24 stundir - 16.04.2008, Page 41
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 41
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Íslandsmót iðngreina verður hald-
ið samhliða Verki og viti dagana
18. og 19. apríl í anddyri gömlu
Laugardalshallarinnar. „Mark-
miðið með mótshaldinu er að
vekja athygli á iðnnámi, hvað er í
boði og hvað fólk fer að gera að
námi loknu,“ segir Tryggvi Thayer,
verkefnisstjóri mótsins fyrir hönd
Iðnmenntar. Iðnmennt sér um al-
mennan undirbúning og skipulag
mótsins en AP-almannatengsl sjá
um kynningu og framkvæmd.
„Með keppninni viljum við gefa
ungu fólki tækifæri til að koma og
sjá hvað fólk sem stundar þetta
nám gerir og fá þá raunhæfari hug-
mynd um hvað þetta snýst. Maður
hefur þá tilfinningu að upplýs-
ingaflæði um iðn- og starfsnám sé
ekki eins gott og um bóklega nám-
ið sem er að vissu leyti skiljanlegt
því þetta er ekki eitt ákveðið náms-
umhverfi eða skyldar greinar. Þetta
eru gjörólíkar greinar og nám í
mörgum af þessum greinum er
byggt öðruvísi upp.“
Breytt iðnnám
Það eru alls skráðir 77 kepp-
endur á Íslandsmótinu og að þessu
sinni verður keppt í 11 greinum
s.s. málmsuðu, trésmíði, pípulögn,
bílaiðngreinum, múrverki, mál-
araiðn, dúklagningum, hársnyrt-
ingu og mörgu fleira.
Tryggvi segir að Íslandsmót iðn-
greina hafi verið haldið þrisvar áð-
ur en þá undir yfirskriftinni Ís-
landsmót iðnnema. „Þá kepptu
skólarnir hver við annan í ýmsum
greinum en nú verður fyr-
irkomulag mótsins með öðrum
hætti og nemarnir keppa hverjir
við aðra. Ástæðan er helst sú að
iðnnám hefur tekið ýmsum breyt-
ingum og margar greinar eru
kenndar á fáum stöðum eða jafnvel
einum stað þar sem skólar hafa
verið að sérhæfa sig meira en áður
var.“
Krefjandi verkefni
Í ár stendur mótið yfir í tvo daga
og samkvæmt Tryggva er meira
lagt í keppnisgreinarnar nú en áð-
ur. „Viðfangsefnin eru veigameiri
og meira krefjandi. Einnig eru
reglur um þátttöku aðeins rýmri
þannig að mótið er ekki bara fyrir
þá sem eru í námi heldur líka fyrir
þá sem hafa nýlokið námi. Það er
22 ára aldurstakmark í mótinu og
ein af helstu ástæðunum fyrir því
er að samræma þetta við erlend
mót sem við höfum þátttökurétt í.
Þannig verður þróunin í framtíð-
inni, að Íslandsmótið verði und-
ankeppni fyrir Evrópumót og
heimsmót.“
Markmiðið með breyttu fyr-
irkomulagi mótsins er meðal ann-
ars að auka þátttöku atvinnulífsins
í mótinu og efla tengslin milli þess
og iðnskólanna. „Iðnfélögin hafa
alltaf verið mjög sterkir bakhjarlar
iðnnáms hér á landi,“ segir
Tryggvi. „Þau áttu ríkan þátt í að
koma iðnnámi á laggirnar á sínum
tíma og hafa haft mikil áhrif á
hvernig það hefur þróast. Tilgang-
urinn með mótshaldinu er einnig
að vekja athygli atvinnulífsins á því
hvað hægt er að gera til að námið
haldi áfram að þróast og eflast.“
Íslandsmót iðngreina verður haldið 18. og 19. apríl
Athygli vakin á iðnnámi
Íslandsmót 2007 Íslandsmótið er með breyttu fyrirkomulagi í ár.
➤ Íslandsmót iðngreina verðurundanfari og forkeppni ein-
stakra keppnisgreina fyrir
þátttöku í Euro Skills og
World Skills sem er alþjóðleg
keppni iðngreina.
➤ Evrópumótið var haldið í Jap-an í fyrra en verður í Kanada
á næsta ári.
➤ Menntamálaráðuneytiðstyrkir þátttöku í Íslands-
mótinu og erlendu samstarfi.
EVRÓPUMÓTMarkmið Íslandsmóts
iðngreina er að vekja at-
hygli á iðn- og starfs-
menntun og þeim tæki-
færum sem felast í námi
og starfi í iðngreinum.
Tryggvi Thayer Verkefnisstjóri Íslands-
móts iðngreina
24stundir/JónSvavarsson