24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Íslandshreyfingin skuldar um sautján milljónir króna. Kostnaður
flokksins vegna síðustu alþingiskosninga var rúmar þrjátíu milljónir.
Flokkurinn náði að safna tæpum sjö milljónum í styrki í kosningabarátt-
unni, eftirstöðvarnar fóru í reikning.
Flokkurinn hefur fengið úthlutað úr ríkissjóði 12 milljónum króna en
ríkissjóður úthlutar árlega fé til starfsemi stjórnmálasamtaka sem hafa
fengið einn mann kjörinn á þing eða hlotið 2,5% atkvæða í síðustu alþing-
iskosningum. 5.973 kusu Íslandshreyfinguna sem eru 3,3 prósent atkvæða
og náði engum manni á þing. Rúmlega þrjú hundruð eru skráðir félagar í
flokknum, sem er um 0,1 prósent allra landsmanna.
„Ef ríkisstjórnin heldur og ekki verður boðið til kosninga, munu þessar
árlegu greiðslur frá ríkissjóði næstu þrjú árin duga fyrir okkar skuldum,"
sagði Sólborg Alda Pétursdóttir, gjaldkeri Íslandshreyfingarinnar, í viðtali
við blaðamann 24 stunda og bætti svo við. „Þessar greiðslur munu duga
fyrir skuldunum og vel það og því munum við eiga lítinn sjóð síðasta ár
kjörtímabilsins til að halda áfram."
Lögin um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýs-
ingaskyldu þeirra tóku gildi 1. júní í fyrra. Þau voru sett með það að mark-
miði að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjár-
málum. Einnig að auka traust á stjórnmálastarfsemi og efla lýðræðið.
Engin ástæða er til að agnúast út í Íslandshreyfinguna sem kemur út í
gróða eftir kjörtímabilið án þess að hafa nokkurn mann inni á þingi og
getur því reynt aftur að ná almannahylli. Þannig eru bara lögin. En spyrja
má hvort lýðræðinu sé borgið með því að setja stjórnmálahreyfingar og
þrýstihópa sem reyna að komast inn á þing í áskrift að
almannafé. Þrátt fyrir að viðurlög séu við því að
brjóta lögin, þ.e. að halda ekki bókhald og skila því
ekki til ríkisendurskoðunar, stendur ekkert um hvern-
ig stjórnmálaflokkunum beri að nota fjármunina.
Ætli alþingismenn séu sáttir við lögin og finnist í lagi
að framboð sem hvorki tekst að safna fé til að reka
kosningabaráttu sína né nær hylli nægilegra marga til
að koma manni á þing standi að lokum með milljónir
af skattfé í vasanum? Að ef til vill fáeinir einstaklingar
geti svo ákveðið hvort bjóða eigi aftur fram eða bara
hirða peninginn? Væri ekki eðlilegra að ná í það
minnsta manni á þing í stað þess að miða við ákveðið
atkvæðavægi?
Í áskrift hjá
almenningi
SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST
Yfirlýsingar pólitíkusa um, að
þeim sé ekki sagt fyrir verkum,
segja mér hið gagnstæða. Fólk
talar ekki þannig
nema það hafi
lent í flokks-
pólitískri hakka-
vél. Þorgerði
Katrínu Gunn-
arsdóttur hefur
verið sagt fyrir
verkum. Hún hef-
ur því lýst yfir
andstöðu við aðild að Evrópu-
sambandinu. Sjálfstæðið þéttir
vörnina með því að siða varafor-
manninn. Björn Bjarnason telur,
að umræða um aðild sé hættuleg.
Hún muni skaða flokkinn, leiða
til átaka og síðan kljúfa flokkinn.
Björn tjaldar öllum pakkanum,
talar sem kontrólfrík flokksins.
Jónas Kristjánsson
jonas.is
BLOGGARINN
Kontrólfrík
En hvað gerist: hvorki prins né
prinsessa létu sjá sig. [...]
Óhamingju Íslands verður allt að
vopni: Fyrst
leggst níræði
klámhundurinn í
kör og getur ekki
tekið á móti Ás-
dísi Rán; sóma ís-
lenskra kvenna,
sverði og skildi
og svo verða
krónprins og
krónprinsessa Serbíu veðurteppt
á fögrum vordegi í Belgrad. Og
það örskömmu eftir að serbneska
lýðveldið kaus sér nýjan forseta –
rúmum sex áratugum eftir að
konungdæmið var lagt niður.
