24 stundir - 20.05.2008, Síða 4
Dala-Rafn gegn
olíufélögunum
„Aðalkrafan hljóðar upp á um 8,3
milljónir króna,“ segir Hlynur
Halldórsson, lögmaður útgerð-
arfélagsins Dala-Rafns. Einkamál
félagsins gegn olíufélögunum
Skeljungi, Olís og Ker, áður Olíu-
félaginu, vegna samráðs þeirra á
árunum 1993 til og með meiri-
hluta árs 2001 var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
„Þetta mál snýst um samráð [ol-
íu]félaganna í Vestmannaeyjum
og varðar viðskipti við þau frá
1996,“ segir Hlynur.
Samráð olíufélaganna
Salan þarf sam-
þykki eigenda
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Tillaga um sölu á verkefnum
Reykjavík Energy Invest (REI)
verður að hljóta samþykki eigenda-
fundar Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) til að hún geti orðið að veru-
leika. Þetta kemur fram í áliti Krist-
bjargar Stephensen borgarlög-
manns sem lagt var fyrir borgarráð
síðastliðinn fimmtudag. Kristbjörg
segir stjórnarmenn ekki hafa verið
sammála um hvaða málsmeðferð
tillagan hefði átt að fá. „Í rauninni
var ég að taka af skarið með að það
mætti líta svo á að þarna væri verið
að ganga lengra en eigendasam-
þykktin gerir ráð fyrir og því bæri
stjórninni að vísa málinu inn á eig-
endafund. En málið er rétt fram
sett. Svona tillaga kemur fyrst fram
á stjórnarfundi.“
Þarf atkvæði borgarstjóra
Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi
Samfylkingar í stjórn OR, segir
meirihlutann hafa ætlað að afgreiða
tillöguna án þess að bera hana und-
ir eigendafund. Hún er því ánægð
með álit borgarlögmanns. „Nú þarf
allavega að bera þessa tillögu undir
eigendafund og því þarf atkvæði
borgarstjóra til þess að selja REI eða
hluta þess. Mér finnst það mikil-
vægt því hann lýsti því yfir í frægu
Kastljósviðtali að REI ætti að vera í
100% opinberri eigu og að fylgja
ætti niðurstöðum stýrihópsins. Á
sama tíma voru félagar hans í
meirihlutanum að semja tillögu
um að selja REI, sem síðar varð að
þessari tillögu. Hlutverk stjórnar er
að framfylgja vilja eigenda sinna og
það á ekki að taka ákvarðanir á
stjórnarfundi sem eru þvert á það
sem eigendurnir vilja.“
Vafamál
Kjartan Magnússon, stjórnarfor-
maður OR, segir að vafi hafi leikið
á því hvort tillagan þyrfti að fara
fyrir eigendafund eða ekki. „En
okkur lá ekkert á með þetta mál og
það fór aldrei svo langt að fara í
eitthvað ferli hjá okkur. Ég held að
við séum öll sátt um að þetta sé til
umfjöllunar í stjórninni og ef þetta
verður afgreitt þar þá verður því
vísað til eigendafundar.“
Samþykki á eigendafundi þarf til að selja verkefni REI að mati
borgarlögmanns Stjórn OR getur því ekki afgreitt tillöguna
➤ Samkvæmt tillögunni semlögð var fram 18. apríl síðast-
liðinn á REI að einbeita sér að
ráðgjöf og þróunarverk-
efnum.
➤ Selja á þau verkefni sem ekkifalla í þann flokk.
➤ Tillagan verður tekin fyrir ástjórnarfundi OR í dag.
TILLAGA MEIRIHLUTANS
Orkuveitan Tillaga meirihlutans verður tekin fyrir á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag.
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir
„Það hafa ekki tekist sættir meðal
dómsaðila svo það var óskað eftir
dómskvaðningu matsmanns eða
matsmanna til þess að meta verð-
mæti trjánna sem fóru forgörðum,“
segir Kristinn Bjarnason hæstarétt-
arlögmaður. Skaðabótamál Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur upp á á
þriðja tug milljóna gegn Kópa-
vogsbæ og Klæðningu ehf. vegna
skemmda í Þjóðhátíðarlundi í Heið-
mörk var dómtekið í gær.
„Þetta snýst um það hvort Kópa-
vogsbær sé bótaskyldur gagnvart
Skógræktarfélaginu og þá um hvaða
fjárhæð,“ segir hann.
Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélagsins, segir um
500 tré hafa verið á svæðinu en
þeim hafi flestum verið fargað. Þó
hafi um 50 tré fundist í Hafnarfjarð-
arhrauni. Trén voru um 10 metrar á
hæð svo ekki verður hlaupið að því
að gróðursetja ný í þeirra stað. „Það
er bara stórt skarð þvert í gegnum
lundinn, það er breitt og afspyrnu-
dapurt að sjá,“ segir hann.
„Við vorum með samning við
Reykjavíkurborg svo okkur var
heimilt að fara í gegnum þetta. Við
gerðum þetta allt í samstarfi við
Skógræktina, borgina og Orkuveit-
una,“ segir Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri Kópavogs. „Svo kemur
nýr framkvæmdastjóri sem setur allt
á hvolf, þetta er skrítið mál,“ segir
hann. Hann segist margoft hafa
reynt að ræða við Skógræktarfélagið
en það hafi ekki borið árangur.
„Þetta er komið fyrir dóm svo við
bíðum bara,“ segir hann.
fifa@24stundir.is
Mál Skógræktarfélags Reykjavíkur gegn Kópavogsbæ og Klæðningu
„Þetta er skrítið mál“
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var verð á Pampers Sensitive blautþurrkum,
63 stykkjum í pakka. Verðmunur er þó nokkur og
lægst er það í Nettó og Kaskó eða 309 krónur en hæst í
10-11 og munar tæpum 90%.
Vert er að taka það fram að könnunin er ekki tæm-
andi.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
87% munur á blautþurrkum
Brynhildur
Pétursdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Pampers sensitive blautþurrkur 63 stk.
Verslun Verð Verðmunur
Nettó 309
Kaskó 309
Krónan 399 29 %
Hagkaup 478 55 %
11-11 479 55 %
10-11 579 87 %
www.jonogoskar.is Laugavegur 61 / Smáralind / Kringlan
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 8
1
0
1
7
Stúdentastjarnan og -rósin 2008
fallegar stúdentsgjafir sem fást hjá okkur
14 kt. gull
8.300 kr. Stjarnan
9.300 kr. Rósin
Tilboð til hluthafa
FL Group hf.
Í tengslum við fyrirhugaða afskráningu FL Group hf. af
skipulegum verðbréfamarkaði hefur stjórn félagsins,
með samþykki hluthafafundar 9. maí 2008, ákveðið að
gera hluthöfum félagsins tilboð um að selja hluti sína
í félaginu. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari
skilmála sem fram koma í bréfi sem sent hefur verið til
hluthafa. Tilboðið er gert þeim hluthöfum sem skráðir
voru í hluthafaskrá félagsins samkvæmt uppgerðum
viðskiptum í lok dags 8. maí 2008. Með bréfinu fylgir
lykilorð fyrir hluthafa til þess að taka þátt í tilboðinu
ásamt leiðbeiningum.
Hluthöfum býðst að selja hlutabréf sín miðað við gengið
6,68 fyrir hvern hlut í FL Group hf. Fyrir hlutabréfin
verður greitt með hlutabréfum í Glitni banka hf., miðað
við gengið 17,05 fyrir hvern hlut í Glitni banka hf., eða
um 0,39 hlutir í Glitni banka hf. afhentir fyrir hvern hlut
í FL Group hf. Tilboðið tók gildi hinn 9. maí 2008 kl. 10:00
og gildir til 21. maí 2008 kl. 16:00.
Hluthafar, sem hyggjast taka tilboðinu, skulu fylgja þeim
leiðbeiningum sem fram koma í bréfi til hluthafa. Ef
bréfið, með upplýsingum um tilboðið og lykilorð, hefur
ekki borist hluthafa í seinasta lagi miðvikudaginn 14. maí
2008 skal hann hafa samband við Þjónustuver Glitnis í
síma 440 3725. Þjónustuverið veitir hluthöfum jafnframt
frekari upplýsingar ef þörf er á í tengslum við tilboðið.
Reykjavík, 9. maí 2008
Stjórn FL Group hf.
FL Group | Síðumúla 24 | 108 Reykjavík | Sími 591 4400 | www.flgroup.is
TILBOÐ
345 kr.-
Office1 hringinn í kringum landið:
Skeifunni 17 s: 550-4110, Smáralind s: 550-4140, Hafnarfjörður s: 550-4120, Akureyri s: 550-4150,
Ísafirði s: 550-4170, Egilsstöðum s: 550-4160, Vestmannaeyjum s: 550-4180, Selfossi s: 550-4190
Öflug fyrirtækjaþjónusta sími: 550-4111 pontun@office1.is
Ljósritunarpappír verð áður 598 kr -