Engu
að síður á sýningin fullt erindi við
almenning því margir sýnenda
bjóða einnig vörur og þjónustu á
neytendamarkaði og því ættu allir
að finna eitthvað við sitt hæfi á
Verki og viti. Fyrstu tvo dagana
verður sýningin einungis ætluð
fagaðilum, en helgina 19. og 20.
apríl verður hún einnig opin al-
menningi.“
Glæsileg sýningarsvæði
„Sýnendur leggja eins og vera
ber mikið upp úr því að þeirra sýn-
ingarsvæði séu sem glæsilegust.
Metnaður þeirra er mikill sem
skiptir auðvitað mestu máli því
sýning á borð við Verk og vit verð-
ur aldrei betri en framlag sýnend-
anna sjálfra,“ segir Margit.
Samhliða Verki og viti verða
haldnar ýmsar ráðstefnur og við-
burðir. Margit nefnir sem dæmi
ráðstefnuna „Skipulag eða stjórn-
leysi?“ sem haldin verður 17. apríl.
Þar verður fjallað um rekstur fast-
eigna, skipulagsmál, fjármögnun
og nýjar framkvæmdir. Einnig
bendir hún á að Íslandsmót iðn-
greina verður haldið samhliða
Verki og viti dagana 18.-19. apríl.
„Þar munu iðnnemar og nýútskrif-
aðir iðnaðarmenn keppa í ellefu
iðngreinum í anddyri gömlu Laug-
ardalshallarinnar. Við erum mjög
stolt af því að mótið sé nú haldið í
tengslum við Verk og vit, enda er
þetta skemmtileg keppni og verður
meira lagt í hana en áður,“ segir
Margit.
Um hundrað sýnendur
Margit hvetur alla til að koma í
Laugardalinn um helgina og kynna
sér spennandi sýningu. „Það stefn-
ir í að sýningin í ár verði jafnvel
enn glæsilegri en árið 2006. Hér
verða um hundrað sýnendur af öll-
um stærðum og gerðum og allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Laugardalshöllin er frábær staður
fyrir stórsýningu á borð við Verk
og vit og öll aðkoma fyrir gesti eins
og best verður á kosið.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni verkogvit.is.
24stundir/Brynjar Gauti
Spennandi dagskrá fyrir alla á sýningunni Verk og vit 2008
„Sýninguna Verk og vit
má með sanni kalla stór-
sýningu,“ segir Margit
Elva Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sýning-
arinnar, og bætir því við
að 17.000 manns hafi
heimsótt hana þegar hún
var fyrst haldin fyrir
tveimur árum.
Frá Verki og viti 2006
Stærsta sýning sinnar
tegundar hér á landi.
Sýningin í ár verður enn
stærri.
Ótal nýjungar kynntar
á stórri sýningu
➤ Í tengslum við sýninguna erhaldin ráðstefnan Skipulag
eða stjórnleysi um þróun
fasteignamarkaðar og skipu-
lagsmála.
➤ Sýningin verður opin almenn-ingi helgina 19. og 20. apríl.
➤ Háskólinn í Reykjavík og Há-skóli Íslands taka virkan þátt í
sýningunni að þessu sinni.
UM SÝNINGUNA
Risavaxin sýning
Margit Elva Einarsdóttir
er forstöðumaður við-
burða hjá AP-
almannatengslum og
framkvæmdastjóri
Verks og vits 2008.
„Við sýnum sýnishorn af fram-
leiðslunni okkar á sýningunni og
reynum að sýna fram á hvað við
getum framleitt,“ segir Árni B.
Halldórsson hjá Stöngum ehf. sem
framleiðir mottur og járnabind-
ingar. „Við framleiðum hluti sem
ekki hafa verið í boði á íslenskum
byggingarmarkaði. Hingað til hafa
þetta verið mottur úr grönnum
járnum, 5-7 mm en við getum
framleitt 16 mm mottur sem býð-
ur upp á frekari möguleika. Þær
má til dæmis nota í veggi og plötur
í staðinn fyrir hefðbundna járna-
lögn.
Stangir hófu framleiðslu árið
2005 í verksmiðju að Flugumýri.
Fyrirtækið er í stöðugri uppbygg-
ingu og nú er svo komið að við
höfum sprengt utan af okkur hús-
næðið og erum að byggja okkur
nýtt að Kistumelum við Esjumela.
Við flytjum þangað í næsta mán-
uði.“
dista@24stundir.is
Fleiri möguleikar með fjölbreyttara framboði
Klæðskerasaumaðar
mottur
Á Verk og vit mun fyrirtækið
Míla kynna sig og starfsemi sína en
Míla ehf. byggir á starfsemi fjar-
skiptanets Símans sem lagt hefur
grunn að öllum fjarskiptum á Ís-
landi. Míla var stofnuð fyrir réttu
árið síðan þegar fyrirtækið var skil-
ið frá annarri starfsemi Símans.
Kjarnastarfsemi Mílu ehf. er að
byggja upp og reka fullkomnasta
fjarskiptanet á Íslandi. „Það eru
rúmlega 100 ár síðan byrjað var að
leggja fjarskiptanet á Íslandi og við
rekum það net,“ segir Sigurrós
Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Mílu.
„Þetta er langvíðtækasta kerfið á
landinu og önnur fjarskiptafyr-
irtæki tengjast þessu neti í gegnum
mismunandi lausnir. Hlutverk
Mílu er að selja lausnir sínar til fyr-
irtækja og stofnana sem stunda
fjarskiptastarfsemi. Á sýningunni
munum við kynna nýjung sem við
köllum Ljósið heim og er ljósleið-
aralögn heim að húsi í nýjum
hverfum. Öll eldri hverfi eru með
kopar og eru flest heimili í landinu
tengd á koparkerfið. Ljósleið-
aralögnin er nýjung sem við erum
farin af stað með í nýjum hverfum.
Fjarskiptakerfi okkar er mjög öfl-
ugt og fjölþætt og byggist á tveim-
ur meginkerfum; stofnneti og að-
gangsneti. Við leggjum mikla
áherslu á stöðuga uppbyggingu
fjarskiptakerfisins til að tryggja
sem besta nýtni þess ásamt því að
setja á markað nýjar lausnir.“
Sigurrós tekur fram að Míla sel-
ur ekki þjónustu á neytendamark-
aði heldur eingöngu á heild-
sölumarkaði. Fyrirtækið sér um
grunninn að fjarskiptum og án
þess geta símafyrirtækin ekki boð-
ið sína þjónustu. „Þess vegna er
ljósleiðaralögnin og aðrar vörur
okkar ekki eitthvað sem við kynn-
um fyrir einstaklingum beint held-
ur þessum skipulagsfyrirtækjum
sem eru að byggja nýju hverfin.
Við sjáum okkur mikinn hag í að
taka þátt í sýningunni og teljum
hana vera réttan vettvang fyrir fyr-
irtækið til að gera sig betur sýnilegt
á markaði.“
svanhvit@24stundir.is
Ljósið heim: Ljósleiðaralögn heim að húsi
Öflugt og fjölþætt
fjarskiptakerfi