24 stundir - 26.04.2008, Síða 33

24 stundir - 26.04.2008, Síða 33
ATVINNA LAUGARDAGUR 26. APRÍL AUGLÝSINGASÍMI 510 3728 / 510 3726 H 2 h ö n n u n Icebank er viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi fyrir sparisjóði, innlend sem erlend fjármálafyrirtæki og aðra stærri aðila. Bankinn starfar á sviði erlendra viðskipta, greiðslumiðlunar, fjárstýringar og fjármögnunar í því skyni að veita afmörkuðum hópi innlendra og erlendra viðskiptavina framúrskarandi þjónustu. Með sérhæfingu að leiðarljósi byggir bankinn upp samkeppnishæfa og arðsama starfsemi. Framkvæmdastjóri fjárstýringar er einn af framkvæmdastjórum tekjusviða Icebank og heyrir beint undir bankastjóra. Hann ber ábyrgð á greiningu markaðstækifæra og vöruþróun, daglegri starfsemi sviðsins og þróun þess til skamms og langs tíma. Fjárstýring hefur með höndum daglega lausafjárstýringu bankans, annast viðskipti á millibankamarkaði, stýrir gjaldeyrisjöfnuði og annast gjaldeyrisviðskipti og lánsfjármögnun bankans. Vöru- og þjónustuþróun fer fram á afleiðuborði og mikil áhersla er lögð á hugmyndaauðgi og nýsköpun. Þá ber framkvæmdastjóri ábyrgð á gjaldeyris- og afleiðumiðlun bankans og sölusókn þeirrar einingar. Framkvæmdastjóri fjárstýringar Við leitum að leiðtoga, konu eða karli sem er mjög fær í samskiptum og hefur þekkingu og reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Árangursvitund, frumkvæði og geta til að leiða hóp eru eiginleikar sem við metum mikils. Nánari upplýsingar um starfið veitir Agnar Hansson bankastjóri í síma 540-4000 eða tölvupósti, agnar@icebank.is. Umsóknir sendist til Ernu Arnardóttur, mannauðsstjóra Icebank, erna@icebank.is. Umsóknarfrestur er til 5. maí 2008. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Icebank leitar að reyndum stjórnanda úr fjármálageiranum með brennandi áhuga á fjármála- markaði til að ganga til liðs við og stýra fjárstýringu bankans. Um er að ræða starf sem reynir á frumkvæði, áræði og snerpu þess sem velst til starfsins enda eru verkefnin mörg og krefjandi. Firma specjalizuj·ca si· w systemach ch·odzenia poszukuje elektryka, mechanika lub hydraulika do pracy przy monta·u sprz·tu do ch·odzenia oraz klimatyzacji. Konieczna znajomo·· j. angielskiego. Informacje udzielane s· pod nr. 8675490. DRAUMASTARFIÐ Nafn: Lovísa Hallgrímsdóttir. Starf: Við hjónin eigum og rekum leikskólann Regnbogann í Ártúns- holtinu og ég er jafnframt skólastjóri hans. Ertu í draumastarfinu? Já, svo sannarlega og hef verið allar götur síðan ég útskrifaðist úr gamla Fósturskólanum. Hvað vildir þú verða þegar þú varst lítil? Ég ætlaði að verða hjúkrunarfræðingur. Hvað felur starfið í sér? Faglega starfið, sem er stærsti þáttur starfs míns, er hug- myndavinna með kennurum skólans. Í því felst meðal annars að skapa ljúfan, rannsakandi og metnaðarfullan skóla sem við viljum að leiði til þess að börnin verði sterkir sjálfstæðir einstaklingar og miklir frumkvöðlar, hvert á sínu sviði. Hvaða áhugamál stundar þú utan vinnutíma? Þetta árið er ég forseti Rótarýklúbbs Mosfellsbæjar ásamt því að vera í stjórn Samtaka sjálfstæðra skóla og Samtaka Reggio- skóla á Íslandi. Gerir starfsfólkið eitthvað saman utan vinnu? Já, við gerum ýmislegt saman en reynum þó að hafa það allt í hófi. Stundum gerum við eitthvað óvænt sem skemmti- nefndin undirbýr eða förum í leikhús. Við höfum farið í keilu, haldið þematengd partí, farið saman í sumargöngu og margt fleira. Sérðu fyrir þér að þú munir sækja um annað starf í framtíðinni? Nei. Hver er skemmtilegasti hluti starfsins? Samskipti við allt fólkið og ekki síst börnin. Börn eru afar merkilegt fólk. Börn eru merkilegt fólk

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.