24 stundir - 26.04.2008, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir
HEYRNARÞJÓNUSTA
!" #$#%
&'()*(+,-.)/*(
&'()*(0&()1
&'()*(2,.
(3/456
) 7 888%#% 9 2
!"
Dot er góður punktur
fyrir þá sem vilja heyra vel.
Þessi punktur er agnarsmátt heyrnartæki
sem með nýjustu tölvutækni bætir við heyrnina
þeirri tíðni sem notandinn hefur tapað.
Hringdu og láttu okkur fræða þig meira um
þessa undraverðu tækni.
Heimsins minnstu heyrnartæki koma frá ReSound . . . . . . . . . . .
ÓB
RE
YT
T
VER
Ð!
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Í prófuninni með bóluefnið Neu-
Vax, sem verkar gegn brjóstakrabba-
meini þar sem próteinið Her2neu
finnst í einhverju magni í frumun-
um, kom fram að færri dauðsföll
urðu í hópi þeirra sem efnið fengu
en í viðmiðunarhópnum. Bóluefnið
virtist líka draga úr líkum þess að
meinið kæmi aftur, en þau áhrif
voru ekki tölfræðilega marktæk.
Lítill rannsóknarhópur
Linda Benavides, einn rannsak-
enda, bendir á að þótt þessi áhrif
hafi ekki verið tölfræðilega marktæk
sé ekki loku fyrir það skotið að
bóluefnið virki.
Bendir hún á að rannsóknarhóp-
urinn hafi verið fremur lítill en þátt-
takendur voru 163 konur. Af þeim
fengu 92 bóluefnið en 71 fengu það
ekki og voru í hlutverki viðmiðun-
arhóps.
Í næstu prófun, sem hefst í haust,
verða yfir 700 þátttakendur um all-
an heim og því margfalt meiri líkur
á að tölfræðilega marktæk áhrif
greinist.
Verkar á hættulegustu gerð
Bóluefnið kennir ónæmiskerfinu
að þekkja próteinið Her2neu sem
greinist í 75% tilfella brjóstakrabba-
meina. Það greinist í miklu magni í
um 25% tilfella brjóstakrabba-
meina, sem eru hættulegustu mein-
in. „Í slíkum tilfellum er mest hætta
á endurkomu meinsins og dauðs-
falli,“ segir Benavides.
Af þeim hópi sem mikið hafði af
próteininu í krabbameinsfrumum
létust þrefalt færri í þeim hópi sem
bóluefnið fékk en í viðmiðunar-
hópnum, eða 3% á móti 9%.
Verkaði bóluefnið sérstaklega vel
á þau tilfelli þar sem lítið eða með-
almikið greindist af próteininu,
þvert á væntingar, því 7% slíkra til-
fella í viðmiðunarhópnum létust
meðan á 30 mánaða tilrauninni
stóð, en enginn í hinum hópnum.
Notkunin gæti orðið almenn
Þó bóluefnið NeuVax sé ætlað til
þess að draga úr endurkomu
brjóstakrabbameins, útiloka rann-
sakendur ekki að notkun þess verði
almennari.
„Á endanum vonumst við til að
geta prófað lyfið á konum sem eru í
miklum áhættuhópi en þær próf-
anir eru erfiðari í framkvæmd en
prófanir á krabbameinssjúklingum.
Við þurfum að tryggja að lyfið virki
áður en við hefjum slíkar prófanir,“
segir George Peoples, stjórnandi
rannsóknarinnar, í samtali við
24stundir.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Brjóstakrabbamein Herjar á
10% kvenna á vesturlöndum.
➤ Gengur undir heitunum Neu-Vax og E75.Á að vera ódýrt
fyrir sjúklinga enda einfalt að
gerð, að sögn rannsakenda.
➤ Einkaleyfi er í höndum Apt-hera Inc., líftæknifyrirtækis í
Scottsdale, Arizona.
➤ Eina aukaverkunin semgreinst hefur er væg flensu-
einkenni daginn sem spraut-
að er.
