24 stundir - 16.04.2008, Síða 61
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 61
JAKKAR
frá 3.990 kr.
RÚV klukkan 20.10
Private Practice er bandarísk
þáttaröð þar sem fylgst er með
Addison Montgomery, lækni í
Grey’s Anatomy-þáttunum.
Hún heimsækir gömul skóla-
systkini sín til Kaliforníu.
Einkalíf þeirra er í molum en
þeim gengur betur í starfi og
Addison bræðir það með sér
að flytjast frá Seattle til Santa
Monica og vinna með þeim.
Á nýjum stað
Stöð 2 klukkan 20.20
Eins og nafnið gefur til kynna
leggur Tim Gunn línurnar í
stíl, hönnun og tísku í hinum
nýja þætti sínum, Tim Gunn’s
Guide to Style. Í hverjum
þætti tekur Tim misalvarleg
tískuslys upp á sína arma og
kennir þeim að klæða sig við
hæfi. Ómissandi þáttur fyrir
þá sem vilja vita hvernig er
best að klæða sig.
Tískulöggan
Skjár Einn kl. 21.50
Lipstick Jungle er glæný þátta-
röð sem byggð er á met-
sölubók frá höfundi Sex and
the City. Aðalsöguhetjurnar
eru þrjár valdamiklar vinkon-
ur í New York. Wendy reynir
að sanna að hún sé góð móðir
og tekur dóttur sína með á
samkomu til heiðurs konum í
fjölmiðlageiranum en það
endar öðruvísi en ætlað var.
Ný beðmál
Stöð 2 Sport kl. 19.05
Í kvöld eigast við Keflavík og
ÍR í hreinum úrslitaleik um
hvort liðið fær að mæta sterku
liði Snæfells í úrslitum Ice-
land Express-deildarinnar.
Eftir að ÍR hafði náð að kom-
ast 2-0 yfir í einvígi liðanna
sýndi lið Keflavíkur mikinn
styrk með því að vinna síðustu
tvo leiki og jafna metin. Það
verður því leikið til þrautar í
kvöld, með tilheyrandi hörku
og kjaftbrúki.
Lokarimman
HÁPUNKTAR
Samkvæmt nýjasta tölublaði TV Guide er
ljóst að enn mun fækka í leikaraliði hinna gríð-
arlega vinsælu þátta CSI. Leikarinn Gary Dour-
dan hefur tilkynnt framleiðendum þáttanna að
hann vilji hætta að koma fram í þáttunum og
snúa sér að einhverju öðru. Dourdan, sem leik-
ur hinn svala rannsóknarmann og spilafíkil
Warrick Brown í þáttunum, hefur leikið í þátta-
röðinni frá því að hún hóf göngu sína árið 2000
og er því líklegt að aðdáendur þáttanna muni
sjá eftir honum.
Dourdan verður annar leikarinn sem yfirgef-
ur þáttaröðina á innan við ári en leikkonan
Jorja Fox, sem lék Söru Sidler, yfirgaf þáttaröð-
ina í nóvember síðastliðnum, en síðasti þáttur
leikkonunnar var einmitt sýndur á Skjá einum
síðastliðið mánudagskvöld.
Engin uppgjöf hjá framleiðendum
Þrátt fyrir að tveir af aðalleikurum þáttarað-
arinnar hafi nú yfirgefið eða ákveðið að segja
skilið við þættina er engan bilbug að finna hjá
framleiðendunum.
William Petersen hefur þegar endurnýjað
samning sinn við þáttaröðina og fastlega er
reiknað með því að afgangurinn af aðalleik-
urum þáttaraðarinnar, George Eads og Marg
Helgenberger, muni gera slíkt hið sama. Fram-
leiðendur eru nú þegar farnir að gera ráðstaf-
anir vegna brotthvarfs Dourdans og eru farnir
að auglýsa eftir nýjum leikara í hans stað. Leik-
arinn kemur til með að fara með hlutverk Ray
Santoro, hins myndarlega, gáfaða hasarkropps
sem gengur til liðs við eina mögnuðustu lög-
gæslumaskínu sjónvarpssögunnar. vij
Yfirvofandi mannabreytingar í CSI
Dourdan fer frá Las Vegas