24 stundir


24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 50

24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Þótt fjölgun golfáhugamanna hér- lendis undanfarin ár sé með hrein- um ólíkindum er alltaf nokkur hópur fólks sem gefst upp eftir fyrstu skiptin enda meira en að segja það að hitta golfkúlu svo vel sé í fyrstu atrennu. Og ekki er held- ur laust við að þeir sem hafa náð undirstöðuatriðunum gefist upp þegar hvað mest blæs á móti. 24 stundir tóku hús á þremur golfkennurum sem allir eiga ágæt- an feril að baki í faginu og grein- inni og lagði fyrir þá nokkrar spurningar varðandi golf og golf- kennslu. Mestu byrjendamistökin? Úlfar: Tæknilega er það hversu margir beygja vinstri handlegg of mikið og sveifla kylfunni þar af leiðandi of langt í aftursveiflunni. Sigurpáll: Vitlaust grip. Brynjar: Að halda að golf sé ein- föld íþrótt. Mestu mistök lengra kominna? Úlfar: Þeir reikna alltaf með full- komnu höggi og hafa ekki nægilega gott leikskipulag. Sigurpáll: Ekkert leikskipulag og fara ekki eftir því þegar svo er. Einnig er of algengt að fólk dragi upp dræver á par fjögur og par fimm brautum sem er ekki alltaf vænlegt til árangurs. Brynjar: Oft gleyma kylfingar að setja upp leikskipulag og margir taka of oft erfiðu leiðina að hol- unni og spila þar af leiðandi erfið högg. Hversu margar kennslustundir þarf byrjandi áður en árangur sést? Úlfar: Mjög einstaklingsbundið og fer eftir því hversu viðkomandi æfir sig mikið sjálfur. Sigurpáll: Sumir ná tökum á golfi eftir örfáa tíma meðan aðrir eiga í basli í langan tíma. Eitt er hins vegar ljóst og það er að allir geta lært golf og það vel með tíð og tíma. Brynjar: Byrjandi þarf klukku- stund með mér og eftir það er bolt- inn farinn að fljúga mjög vel og nemandinn farinn að sveifla eins og á að sveifla. Æfingasvæðið eða úti á velli? Úlfar: Það þarf að æfa sig á báð- um stöðum. Tæknilega hliðin lær- ist á æfingasvæðinu en golfið sjálft verður að lærast á völlum landsins. Sigurpáll: Þarna þarf jafnvægi. Eitt er að skjóta vel á æfingasvæð- inu en annað úti á velli. Að mínu viti á öll kennsla að fara meira fram í leik á velli en og ég kenni þannig sjálfur. Brynjar: Þessir tveir þættir þurfa að vera í góðum hlutföllum. Eng- inn nær árangri með eintómum æfingum á æfingasvæðinu og öf- ugt. Skipta græjurnar máli? Úlfar: Ár frá ári er ekki mikill munur á græjum en síðustu tíu til fimmtán ár hafa orðið miklar framfarir, sérstaklega í dræverum, og engin spurning að framþróun þar hefur hjálpað kylfingum. Sigurpáll: Nýrri græjur í golfinu eru almennt til batnaðar að mínu mati. Brynjar: Góðar kylfur sem passa hjálpa klárlega leikmanni að ná ár- angri. Það þýðir samt ekki að allir þurfi alltaf að hafa það nýjasta hverju sinni. Skemmtilegasti íslenski völl- urinn? Úlfar: Golfvöllurinn í Vest- mannaeyjum er mjög skemmtileg- ur og eins er Grafarholtið af öft- ustu teigum afar skemmtilegt. Best líður mér þó á Hvaleyrarvelli í góð- um félagsskap. Sigurpáll: Völlurinn á Akureyri er einstakur og ég get ekki beðið eftir að það verði búið að endur- nýja allar flatirnar fyrir norðan. Brynjar: