24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 39

24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 39
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 39 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is „Stöðug áhersla á gæði þeirrar vöru og þjónustu sem við veitum er besta kynningin sem fyrirtækið fær. Því er rauði þráðurinn í okkar starfi að afsláttur er aldrei veittur af gæðum vöru okkar og við leggj- um ekki nafn okkar við annað en gæðavöru. Þessi áhersla hefur skil- að okkur traustri stöðu á mark- aðnum og tryggð viðskiptavina okkar. Það er gott að geta byggt á þeirri tryggð þegar hægja tekur á í byggingariðnaðinum,“ segir Þor- steinn Víglundsson, forstjóri BM Vallár. Innri vöxtur heilbrigður Mikill vöxtur hefur verið í starf- semi BM Vallár á undanförnum árum. Upphafið var í Pípugerðinni árið 2001 og í kjölfarið fylgdu síð- an kaup á Steinprýði 2002, Möl og sandi á Akureyri og Sandi Ímúr 2003 sama ár og fyrirtækið opnaði starfsstöð á Reyðarfirði. „Stærsta einstaka skrefið var þó stigið árið 2006 er við festum kaup á öllu hlutafé í Límtré - Vírneti ehf. Loks festum við kaup á Smellinn á Akranesi hf. í nóvember á síðasta ári. Félög þessi hafa öll verið sam- einuð BM Vallá. Allan þennan tíma hefur innri vöxtur félagsins hins vegar einnig verið mjög heil- brigður og við höfum séð að þessar einingar hafa stutt vel hver við aðra,“ segir Þorsteinn Víglunds- son. BM Vallá er með starfsstöðvar í Reykjavík, Garðabæ, Akranesi, Borgarnesi, Akureyri, Ólafsfirði, Reyðarfirði, Flúðum, Reykholti og Þorlákshöfn. Fyrir þremur árum voru starfsstöðvar fyrirtækisins að- eins þrjár og veltan 1,5 milljarðar. Í dag er hún hins vegar orðin liðlega 9,3 milljarðar og starfsmennirnir um 470 talsins. Breitt vöruframboð BM Vallá mun á sýningunni Verk og vit kynna breitt vöru- framboð fyrirtækisins auk þeirra byggingalausna sem í boði eru. Þannig starfrækir fyrirtækið öflug- ar hönnunardeildir fyrir húsein- ingaframleiðslu og byggingasvið sem hnýta saman vöruframboð í heildstæðar byggingarlausnir eftir því sem við á hverju sinni. „Við sérhæfum okkur í burð- arvirkjum húsa,“ segir Þorsteinn Víglundsson. „Við getum boðið viðskiptavinum okkar allt milli himins og jarðar í þeim efnum ef svo mætti að orði komast, allt frá þaki niður í frárennsli. Í burð- arvirkjum bjóðum við upp á stein- steypu, forsteypt einingahús, stál- grindahús og límtréshús. Þá erum við með yleiningar fyrir þök og veggi, klæðningarefni, múrvörur, þakefni, saum, hurðir og glugga, loftræstibúnað, þakrennur, hellur og steina og frárennsli og svo mætti áfram telja. Stöðugt er unn- ið að vöruþróun einstakra vöru- flokka auk þess sem nýjum vöru- tegundum er bætt inn.“ 24stundir/RAX Fyrirtækið BM Vallá er alltaf að þróast og stækka Gæðin skila okkur traustri stöðu ➤ Velta BM Vallár fór úr 1,5 í9,3 milljarða kr. á fimm ár- um. ➤ Nýjar einingar styðja hvervið aðra. ➤ Fyrirtækið hefur sérhæftsig í burðarvirkjum. BM VALLÁVið veitum ekki afslátt af gæðunum, segir Þor- steinn Víglundsson hjá BM Vallá en fyrirtækið hefur stækkað mikið á undanförnum árum og aukið jafnframt vöruúr- val sitt. Mikill vöxtur í starf- semi BM-Vallár „Af- sláttur er aldrei veittur af gæðum,“ segir Þorsteinn Víglundsson. Þrjú svið Reykjavíkurborgar munu í sameiningu kynna starfsemi sína á sýningunni. Framkvæmdasvið Reykjavík- urborgar mun kynna 1, 2 og Reykjavík, sem er yfirskrift víð- tæks samráðs Reykjavík- urborgar við íbúa í hverfum borgarinnar um viðhaldsverk- efni og smærri nýframkvæmdir í borgarumhverfinu. Einnig mun sviðið kynna nýtt og öfl- ugt framkvæmda- og eignasvið. Þá mun skipulags- og bygging- arsvið kynna vinningstillögu um framkvæmdir í Vatnsmýr- inni og Veldu þér stað, sem er úthlutunaráætlun fyrir nýbygg- ingarsvæði. Loks mun um- hverfissvið kynna vistvænan skrifstofurekstur og Græn skref í Reykjavík. Grænu skrefin Grænu skrefin fela í sér vistvæn skref til að bæta umhverfismál í borginni. Þeirra á meðal má nefna nýjar innkaupareglur borgarinnar þar sem vistvæn innkaup eru meg- inregla og meirihluti bílaflota Reykjavíkurborgar verður visthæf- ur. Einnig að göngu- og hjólreiða- stígurinn frá Ægisíðu upp í Elliða- árdal verði breikkaður, upphitaður og vatnshönum þar fjölgað. Á Höfðaborgarreitnum „Sameiginlegt þema verður það að skipulagsmál, framkvæmdir, umhverfismál og velferðarmál munu fljótlega sameinast í einu húsnæði á hinum nýja Höfðaborg- arreit,“ segir Davíð P. Steinsson, skipulags- og byggingarsviði. Fjögur svið Reykjavíkurborgar á einn og sama staðinn Auðveldar samvinnu Reykjavíkurborg Kynnir starfsemi sína. Dúkþak ehf, Melabraut 24, 220 Hafnafirði, sími 564-1030 dukthak@dukthak.is • www.dukthak.is Ecoseal er umhverfisvænn þakdúkur. Hann inniheldur eingin skaðleg efni fyrir umhverfið. Ecoseal veitir 15 ára ábyrgð. Dúkþak ehf veitir 10 ára ábyrgð á vinnu. Ecoseal dúkurinn stenst alla alþjóðlega staðla og ís- lenskar reglugerðir. Það er mikilvægt að hafa umhverfisvæna valkosti í þakhönnun. Aukin gæði þakefna eru líka æskileg. Ecoseal er styrktur dúkur sem hefur báða fyrrnefnda kosti og það sem meira er, á samkeppnishæfu verði. Þök, svalir og þakgarðar Við sérhæfum okkur í lagningu á þakdúk fyrir stór og smá hús þar sem fólki líður vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.