24 stundir - 16.04.2008, Síða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir
Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur
Opið mán-lau kl. 11-17
Sendum frítt um land allt
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
ULL OG SILKI
Full búð af nýjum vörum
Hitavermar, Angora, Silki, Merino.
Einnig mikið úrval af
brjóstagjafarfatnaði.
Gardínur og
ljós í stíl
Feim - Lene Bjerre -
Bæjarlind 6 - www.feim.is
opið virka daga 10 - 18, laugardaga 11 -16
Morðingjar
á kreiki
Rokkhljómsveitin Morðingj-
arnir sem nýlega gaf út plötuna
Áfram Ísland mun halda tvenna
útgáfutónleika á næstunni, annars
vegar á Akureyri þann 18. apríl á
Græna hattinum og hins vegar í
Reykjavík þann 25. apríl í Iðnó.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00
og er miðaverð 1000 kr.
Hið merkilega við báða viðburði
er þó nafngift upphitunarhljóm-
sveitanna. Á tónleikunum á Ak-
ureyri hitar hljómsveitin Akureyri!
upp, en á tónleikunum í Reykjavík
hitar hljómsveitin Reykjavík! upp,
ásamt Sudden weather change.
Ku Bóas, söngvari Reykjavíkur!,
hafa stungið upp á hljómsveit-
arnafninu Akureyri! við þá norð-
anmenn á balli þeirra fyrrnefndu,
sem tóku hann á orðinu. Gaman
að þessu.
Morðingjarnir halda
tvenna útgáfutón-
leika á næstunni
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Kvikmyndin 21, eða Svartipétur,
fjallar um afburðanemandann Ben
Campbell sem þráir það heitast að
fá inngöngu í Harvard. En fái hann
ekki fullan skólastyrk neyðist hann
til þess að safna 300.000 dollurum
fyrir náminu. Hann kemst í hóp
skólasystkina sinna í MIT, sem
undir leiðsögn háskólaprófessors-
ins Micky Rosa stundar kerf-
isbundið fjárhættuspil, 21, í Las
Vegas um helgar. Þau hafa komið
sér upp kerfi, þar sem þau telja
spilin og beita síðan líkinda-
reikningi til að sigra, sem er lög-
legt, en illa liðið af spilavítaeigend-
um.
Vikið frá sanneikanum
Myndin er byggð á metsölubók-
inni Bringing Down the House,
sem skrifuð var um raunverulegan
hóp MIT-nema sem stunduðu
þessa iðju í alvöru. Sú saga er þó
töluvert frábrugðin myndinni, en
alls ekkert síðri og í raun undarlegt
þegar Hollywood sér sig knúna til
að betrumbæta og ýkja ótrúlega
sögu sem þarf ekki á slíkum við-
bótum að halda. Myndin hefur til
dæmis verið harðlega gagnrýnd
fyrir að gera aðalsöguhetjurnar
hvíta á hörund, þegar í raunveru-
leikanum var um nema af asísku
bergi brotna að ræða. Myndin er
hins vegar ágætis skemmtun, þó
aldrei nái hún að komast á al-
mennilegt flug. Leikurinn er þó
góður sem og tónlist og útlit
myndarinnar. Handritið er hins
vegar alltof fyrirsjáanlegt og nær
aldrei upp neinni spennu. Sér-
staklega er ótrúverðugt atriðið þar
sem Micky er beittur veikum rök-
um til þess að snúa aftur að spila-
borðinu, sem er lykilatriði. Ágæt
kennslumynd fyrir spilafíkla þó.
Sannleikurinn er sagna bestur
Heppinn í spilum og ástum
Ben daðrar við Jill.
Leikstjóri: Robert Luketic Leikarar: Jim
Sturgess, Kevin Spacey, Kate Bosworth
21
Á sumardaginn fyrsta fara fram
sérstakir tónleikar norður í landi
þar sem Jón Jósep Snæbjörnsson,
Jónsi, stígur á stokk og syngur
með söngfélaginu Sálubót.
Haldnir verða tvennir tónleikar,
annars vegar á Akureyri og hins
vegar í Ýdölum. Tengsl Jónsa við
söngfélagið eru nokkur en hann
var í sveit hjá einum meðlima fé-
lagsins á unga aldri. „Þetta er
fólkið mitt úr sveitinni. Mínir
fyrstu aðdáendur voru kýrnar
Huppa og Skjalda, ég söng af
Massey Ferguson fyrir þær,“ segir
Jónsi sem bíður spenntur eftir að
komast aftur í sveitina. vij
Jónsi syngur í
sveitasælunni
Hljómsveitin Jagúar fer í tón-
leikaferð til Eystrasaltslandanna
og Finnlands 24. til 26. apríl.
Hljómsveitin kemur fram á
Jazzkaar-hátíðinni í Eistlandi,
Kaunas Jazz-hátíðinni í Litháen
og loks April Jazz-hátíðinni í
Finnlandi.