Grafarholtið er einstakt að mínu mati enda alltaf sérstakur sjarmi yfir honum frá mínum bæj- ardyrum séð. Að auki eigum við fína velli á borð við Urriðakotsvöll, Keili og Vestmannaeyjar. Þó að fjölgun sé í golfinu eru alltaf nokkrir sem heltast úr lestinni Allir geta náð góðum tökum á golfi Það kannast flestir við að fyrstu skrefin í golfinu geta vægast sagt verið hræðileg lífsreynsla, því að eins einfalt og þetta virðist vera í sjónvarpi er raunin önnur og bara það að hitta litlu hvítu kúluna við fætur manns burtséð hvert hún fer getur ald- eilis tekið á taugarnar. Þrír af hæfustu golfkenn- urum landsins, Sigurpáll Geir Sveinsson, Úlfar Jónsson og Brynjar Eldon Geirsson eru þó sammála um að hver sem er geti náð góðum tökum á golf- íþróttinni standi sann- arlega vilji til. Einfalt mál Eins og í öllu öðru skiptir æfingin höf- uðmáli til árangurs. ÚLFAR JÓNSSON 30 mínútna stakur tími í golfkennslu hjá Úlfari kostar 3800 krónur. Inni- falin er svokölluð vídeógreining en hópar geta enn- fremur fengið ýmis pakkatilboð. „Áhugamenn ættu svona alla jafna ekki að verða mikið varir við þetta í leik sínum,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands, en sam- bandið hefur kynnt á vef sínum nokkrar breytingar sem orðið hafa á forgjafarkerfinu hérlendis. Miða þær breytingar að því að samræma íslensku reglurnar að fullu við þær er gilda í Evrópu. Þrennt er þar nýtt eða frábrugð- ið því sem verið hefur að sögn Harðar. „Í fyrsta lagi munu nú veð- urfar og vallaraðstæður í mótum hafa áhrif á skor keppenda. Reikni- aðferðin er flókin en í stuttu máli má segja að séu aðstæður góðar og þorri keppenda spilar vel getur það orðið til hækkunar þegar upp er staðið og svo öfugt ef aðstæður eru slæmar. Í öðru lagi verður nú for- gjöf hvers og eins skoðuð árlega og leiðrétt ef svo ber undir. Segja má sem dæmi að sé kylfingur með 10 í forgjöf en spili sjaldan og sé þá langt frá þeirri forgjöf þá geti for- gjafarnefndir hækkað forgjöf hans um allt að þremur í stað kerfisins nú sem aðeins lækkar viðkomandi um 0,1 fyrir hvert skor yfir forgjöf. Svo er komin svokölluð virk forgjöf og þeir sem ekki eru með slíka geta ekki unnið til verðlauna í mótum sem dæmi. Kylfingar þurfa að skila fjórum gildum skorum árið á und- an til að hljóta virka forgjöf.“ Breytingar á forgjafarkerfinu hérlendis Samræmist nú reglum Evrópu Kennir bæði erlend- is á vegum ferða- skrifstofa og eins hér heima hjá golf- klúbbnum Kili. Stakur 30 mínútna tími hjá Sigurpáli kostar 3000 krónur SIGURPÁLL SVEINSSON Brynjar er íþrótta- stjóri GR og eigandi Progolf. 30 mínútur hjá honum kosta 5000 krónur en margs konar grein- ing þar innifalin auk toppaðstöðu. BRYNJAR GEIRSSON VORIÐGOLF lifsstill@24stundir.is a Veðurfar og vallaraðstæður á mótum geta nú haft áhrif á skor keppenda. Reikniaðferðin er flókin en í stuttu máli má segja að séu aðstæður góðar og þorri kepp- enda spili vel getur það leitt til hækkunar og svo öfugt. Ráðhús Reykjavíkur Miðvikudag 16. apríl. kl. 20:30 Aðgangur ókeypis Ný tónlist HILMAR JENSSON Stórsveit Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.