24 stundir - 16.04.2008, Side 51

24 stundir - 16.04.2008, Side 51
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 51 Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Okkur bauðst þetta tækifæri og það er svo mikill metnaður hjá Kili og uppgangur í unglingastarfinu að við gripum tækifærið feginshendi,“ segir Ingi Rúnar Gíslason, yfirþjálf- ari golfklúbbsins Kjalar í Mos- fellsbæ, en hann hefur veg og vanda af því að sjö ungir og efni- legir strákar úr klúbbnum æfa sig nú sem aldrei fyrr fyrir stórt og til- tölulega erfitt erlent mót er heitir US Kids European Masters og fer fram í mekka golfsins, Skotlandi, eftir rúman mánuð. Ekki er algengt að klúbbar landsins sendi félagsmenn sína ut- an til keppni og enn sjaldgæfara að unglingsstrákar fái slíkt tækifæri enda er tilhlökkunin eðlilega mikil og stífar hafa æfingarnar verið frá því ákvörðunin um að taka þátt var tekin í febrúar. Að sögn Inga er hugmyndin að strákarnir öðlist mikilvæga reynslu í slíkri keppni erlendis. „Það er annað en að keppa hér heima og í raun eðlilegt skref í framþróun unglingastarfsins en þetta er dýrt og margir sem þurfa að hlaupa undir bagga. Ég efast hins vegar ekki um að strákarnir búa að svona reynslu um langan tíma og öll slík reynsla hjálpar til lengri tíma litið.“ Að sögn framkvæmdastjóra Kjalar, Hauks Hafsteinssonar, gengur fjáröflun bærilega en áætl- anir gerðu gróflega ráð fyrir að kostnaður vegna fararinnar yrði um ein og hálf milljón. Strákarnir ásamt þjálfara sín- um. Mótherjarnir í Skotlandi eru ekki af verri endanum en þeir ís- lensku láta sér fátt um finnast. Sjö strákar úr Kili keppa á sterku móti í Evrópu í næsta mánuði Skeleggir í víking til Skotlands Þeir heita Aron Skúli Ingason, Birnir Snær Ingason, Björn Óskar Guðjónsson, Gísli Ólafs- son, Guðni Valur Guðna- son, Hans Blomsterberg og Heiðar Atli Styrk- ársson og eftir 39 daga keppa þeir á sterku golf- móti í Skotlandi. Verkefni á borð við það sem golf- klúbburinn Kjölur hefur nú tekist á við er dýrt og sérstaklega nú þegar pund og evrur hafa hækkað veru- lega síðan í febrúar. Allur stuðn- ingur er þess vegna vel þeginn. Þeim sem styrkja vilja það er bent á að hafa samband við þjálfara Kjalar Inga Rúnar Gíslason á net- fanginu ingigolf@gmail.com. KOSTNAÐARSAMT Agi Strákarnir æfa mun stífar þessa dag- ana vegna mótsins sem framundan er Undirstöðuatriðin Æft er í fínni aðstöðu hjá Sporthúsinu í Kópavogi 24stundir/Ómar Flestir yrðu nokkuð sáttir við að hafa eignast rúma eina milljón króna fyrir að spila golf í nokkra mánuði nema ef vera skyldi að um keppnismann á evrópsku móta- röðinni væri að ræða. Þannig er ástatt um Birgi Leif Hafþórsson at- vinnukylfing en verðlaunafé hans hingað til á mótaröðinni nemur rétt tæplega 1,1 milljón þegar þriðjungur móta hefur verið spil- aður. Dugar það engan veginn til að halda í við þá fremstu enda situr Birgir nú í 240. sæti af 300 ein- staklingum er þátttökurétt hafa. Markmið Birgis fyrir þessa leik- tíðina var að lenda ekki í þeirri stöðu sem hann var löngum í á sínu fyrsta ári á mótaröðinni þegar hann var tæpur lengi vel. Birgir komst aðeins inn nú vegna góðs gengis á sérstöku úrtökumóti. Miðað er við að 120 efstu menn hvert ár á peningalistanum haldi keppnisrétti milli ára og er Birgir nú þegar 5,4 milljónum króna á eftir þeim er situr í sæti 120. Mun lengra er eðlilega í efstu menn en sá sem situr í 20. sæti hefur unnið sér inn 35 milljónir króna það sem af er. Ekki gengur nógu vel hjá okkar manni á evrópsku mótaröðinni Í sæti númer 240 Birgir Leifur í leik Þó enn sé nægur tími til stefnu þarf hann að fara að næla sér í al- vöru upphæðir. Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700  Plata Sverris Berg- manns, sem heitir bara Bergmann, er komin út. » Meira í Morgunblaðinu „Þungu fargi af mér létt“ Miðvikudagur 16. apríl Það er meira í Mogganum í dag Misstressaðir útskriftarnemar  Nemendur á lokaári Listaháskóla Íslands eru misjafnlega stressaðir fyrir útskriftarsýningu sína. » Meira í Morgunblaðinu reykjavíkreykjavík  Rekstur plötubúðar Smekkleysu borgaði sig ekki og því verður henni lok- að um næstu mánaðamót. »Meira í Morgunblaðinu Endalok Smekkleysu

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.