24 stundir - 16.04.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sigbogi@simnet.is
„Vöruúrval og öll þjónusta BYKO
hefur aukist á undanförnum árum.
Þetta á ekki síst við um grófvöruna
þar sem við getum boðið við-
skiptavinum heildstæða þjónustu
með eigin innflutningi. Þar get ég
til dæmis nefnt forsmíðaðar timb-
ureiningar, stálgrindahús, álglugga
og gler og svo framvegis. Einnig
leggjum við sífellt meira upp úr
allri sérsmíði til að geta komið til
móts við viðskiptavini og óskir
þeirra, sem eru afar ólíkar,“ segir
Steingrímur Birkir Björnsson,
framkvæmdastjóri byggingasviðs.
Lagnadeild og sumarvörur
BYKO er meðal þátttakenda í
Verk og vit. Steingrímur segir sýn-
inguna vera kærkomið tækifæri til
að hitta viðskiptavini og kynna
þeim fyrirtækið sem hafi tekið al-
gjörum stakkaskiptum á und-
anförnum árum. Framboð á allri
grófvöru sé meira, aukinheldur
sem mikill kraftur hafi verið settur
í uppbyggingu lagnadeildar. Innan
hennar hafi síðan verið sett upp
raflagnadeild í verslun fyrirtæk-
isins í Breiddinni, sem þjóni öðr-
um verslunum fyrirtækisins mið-
lægt.
„Leigumarkaður okkar er meðal
þeirra þátta í starfseminni sem
hafa vaxið mikið á undanförnum
árum,“ segir Steingrímur. „Við
leigjum meðal annars út krana, há-
hýsalyftur og steypumót og við
höfum fundið fyrir aukinni eft-
irspurn eftir slíkri þjónustu. Sama
gildir raunar um jeppakerrur,
garðvinnutæki og fleira sem fólk
þarf þegar það er að dytta að
heima fyrir. Í sumar stendur til að
auka vöruframboðið á leigumark-
aðnum enn frekar með ýmiss kon-
ar afþreyingarvörum fyrir krakk-
ana, til dæmis hoppukastölum,
trampólínum og fleiru slíku. Ég efa
ekki að sú þjónusta sé og verði
mörgum kærkomin. Einnig mun-
um við á sýningunni kynna okkar
fjölbreytta garða- og sum-
arhúsavöru, til dæmis grill, girð-
ingaeiningar, heita potta og svo
framvegis. Sá markaður er afar stór
og mikilvægur.“
Líta í kringum sig
Heldur hefur hægt á bygg-
ingamarkaðnum, sé til dæmis mið-
að við stöðuna fyrir ári. „Þetta er
allt spurning um mælikvarða. Ef
við horfum enn lengra aftur í tím-
ann og miðum við stöðuna
kannski fyrir fimm árum eru um-
svifin í dag afar mikil og margt í
pípunum, meðal annars í opinber-
um framkvæmdum. Ríkið hefur
beðið með stórar framkvæmdir að
undanförnu sem nú eru að fara á
fullt skrið. En vissulega finnur
greinin fyrir samdrætti svo sem í
byggingu íbúðarhúsnæðis, þegar
lokað hefur verið fyrir lánveit-
ingar,“ segir Steingrímur sem legg-
ur þó áherslu á að þrátt fyrir allt sé
útlitið framundan býsna gott. Það
sé líka segin saga að þegar aðeins
hægist um fari menn að líta í
kringum sig; kynna sér nýjungar
og vöruþróun sem sé mikilvægt
svo að vinna megi hlutina með
hagkvæmum og auðveldum hætti.
24stundir/Frikki
BYKO hefur gjörbreyst á fáum árum og vöruframboð aukist
Sérsmíði í sókn
➤ Mikill kraftur hefur verið sett-ur í lagnadeildina.
➤ Framboð á grófvöru hefurverið aukið til muna.
➤ Leigumarkaðurinn hefurstækka mikið og þjónar
stærri hópum.
BYKOBYKO hefur verið að auka
framboð á hinum ýmsu
vörum sem koma við-
skiptavinum til góða og
eru vel þegnar. Í sumar er
von á ýmsum afþreying-
arvörum fyrir börn sem
leigðar verða út, svo sem
hoppukastalar og tram-
pólín.
