24 stundir - 16.04.2008, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Stærri verkfræðistofa hefur tök á
að leysa stærri og fjölþættari verk-
efni en við höfum haft tök á hing-
að til. Slíkt er líka markmið okkar
með sameiningunni, sem gefur
okkur meðal annars tækifæri til að
sækja enn frekar á markaði erlend-
is, þar sem í vaxandi mæli er sóst
eftir sérþekkingu íslenskra verk-
fræðinga, til dæmis á sviði raforku
og iðnaðar,“ segir Eyjólfur Árni
Rafnsson, forstjóri verkfræðistof-
unnar Mannvits.
Sótt í Hávamál
Verkfræðistofan Mannvit er með-
al þátttakenda í Verk og vit en hún
varð formlega til þann 10. apríl sl.
með sameiningu Rafhönnunar og
VGK Hönnunar. Þannig verður til
stærsta verkfræðistofa landsins með
alls um 360 starfsmenn. Starfs-
stöðvar Mannvits eru í öllum lands-
fjórðungum. Í Reykjavík eru þær
þrjár; það er á Laugavegi 178, Ár-
múla 42 og Grensásvegi 1 en á síð-
astnefnda staðnum standa nú yfir
byggingaframkvæmdir og ekki mun
líða á löngu þar til öll starfsemi fyr-
irtækisins á höfuðborgarsvæðinu
verður komin á einn stað.
Hönnun og VGK sameinuðust
fyrir rúmu ári undir því nafni sem
fyrr er nefnt. Þegar Rafhönnun
bættist við þótti mönnum hins
vegar rétt að taka upp nýtt nafn.
„Við fórum í gegnum langt ferli,
skoðuðum í það heila um 160 til
170 nöfn. Okkur fannst hins vegar
nafnið Mannvit best; enda byggir
verkfræði á þekkingu og mannviti.
Við erum ánægð með nafnið, sem
meðal annars kemur fyrir í Háva-
málum og raunar víðar,“ segir Eyj-
ólfur Árni.
Frá frumdrögum að mannvirki
Sú verkfræðiþjónusta sem
Mannvit veitir er alhliða. Mikill
vöxtur hefur verið í starfsemi
tengdri orkunýtingu og stóriðju en
einnig á sviði bygginga-, lagna- og
umhverfisverkfræði svo eitthvað sé
nefnt.
„Það færist mjög í vöxt að við-
skiptavinir komi til verkfræðistofa
með kannski fyrstu drög að bygg-
ingu og feli þeim síðan umsjón
með framhaldinu, það er að annast
heildarumsjón verkefna, halda ut-
an um alla hönnun, afla tilboða og
hafa umsjón og eftirlit með fram-
kvæmdum uns þeim lýkur. Verk-
efni sem spannar frá frumdrögum
að fullbyggðu mannvirki verða sí-
fellt algengari og þau kalla gjarnan
á samvinnu starfsfólks hinna ýmsu
sviða verkfræðistofunnar,“ segir
Eyjólfur Árni og bendir í þessu
sambandi á að Mannvit og VST
standi saman að HRV ehf. sem sér-
hæfir sig í þjónustu við fyrirtæki í
orkufrekum iðnaði. Slíkt sé í raun
tímanna tákn; fyrirtæki verði
stærri og kröfur til þeirra meiri
sem aftur kalli á að menn snúi
saman bökum eins og nú sé gert
með stofnun Mannvits.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mannvit er stærsta verkfræðistofa landsins
Íslensk sérþekking eftirsótt
Mannvit, stærsta verk-
fræðistofa landsins, hefur
tök á að leysa stór og fjöl-
þætt verkefni meðal ann-
ars erlendis í krafti stærð-
ar sinnar og þekkingar
starfsfólks.
Eyjólfur Árni Rafns-
son er nýr forstjóri
Mannvits „Við munum
leysa stærri og fjölþætt-
ari verkefni en við höfum
haft tök á hingað til,“
Vatnsþéttiefnið Xypex hefur verið
á markaði í 40 ár en hefur ekki verið
notað hér á landi fyrr en síðustu ár
og þá af fyrirtækinu Íslenskur aðall
sem Jón Örn Kristleifsson fer fyrir.
Jón Örn segir viðgerðarefnið Xy-
pex hafa einstaka virkni miðað við
önnur viðgerðarefni sem ætluð eru
til viðgerðar á steinsteypu.
„Í stuttu máli þá kristallast efnið í
holrými þar sem rakastigið er til-
tölulega hátt, eins og til dæmis í lek-
um sprungum og þannig þéttist
steypan smám saman og á end-
anum lokar það fyrir leið vatnsins
inn í steypuna, sem leiðir til þess að
steypan þornar. Þannig eykst veðr-
unarþol og frostþol steypunnar og
tæring í stáli, alkalívirkni og súlfat-
skemmdir minnka.“
Notkun efnisins
„Helsti kostur efnisins er að það
eykur líftíma steypunnar til muna,
togþolið, gæðin og þrýstingsstyrk.
Það er heldur ekki eitrað og það
hefur verið viðurkennt til að nota í
drykkjarvatnstönkum. Þá eyðist það
ekki og er varanleg lausn því krist-
allarnir eyðast ekki. Svo er hægt að
bera það á hvort heldur utan á eða
innan því það smýgur inn um
steypuna og aðlagast henni, verður
hluti af henni.“
Jón Örn segir efnið hafa verið
notað á margvíslegan hátt, í sund-
laugar, vatnstanka, brýr, vegagerð,
þök og fjölbýlishús.
„Annað hvert hús er lekt hér á
landi,“ segir Jón Örn. Bygging-
artíminn er svo stuttur. „Ég get
bjargað lekri steypu eins lengi og
hún er ekki orðin ónýt.“
Prófanir á Xypex
Jón Örn segir efnið hafa verið
notað fyrst hér á landi fyrir tæpum
20 árum. „Vegagerðin notaði efnið
1990 og því höfum við fengið styrk
til að rannsaka virkni þess og hafa
verið gerðar ýmsar prófanir á steypu
sem innihaldur Xypex og virkni
efnisins könnuð svo að einhverjar
staðgóðar upplýsingar séu til um
efnið sem vísa má til við hönnun
mannvirkja hér á landi.“
Jón Örn tekur dæmi af nið-
urstöðum rannsókna.
„Brúin austan við Kirkjubæj-
arklaustur var meðhöndluð með
Xypex 1993, úr henni hefur verið
tekið fullt af sýnum og niðurstöð-
urnar eru skýrar. Í sýnunum eru
kristallar sem sýna virkni efnisins.
Vatnið í steypunni hefur breyst í
kristalla og þétt steypuna.“
Vatnsþéttiefnið Xypex á markaði síðan 1969
Lekri steypu bjargað
Sundlaugarbotn Xypex
borið á sundlaugarbotn á
Seltjarnarnesi.
Góð lausn Borið á húsþak
og gefur góða endingu.