24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Á liðnum árum hefur verktökum og aðilum sem tengjast bygging- ariðnaði og verkframkvæmdum fjölgað mjög í viðskiptavinahópi okkar. Sýning á borð við Verk og vit er heppilegur vettvangur til að hitta viðskiptavini okkar úr þess- um geira atvinnulífsins og það er tilgangur okkar með þátttöku,“ segir Davíð Björnsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri fyrirtækja- sviðs Landsbanka Íslands. Að sögn Davíðs hafa áherslur Landsbankans í þjónustu við fyr- irtæki í byggingariðnaði miðast við heildarlausnir. „Fyrirtæki sem byggja á eigin reikning þurfa á framkvæmdafjármögnun að halda, auk ábyrgða vegna virðisauka- skatts, innflutningsábyrgða og fleira, meðan fyrirtæki sem byggja í verktöku þurfa fremur á að halda brúarfjármögnun, verkábyrgðum, verklokaábyrgðum og þess háttar. Við sérsníðum því þjónustu okkar að hverju verkefni fremur en að bjóða öllum sömu lausnir,“ segir Davíð. Sterkur útboðsmarkaður Samdráttur í lánveitingum og bankaþjónustu til byggingariðn- aðarins hefur verið áberandi um- ræðuefni undanfarið. Davíð Björnsson segir að í því sambandi sé rétt að gera greinarmun á verk- efnum byggingaverktaka fyrir eigin reikning og síðan útboðsverkum. „Vegna mikilla framkvæmda á undanförnum árum er nú svo komið að mikið framboð er bæði á nýju íbúðarhúsnæði og nýju at- vinnuhúsnæði án þess að eft- irspurnin hafi náð að fylgja jafn- hratt á eftir og því hefur hægst verulega á þeim markaði. Eins hef- ur þrengst um á lánamarkaði, sem sömuleiðis dregur úr eftirspurn. Við þessar aðstæður er óráðlegt fyrir fyrirtækin að hefja nýjar framkvæmdir fyrir eigin reikning og eðlilega dragast lánveitingar til þeirra saman. Við höfum hins veg- ar lagt áherslu á að ljúka þeim verkefnum sem viðskiptavinir okk- ar hafa þegar hafið. Hvað útboðs- markinn varðar finnum við hins vegar ekki fyrir samdrætti og þar virðist vera mikið verkefnafram- boð.“ Afkoma verður lakari Davíð segir að vegna mikils framboðs íbúðarhúsnæðis sem ekki hefur selst muni arðsemi eigin verkefna byggingarverktaka lækka. Hætt sé við að þeir sem sitja eftir með minnst söluvænlegu eignirnar lendi í einhverjum skakkaföllum. „Það er ljóst að fyrirtæki í bygg- ingariðnaði munu halla sér meira að útboðsverkefnum á næstunni og draga mjög úr framkvæmdum fyrir eigin reikning. Töluverður hluti þessara verkefna er frá opinberum aðilum en jafnframt er vitað um stór verkefni framundan í einka- geiranum. Sé litið á umfang þeirra verkefna sem framundan eru sést að það er langt í frá útlit fyrir stöðnun í byggingariðnaði á næst- unni. Hins vegar má búast við því að vegna þessara breytinga verði af- koma í greininni lakari á næstunni en verið hefur undanfarin ár.“ 24stundir/Frikki Viðskiptavinum Landsbankans í byggingariðnaði hefur fjölgað Stór verkefni framundan ➤ Þurfa framkvæmda-fjármögnun auk ábyrgða. ➤ Framboð án þess að eft-irspurn hafi fylgt. ➤ Halla sér meira að útboðs-verkefnum. STAÐREYNDIR Landsbankinn er með heildarlausnir fyrir bygg- ingariðnaðinn. Sýningin Verk og vit er vettvangur til að hitta viðskiptavini, segir Davíð Björnsson. Bjartsýni „Langt í frá útlit fyrir stöðnun í byggingariðnaði,“ segir Davíð Björnsson hjá Landsbanka Íslands. Starfsemi verkfræðistof- unnar Línuhönnunar hef- ur vaxið mikið á und- anförnum árum. Á sýningunni Verk og vit munu starfsmenn fyr- irtækisins kynna þá fjöl- þættu þjónustu sem þeir geta veitt viðskiptavinum, en segja má