Jagúar hefur látið lítið fyrir sér
fara undanfarnar vikur, en sveitin
sendi frá sér sína fjórðu breið-
skífu, Shake it Good, í fyrra.
Jagúar hitar upp fyrir ferðalagið
með miðnæturtónleikum á Org-
an næstkomandi föstudagskvöld.
1.000 krónur kostar inn á tón-
leikana.
Jagúar í
austurveg
Tónlistaráhugamenn bíða
mánudagsins 21. apríl eflaust með
mikilli eftirvæntingu, en þá kemur
út sjöundi diskurinn í Rokklands-
seríunni, Rokkland 2007. Hefur
umsjónarmaður Rokklandsþátt-
anna á Rás 2, Ólafur Páll Gunn-
arsson, sérvalið 41 lag á þessa tvö-
földu safnplötu með dyggri aðstoð
rokk-ömmunnar Andreu Jóns-
dóttur. Fyrstu plötuna prýða bestu
lög tónlistarársins 2007 og má þar
nefna listamenn á borð við Rufus
Wainwright, Mugison og Blonde
Redhead, ásamt laginu Freight Tra-
in með Lay Low, Ólöfu Arnalds og
Pétri Ben, sem hefur ekki komið
áður út á diski, en var eitt vinsæl-
asta lagið á Rás 2 í fyrra.
Á seinni disknum er síðan að
finna gamla og góða slagara frá
ýmsum tímum. Þar eru sveitir eins
og Utangarðsmenn, The Ramones,
Chuck Berry, The Clash og Little
Richard svo einhverjir séu nefndir.
Diskinn má nálgast í öllum betri
plötubúðum.
traustis@24stundir.is
Rokkland 2007 kemur út
Óli rokk Óli Palli hefur verið með
Rokkland sleitulaust frá árinu 1995.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Ég er löngu farinn að líta á Eyþór
sem vin í stað keppinautar. Ann-
aðhvort er Bubbi að leita að mér
eða honum,“ segir Arnar Már
Friðriksson, keppandi í Bandinu
hans Bubba.
Arnar og Eyþór Ingi Gunn-
laugsson syngja til úrslita í Band-
inu hans Bubba á Stöð 2 á föstu-
dagskvöld. Þeir skiptu með sér
fyrsta og öðru sæti í söngkeppni
framhaldsskólanna í fyrra, en þá
sigraði Eyþór. Arnar vonar að
sætaskipan verði öfug í ár þótt
milljónirnar þrjár, sem eru í fyrstu
verðlaun, skipti hann litlu. „Mér er
skítsama um peningana,“ segir
hann. „En auðvitað vil ég vinna!
Annars væri ég ekki í þessu. Ég lít
samt svo á að enginn tapi. Við er-
um báðir sigurvegarar.“
Brengluð tilviljun
Arnari finnst það skemmtileg
tilviljun að mæta Eyþóri á ný og
skipta með honum fyrstu sæt-
unum tveimur. „Það er brenglað.
Mjög töff. Það sýnir að við erum
að gera eitthvað rétt. Eyþór er flytj-
andi sem ég lít mjög mikið upp
til,“ segir hann.
Aðdáun Arnars á Eyþóri virðist
vera gagnkvæm, en Eyþór segist
bera mikla virðingu fyrir Arnari.
„Arnar er klárlega stórkostlegasti
söngvari sem ég hef heyrt í lengi.
Það er gríðarleg orka í þessum
manni,“ segir hann.
Ekki sigurviss
Eyþór er ekki sigurviss og telur
að Arnar muni veita harða keppni
á föstudagskvöld. „Ég held að það
sé komið að því að hann nái fram
hefndum,“ segir Eyþór. „En að
sjálfsögðu berst ég fyrir mínu.“
Verðlaunaféð keyrir Eyþór ekki
áfram frekar en Arnar og að-
spurður hvort peningarnir herði
keppnina segir Eyþór ekki svo vera.
„Það er engin græðgi hérna meg-
in,“ segir hann.
Eyþór og Arnar skipta með sér fyrsta og öðru sæti á ný
„Mér er skítsama
um peningana“
Hver sigrar? Arnar og Eyþór
syngja til úrslita á föstudag.
➤ Níu keppendur kepptu til úr-slita sem hófust 29. febrúar.
➤ Í verðlaun eru þrjár milljónirkróna, plötusamningur og
staða í Bandinu hans Bubba.
➤ Gestadómari á föstudag verð-ur bárujárnsrokkarinn Eiríkur
Hauksson.
BANDIÐ HANS BUBBA
Söngvararnir Eyþór og
Arnar, sem syngja til úr-
slita í Bandinu hans
Bubba á föstudagskvöld,
lentu í fyrsta og öðru sæti
í Söngkeppni framhalds-
skólanna í fyrra.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Arnar er klárlega stórkostlegasti
söngvari sem ég hef heyrt í lengi.
Það er gríðarleg orka í þessum manni.