24 stundir - 26.04.2008, Page 30

24 stundir - 26.04.2008, Page 30
30 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 24stundir Þótt enginn sé ég aðdáandi rík- islögreglustjórans, þá ber ég fulla og óskoraða virðingu fyrir hinni al- mennu lögreglu og leita hiklaust til hennar þegar ég þarf á að halda. Þeim mun dapurlegra fannst mér að horfa upp á framgöngu lög- reglumanna við Rauðavatn í fyrra- dag. Þar gerði lögreglan afar hryggileg mistök með hörkulegri framgöngu sem var ekki í neinu samræmi við tilefnið, hin víðfrægu mótmæli vörubílstjóra. Þetta segi ég alveg burtséð frá því hvaða skoðun ég hef á mótmælum bílstjóranna. Vissulega er ýmislegt óljóst í því hvað fyrir þeim vakir, og vissulega má gagnrýna eitt og ann- að sem þeir hafa sagt og gert. Þegar málið snýst um það hvernig lögreglumenn beita valdi sínu gagnvart almennum borgur- um, þá kemur það bara málinu akkúrat ekkert við. Dómgreindarleysi Í fyrsta lagi: Ef það var markmið aðgerða lögreglunnar að opna veg- inn meðfram Rauðavatni og koma umferð í eðlilegt horf, þá er ljóst að það mistókst – og mistókst gjör- samlega. Telja verður öruggt að vegurinn var lokaður miklu lengur beinlínis vegna aðgerða lögreglunnar en annars hefði orðið. Og ef það er rétt sem bílstjórar halda fram (og ég hef ekki orðið var við að lögreglan hafi treyst sér til að mótmæla því) að handtökur og aðrar aðgerðir lögreglunnar hafi hafist rétt í þann mund að bílstjór- arnir ætluðu seint og um síðir að byrja að fjarlægja bíla sína, þá verð- ur enn augljósara hve misráðnar þessar aðgerðir lögreglunnar voru. Hafi lögreglan viljað handtaka fyrr eða síðar bílstjóra sem hún taldi seka um ólöglegar aðgerðir, þá var þetta ekki tímapunkturinn til þess. Og bar vott um dómgreindar- leysi að láta einmitt þá til skarar skríða. Rauð dula Í öðru lagi: Viðbúnaður lögregl- unnar með hjálma sína, óeirða- skildi, reiddar kylfur og táragas- brúsa var ekki í neinu samræmi við framgöngu bílstjóra fram að þessu. Víst höfðu bílstjórar brotið um- ferðarlög trekk í trekk, að dómi lögreglunnar, og þeir höfðu þumb- ast við að framfylgja skipunum lögreglunnar dagana á undan. En alltaf gert það á endanum og aldrei verið með neina tilburði til ofbeldis. Að veifa þessum viðbúnaði framan í bílstjóra var því eins og að vingsa rauðri dulu framan í naut. Það bar líka vott um dóm- greindarleysi. „Gas, gas!!“ Í þriðja lagi: Rétt var það hjá Herði Jóhannessyni, yfirmanni í lögreglunni í Kastljósi, að mynda- tökur af lögreglu handtaka fólk með valdi líta aldrei vel út. Og mið- að við myndir sem við höfum séð af óeirðalögreglu í útlöndum þar sem hún lumbrar á mótmælendum af ýmsu tilefni, þá var þetta nú ekk- ert svakalegt. En samt; lögreglumennirnir sem gengu fram öskrandi: „Gas, gas!!“ og sprautuðu meira og minna af handahófi í átt að mannfjölda sem virtist svo sem ekki aðhafast neitt sérstakt – hvað voru þessir tveir menn eiginlega að gera? Töffaraskapur Í fjórða lagi: Orð sem einhver yf- irmaður lögregluaðgerðanna lét falla í viðtali við Láru Ómarsdóttur áður en hamagangurinn hófst, þau hljómuðu takk fyrir ekki mjög vel. Lára sagði eitthvað á þá leið að lögreglan hefði verið gagnrýnd fyr- ir að hafa tekið mun harðar á mót- mælum Saving Iceland á sínum tíma heldur en mótmælum bíl- stjóra nú og hann sagði (nánast orðrétt): „Bíddu aðeins með þenn- an formála, því eftir nokkrar mín- útur færðu að sjá þegar við látum verkin tala.“ Svo leið nú víst heillangur tími þangað til handtökur hófust, en látum það liggja milli hluta – það sem hér skiptir máli er að þessi orð lögreglumannsins voru til vitnis um töffaraskap. Það sem fólst í orðunum var: „Sjáðu bara rétt bráðum hvernig við munum taka þá!“ Og á viðkvæmum stundum í samskiptum borgaranna við lög- reglu (jafnvel þótt borgararnir í þessu tilfelli kunni að vera dálítið þreytandi bílstjórar), þá vil ég ekki að stjórnendur lögregluaðgerða láti stjórnast af töffaraskap. Margoft meðan ég fylgdist með þessu, þá hugsaði ég: „Þetta hefði nú Sæmi rokk getað leyst þannig að allir skildu sáttir.“ Bara með því að taka nokkur dansspor. Ekki rétta tilefnið Ég styð það eindregið að lögregl- an á Íslandi sé í stakk búin til að grípa til nauðsynlegra og jafnvel mjög afgerandi aðgerða þegar brýna nauðsyn ber til. En mér fannst þetta ekki vera það tilefni. Og ég hugsaði með mér: Hafa þessir menn eitthvað að gera við Taserbyssur og sprautubíla? Myndu þeir ekki bara nota þetta hvort tveggja á bílstjórana? Þessu beini ég í allri vinsemd fyrst og fremst til lögreglumanna sjálfra. Vekið ekki andúð almennra borgara með töffaraskap og ýkju- kenndum viðbrögðum þegar hægt hefði verið að leysa málið með hægð. Og sóma, fyrir alla aðila. Því miður hafði enginn sóma af þessu tuski upp við Rauðhóla. Enginn sómi aIllugi Jökulsson skrifar um lög-regluaðgerðir Og ég hugsaði með mér: Hafa þessir menn eitt- hvað að gera við Taser- byssur og sprautubíla? Myndu þeir ekki bara notað þetta hvort tveggja á bílstjór- ana? Lögregluaðgerðir Því miður hafði enginn sóma af þessu tuski upp við Rauðhóla. 24stundir/Júlíus Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á einn vinsælasta áfanga- stað Costa Brava strandarinnar við Barcelona, Lloret de Mar. 11 nátta ferð með fullu fæði á hreint ótrúlegum kjörum. Hótel með góðri aðstöðu, garði, sundlaug og veitingastað. Stutt í golf og á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Gríptu tækifærið og tryggðu þér góðan sumarauka á Lloret de Mar á frábærum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Lloret de Mar 12. maí frá kr. 59.990 Mjög takmarkað magn - bókaðu strax! Munið Mastercard ferðaávísunina Ótrúlegt tilboð *** 11 nætur m/fullu fæði Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 59.990 með fullu fæði Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með fullu fæði á Xaine Park *** í 11 nætur, 12. maí. Aukagjald fyrir einbýli kr. 20.000.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.