að hún spanni nánast öll svið verkfræðinnar. „Á síðustu árum hefur eftirspurn eftir þjón- ustu fyrirtækisins aukist mjög m.a. á sviði umhverfismála, samgöngu- og skipulagsmála, orkumála, verk- efnisstjórnunar og öryggismála svo eitthvað sé nefnt, sem helst í hend- ur við aukið vægi þeirra mála í samfélaginu. Við höfum því eflt alla okkar starfsemi í samræmi við það. Umsvif fyrirtækisins erlendis hafa einnig vaxið verulega á und- anförnum misserum og er Línu- hönnun nú með starfsemi í 5 Evr- ópulöndum einkum í orkugeiranum,“ segir Jón Viðar Guðjónsson, sviðsstjóri hjá Línu- hönnun. Tæp þrjátíu ár eru síðan Línuhönnun var stofnuð, þá til að hanna og undirbúa lagn- ingu háspennulína. Fljót- lega færði verkfræðistofan út kvíarnar og fór að sinna öðrum verkefnum og um- svifin jukust. Þannig eru starfsmenn nú rúmlega 150 en voru um 50 fyrir áratug. Starfsemin skiptist upp í alls níu markaðssvið sem end- urspegla breidd og fjölbreytni þjónustunnar. „Línuhönnun hefur í gegnum tíðina tekið að sér stór hönnunarverkefni í byggingum og vega- og brúargerð og eru slík verkefni viðamikil í dag. Við höf- um og í gegnum tíðina sinnt fjöl- mörgum ráðgjafarverkefnum við endurbætur og viðhald gamalla húsa svo sem Háskóla Íslands, Þjóðminjasafnsins, Hóladóm- kirkju, Þjóðleikhússins og fleiri. Þá hafa umhverfismálin komið sterkt inn á undanförnum árum, meðal annars mat á umhverfisáhrifum, ráðgjöf vegna umferðarmála, hljóðvistar og þéttingar byggðar og svo má áfram telja.“ Verkfræðistofan Línuhönnun Umhverfismálin koma sterk inn Fasteignamarkaðurinn getur verið hálfgerður frumskógur fyrir seljendur jafnt sem kaupendur. In- house býður nú upp á heild- armarkaðslausnir á fasteigna- og nýbyggingamarkaði landsins. Að sögn Halldórs Ægis Hall- dórssonar hjá Inhouse býður fyr- irtækið ekki aðeins upp á ljós- myndun og þrívíddargerð heldur einnig auglýsingagerð og fleira. „Takmark okkar er að vera í raun það eina sem seljandi þarf á að halda. Við aðstoðum við markaðs- setningu á nýbyggingum og eldri fasteignum,“ segir Halldór Ægir. Allar nánari upplýsingar má finna á www.inhouse.is. Alhliða markaðslausnir á fasteignamarkaði Betri leið til að selja Við- skiptablaðið var stofnað ár- ið 1994 sem vikublað um viðskipti og efnahagsmál og kom til að byrja með út á mið- vikudögum. Frá janúar 2004 kom blaðið einnig út á föstudögum og var síðan breytt í dagblað í febrúar 2007. Síðan þá hefur það komið út fjórum sinnum í viku, frá þriðju- degi til föstudags. Dagblað atvinnulífsins Viðskiptablaðinu verður dreift á sýningunni auk mánaðarlegs verk- takablaðs sem kemur út í dag. Þá verða önnur tímarit tengd útgáf- unni kynnt. „Við höfum lagt áherslu á að Viðskiptablaðið sé dagblað atvinnulífsins. Á fimmtu- dögum fylgir sérblaðið Fiskifréttir með Viðskiptablaðinu auk þess sem við erum með sérútgáfu alla miðvikudaga, þannig að blaðið hefur víða skírskotun,“ segir Ólaf- ur Jens Sigurðsson, sölustjóri Við- skiptablaðsins Viðskiptablaðið Dagblað atvinnulífsins NÝBYGGING HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK. OPNUN FYRRI ÁFANGA 2009, SEINNI ÁFANGA 2010. HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK - HÁSKÓLI 21. ALDAR HLUTVERK HÁSKÓLANS ER AÐ SKAPA O G MIÐLA ÞEKKINGU TIL AÐ AUKA SAMKEPPNISHÆFNI OG LÍFSGÆÐI ÞJÓ ÐARINNAR. HÁSKÓLINN Í RE YKJAVÍK ER alþ jóðleg vísind a- og menntas tofnun SEM TE KUR VIRKAN ÞÁ TT Í ALÞJÓÐLEGU S AMFÉLAGI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.