24 stundir - 26.04.2008, Blaðsíða 25

24 stundir - 26.04.2008, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN aSóley TómasdóttirMarkmið þeirra er að hafa raun- veruleg áhrif eftir lýðræð- islegum leið- um, að þau séu tekin alvarlega og til- lögur þeirra afgreiddar með sama hætti og til- lögur fullorðna fólksins Sjöundi fundur borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna var haldinn þann 22. apríl síðast- liðinn. Að vanda lögðu ung- mennin fram vel undirbúnar og ígrundaðar tillögur og hlutu verðskuldað hrós af hálfu kjör- inna fulltrúa. Mikilvægi ungmennalýðræðis Markmiðið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna er að skapa vettvang til að gera ung- mennum kleift að koma skoð- unum sínum á framfæri, en jafn- framt að veita þeim fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnu- brögðum. Starfsemin er afar mik- ilvæg fyrir okkur öll. Fyrir ung- mennin, fyrir borgarfulltrúana og fyrir Reykvíkinga alla. Ungmenni sem taka þátt í slíku ráði eflast sem einstaklingar. Þau læra að setja fram og rök- styðja mál sitt, taka þátt í mál- stofu í borgarstjórn og kynnast lýðræðislegum ferlum. Málsmeð- ferð í stjórnsýslu Reykjavíkur er hluti af því. Önnur ungmenni eignast fyr- irmyndir og öðlast trú á að þau geti haft áhrif, þótt þau hafi ekki kjörgengi eða kosningarétt – og heilt yfir teljast ungmenni vera hópur sem skiptir máli í sam- félaginu. Kjörnir fulltrúar geta þannig með beinum hætti eflt sjálfsmynd og kjark ungmenna í borginni, hljóti Reykjavíkurráðið þann sess sem því ber. Fyrir okkur, kjörna fulltrúa, er starf Reykjavíkurráðsins og ung- mennaráðanna ekki síður dýr- mætt. Þar koma fram sjónarmið sem skipta máli og við fáum hressandi tilbreytingu frá því að tala alltaf bara hvert við annað. Við þurfum að taka afstöðu til óvenjulegra tillagna og setja okk- ur inn í mál sem sjaldan eru til umræðu meðal fullorðinna. Ungmennaráðin og Reykjavík- urráð ungmenna efla þannig ungmenni í Reykjavík, auka víð- sýni borgarfulltrúa og ítreka mik- ilvægi samtals milli kjörinna full- trúa og umbjóðenda. Sýndarlýðræði í borgarstjórn Starfshættir borgarstjórnar hafa allt frá upphafi hamlað því að ungmennaráðin virki sem skyldi. Tillögum ungmennanna hefur verið vísað til afgreiðslu í fagráðum, en þar hefur þær und- antekningalítið dagað uppi. Formleg afgreiðsla hefur sjaldan farið fram og ungmennin ekki fengið lyktir sinna mála. Oftar en ekki hafa tillögurnar því verið lagðar fram ár eftir ár á hinum árlega fundi, ungmennin gagn- rýnt kjörna fulltrúa fyrir skeyt- ingarleysi, en allt kemur fyrir ekki. Tillögurnar gleymast, týnast eða hverfa. Á fundinum þann 22. apríl reyndu kjörnir fulltrúar að hug- hreysta ungmennin með því að einhverjar tillagnanna hefðu með óbeinum hætti haft áhrif á stefnumótunarvinnu á fagsviðum borgarinnar. Ekki var á ung- mennunum að skilja að þau sættu sig við slíkt, enda skiljan- legt. Markmið þeirra er að hafa raunveruleg áhrif eftir lýðræðis- legum leiðum – að þau séu tekin alvarlega og tillögur þeirra af- greiddar með sama hætti og til- lögur fullorðna fólksins. Sam- þykktar, felldar, þeim vísað frá eða til frekari vinnslu. Þannig virkar það lýðræði sem þau eru að þjálfa sig í. Þekking á öllu Á fundi borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna áttu sér stað heitar umræður um mál- efni sem brenna á ungmennun- um, m.a. viðbrögð borgarinnar við veggjakroti, forvarnafræðslu og lífsleikni. Í ræðum ungmenn- anna kom fram ákall um samráð í þeim málaflokkum sem þau varðar. Samtalið milli yngra og eldra fólks er mikilvægt. Skilningur kjörinna fulltrúa á aðstæðum og þörfum ungs fólks er takmark- aður og eykst ekki nema með samtali. Enginn núverandi borg- arfulltrúi hefur tekið þátt í lífs- leikni sem er tiltölulega nýtt fag, forvarnarfræðslu þarf að aðlaga núverandi hættum sem steðja að börnum og ungmennum, og menningarheimur veggjakrots hefur gerbreyst frá því sem var. Stefna borgarinnar í veggjakrots- málum er stefna fullorðinna, án samráðs við ungmenni. Ekki get- ur það talist farsæl leið til að fara og gildir þá hið forkveðna: Ekkert um okkur án okkar! Það er afar brýnt að borgar- stjórn Reykjavíkur taki fagnandi tilboði eins fulltrúanna, Gunnars Inga Magnússonar, um að kjörn- um fulltrúum væri frjálst að leita til þeirra varðandi öll þau mál sem þeir væru orðnir „of gamlir“ til að hafa þekkingu á. Tillögur til úrbóta Á næsta borgarstjórnarfundi mun undirrituð leggja fram til- lögu um eflingu ungmennalýð- ræðis í Reykjavík. Þar verður gert ráð fyrir að fagráð borgarinnar skuli afgreiða tillögur Reykjavík- urráðsins innan tilskilins frests, en jafnframt verði settur á lagg- irnar samráðshópur ungmenna og borgarfulltrúa sem í samein- ingu móti stefnu í málefnum sem varða ungmennin beint s.s. rekstri félagsmiðstöðva og ung- mennaráða, eflingu lífsleikni- og forvarnarfræðslu, viðbrögðum við veggjakroti og fleira í þeim dúr. Ég vil að lokum þakka fulltrú- um í Reykjavíkurráði ungmenna fyrir þrautseigju og kjark, trú á lýðræðið og dug til að hafa áhrif á samfélagið sem við erum öll hluti af. Framtíðin verður björt ef fram heldur sem horfir. Höfundur er varaborgarfulltrúi Mikilvægi ungmennaráða Agnarsmá brot úr eilífð hefur að geyma ljóð sem Ólafur Ragnarsson, fyrrum bókaútgefandi og fréttamaður, orti síðustu tvö ár ævi sinnar. „Bókin hans Ólafs er gimsteinn og perlurnar í henni snerta viðkvæma strengi í brjósti hvers manns.“ –Skúli Jón Sigurðarson, fyrrv. forstöðum. Rannsóknarnefndar flugslysa „Síðdegisútvarpið mælir með þessari fallegu ljóðabók.“ – Rás 2 „Ólafur hefur ljóðskáldstaugar, er persónulegur og hlýr og er næmur fyrir landi og umhverfi. En mesta athygli vekur þrekmikið æðruleysi og afstaða hans til lífs og dauða.“ – Matthías Johannessen skáld. 1. SÆTIMETSÖLULISTIEYMUNDSSONAR23. APRÍL 2008 INNBUNDINSKÁLDVERK ÞREKMIKIÐ ÆÐRULEYSI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.