Hvað næst, hættir Nancy Sinatra
við að koma til að syngja með
Geir Ólafs?
Árni Snævarr
arni.eyjan.is
Óheppni Íslands
Það er í lagi með homma, araba
og aðra minnihlutahópa ef þeir
halda sig heima hjá sér og láta
mig vera. Ég biðst
forláts en eru
þetta ekki skila-
boðin sem Magn-
ús á blogginu og
Sturla á þingpöll-
um eru að senda
út? Þetta eru
vond skilaboð.
Þetta hjálpar ekki
í litlu þorpunum út um allt land
þar sem fólk ekki af hérlendu
bergi er stærri hluti samfélagsins
en á mölinni. Þetta elur á andúð
og það er afleitt. Það má skýla sér
bakvið opna umræðu og málfrelsi
í svo mörgu en hér er jarð-
sprengjusvæði sem menn ættu að
koma sér af hið fyrsta.
Grímur Atlason
eyjan.is/grimuratlason
Vond skilaboð
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@24stundir.is
Lögmannafélag Íslands tekur undir þá
gagnrýni sem fram hefur komið á ný-
lega reglugerð dómsmálaráðherra um skilyrði gjaf-
sóknar og telur allt of langt gengið í þá átt að
skerða aðgengi almennings að dómstólum.
Málið ristir í raun mun dýpra en það hvort reglu-
gerðin sem slík hafi lagastoð eða ekki. Hún snýst
um þann grundvallarrétt borgaranna að fá úrlausn
deilumála sinna fyrir dómstólum.
Hin nýja reglugerð dómsmálaráðuneytisins, þar
sem tekjuviðmið mögulegra gjafsóknarhafa eru
lækkuð umtalsvert, er í raun önnur atlagan að að-
gengi einstaklinga að dómstólum á stuttum tíma.
Árið 2005 var, að tillögu dómsmálaráðherra, felld
niður heimild til gjafsóknar samkvæmt b. lið 126.
gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Með
þeirri takmörkun var réttur einstaklinga á gjafsókn
í málum sem hafa verulega almenna þýðingu eða
varða verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu
eða aðra einkahagi, felldur niður nema fjárhagur
þeirra væri bágborinn. Í ályktun sem samþykkt var
á aðalfundi Lögmannafélagins í mars 2006, og
beint var til forsætisráðherra og forseta Alþingis,
var þessari takmörkun mótmælt og leiðréttingar
krafist. Engin viðbrögð bárust við þeirri áskorun
félagsins.
Nú er hins vegar enn höggvið í sama knérunn og í
þetta skiptið þrengt að tekjuviðmiðun þeirra ein-
staklinga sem sækja um gjafsókn.
Telur Lögmannafélag Íslands að
með þessu hafi aðgengi ein-
staklinga að dómstólum og mann-
réttindi þeirra, sem er ein grund-
vallarforsenda réttarríkis, verið
skert enn frekar. Lögmannafélag Ís-
lands skorar því á ríkisstjórnina og
Alþingi að breyta reglum um gjaf-
sókn og tryggja með afgerandi
hætti aðgengi þeirra sem á hallar
að dómstólum landsins.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Lögmannafélags Íslands.
Enn höggvið í sama knérunn
ÁLIT
Ingimar
Ingason
ingimar@
lmfi.is
Hagstæð leiga og fyrsta flokks aðstaða
Á laust herbergi sem hentar öllum er þurfa á
vönduðu skrifstofuplássi af hóflegri stærð.
Herbergið er 22m2 með sameign eða um 11m2
herbergið sjálft.
Verð kr. 37.000 með vsk.
Innifalið: hiti, rafmagn, netaðgangur, þrif á sameign,
aðgengi að fundarherbergi með skjávarpa,
kaffiaðstaða og setustofa. Húsgögn geta fylgt.
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 664-6550
FYRIR EINYRKJA
OG LÍTIL FYRIRTÆKI
Auglýsingasíminn er 510 3744