BYKO breytist „Vöru-
úrval og öll þjónusta
hefur aukist á und-
anförnum árum, segir
Steingrímur Birkir
Björnsson, fram-
kvæmdastjóri bygg-
ingasviðs BYKO.
Mest hefur um árabil haft til sölu
sérsmíðaða viðhaldsfría danska
glugga sem eru sérstaklega hent-
ugir fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í öllum stærðum
Fyrirtækið sem framleiðir
gluggana heitir Pro-Tec en að sögn
Elvars Bjarka Helgasonar hjá Mest
eru gluggarnir sérstakir að því leyti
að þeir eru smíðaðir úr áli og viði.
„Að utanverðu eru gluggarnir úr
áli sem ver þá gegn hörkulegum ís-
lenskum vetri en að innanverðu
eru þeir úr viði. Hver gluggi er sér-
smíðaður og hægt er að fá þá í öll-
um mögulegum stærðum og 200
litum. Auk þess er að sjálfsögðu
hægt að velja um margar mismun-
andi tegundir glerja og því ættu
allir að geta fengið glugga við sitt
hæfi.“
„Fyrirtækið hefur um 10 ára
reynslu af því að smíða glugga fyrir
íslenska veðráttu og býður upp á
10 ára ábyrgð á öllum sínum
vörum,“ segir Elvar og bætir við að
tveir starfsmenn Pro-Tec verði á
sýningunni Verk og vit og við-
skiptavinir geta því fengið grein-
argóðar upplýsingar um gluggana.
Allar nánari upplýsingar um
gluggana og fyrirtækið sem fram-
leiðir þá er hægt að fá á vefsíðunni
www.pro-tec.dk eða hjá Mest í
síma 440-0100.
Sérsmíðaðir gluggar fyrir íslenskar aðstæður
„Fyrirtækið Index er framleið-
andi að þeim dúkum sem Olís er
umboðsaðili fyrir á Íslandi. Fyr-
irtækið er leiðandi aðili á heims-
markaði í framleiðslu og þróun á
þak- og hljóðdempandi dúkum.“
Olíuverslun Íslands tekur á móti gestum
Hljóðdempandi dúkar
„Við munum veita upplýsingar
um þær vörur sem við bjóðum í
fyrirtækjaþjónustu Olís á sýning-
unni Verki og viti,“ segir Gústaf
Kristinsson hjá fyrirtækinu. „Við
leggjum sérstaka áherslu á þjón-
ustu okkar hvað varðar þakpappa
og útlögn. Við tökum við þökum
og klárum þau. Erum und-
irverktakar á ábyrgð Olís.“
Hljóðdempandi dúkar nauðsyn
„Einnig erum við með hljóð-
dempandi dúka sem eru orðnir að
hreinni nauðsyn í dag. Þeir eru
mikið notaðir á vinnustaði sem og
í fjölbýlishús,“ segir Gústaf og bæt-
ir við bæði í gamni og alvöru að
það sé tilkomið vegna þess að fólk
vilji finna hæfilega mikið fyrir
nærveru annarra íbúa og vinnu-
félaga.
„Við verðum með kynning-
arfund á laugardeginum í bíósaln-
um. Allir eru velkomnir til okkar,
þar sýnum við hljóðdempandi
dúk, tveir munu halda erindi, Jó-
hannes Kristjánsson tæknifræð-
ingur og Ólafur Hjálmarsson verk-
fræðingur. Jóhannes lýsir til að
mynda notkun dúksins á Suður-
landsbraut 22, afar vandaðar bygg-
ingar sem mikið er lagt í og kynnir
einnig skýrslur gerðar um eig-
inleika dúksins.“
Gústaf segir dúkana á heims-
mælikvarða og að verktakar séu
ánægðir með þá. Nú sé til að
mynda verið að leggja slíka í fram-
kvæmdum við Háskóla Reykjavík-
ur.
Mynstraður þakpappi
Á þaki einbýlishúss.
Vandað til verka
Starfsmenn Olís
að verki.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Mynda-upphengibrautir sem
hafa þann kost að ekki þarf
að negla í veggi og er mjög
auðvelt að breyta uppröðun
eða bæta við myndum.