BÓLUEFNIÐ
Margfalt færri dauðsföll voru hjá þeim sem fengu bóluefnið
Ekki útilokað að notkun bóluefnisins verði almenn
Dregur úr
dauðsföllum
„Fóðrið verður fullkomlega
samkeppnishæft varðandi
verð og gæði,“ segir dr. Þor-
leifur Ágústsson lífeðlisfræð-
ingur og einn hugmynda-
smiða að stofnun
fyrirtækisins Murrs ehf.,
kattafóðurverksmiðju sem bú-
ið er að stofna á Súðavík.
Skapar verksmiðjan á bilinu
3-5 störf og áætlað er að fram-
leiðsla hefjist í júní. Verður
fóðrið unnið úr hráefni frá
Norðlenska sláturhúsinu og
væntanlega selt í verslunum
Bónuss.
„Við byrjum á blautfóðri fyrir
ketti en við erum með fleiri
hugmyndir, m.a. línu fyrir
hunda, sem gætu komið í
framhaldi,“ segir Þorleifur. þkþ
Nýtt fyrirtæki í Súðavík
Kattafóður úr
gæðahráefni
Íslendingurinn sem dæmdur var
til sjö ára fangelsisvistar í Færeyj-
um fyrir þátt sinn í fíkniefnamáli
sem kennt hefur verið við skútuna
Pólstjörnuna hefur í samráði við
lögmann sinn ákveðið að áfrýja
ekki dómnum. Ola Jákup Kristóf-
fersen lögmaður Birgis Páls Mar-
teinssonar sagði í samtali við
Fréttavef Morgunblaðsins að Birgir
Páll vildi ekki taka þá áhættu að
dómurinn yrði þyngdur upp í þau
10 ár sem ákæruvaldið fór fram á
og sömuleiðis vildi hann ekki
hætta á að vera vistaður áfram í
Færeyjum eða jafnvel Danmörku á
meðan áfrýjunin væri tekin fyrir.
„Það gæti tekið allt frá hálfu og
upp í heilt ár,“ sagði Kristóffersen.
Hann bætti því við að ákæruvaldið
hefði frest til miðnættis í kvöld til
að áfrýja dómnum en hann sagðist
ekkert hafa heyrt hvort slíkt stæði
til eður ei. mbl.is
Pólstjörnumálið í Færeyjum
Íslendingurinn
áfrýjar ekki dómi
Tuttugu neyðarkerrur sem
nokkur slökkvilið á landsbyggðinni
fengu afhentar í nóvember sl. eru
veikbyggðar og standast ekki þær
kröfur sem eðlilegt er að gera til
þeirra. Þetta segir Kristján Einars-
son, slökkviliðsstjóri Brunavarna
Árnessýslu.
Kerrur þessar eru hengdar aftan
á slökkviliðsbíla og eru af tveimur
gerðum; önnur inniheldur reyk-
köfunarbúnað en hin búnað til að
nota þegar eiturefnaslys verða.
Kerrurnar allt of fáar
„Á Suðurlandi öllu erum við
með þrjár kerrur; eina í Vest-
mannaeyjum, og tvær á Hvols-
velli,“ segir Kristján. „Þessar kerrur
eru ætlaðar fyrir slökkviliðin frá
Þorlákshöfn og austur að Klaustri.
Það er allt of stórt svæði fyrir að-
eins þrjár kerrur.“
Þegar varnir gegn eiturefnaslys-
um voru færðar frá ríki til sveitar-
félaga fyrir tæpum tveimur árum,
voru 100 milljónir færðar til sveit-
arfélaga vegna málaflokksins. Þar
af var ákveðið að 65 milljónir
skyldi nota í kaup á umræddum
vögnum, og haldið útboð á vegum
Ríkiskaupa.
Að sögn Björns Karlssonar
brunamálastjóra var ákveðið að
leggja mestan hluta peningsins í
búnað kerranna frekar en kerrurn-
ar sjálfar. Varð niðurstaðan sú að
tilboði var tekið um kerrur sem
kostuðu 590 þúsund og búnað sem
kostaði um eina og hálfa milljón
með hverjum vagni.
„Það hefði verið hægt að taka til-
boði með dýrari og sterkari kerr-
um. En þá hefðum við bara fengið
færri kerrrur. Auðvitað hefði ég
kosið að settur yrði meiri peningur
í þennan málaflokk,“ segir Björn.
hlynur@24stundir.is
Segir neyðarkerrur ekki standast kröfur
Vondar brunakerrur