24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 36

24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Rallvertíðin lofar vægast sagt afar góðu þetta árið. Fjöldi þáttakenda nú var mun meiri en fyrir ári og allt stefnir í enn fleiri kepp- endur á næsta móti í rallinu. Þrír ítalskir titlar í röð hjáInter Milan eftir helginaen eina evrópska deild- in, fyrir utan þá ensku, þar sem vottur af spennu fannst fram á síðustu stund var þar í landi. Hefði leikmönnum Inter fatast flugið gegn Parma í loka- leiknum hefðu Rómverjar get- að hreppt titilinn en Inter átti aldrei í vandræðum með Parma, sigraði 0-2 og sendi fornfrægt lið Parma þannig niður um deild. Thierry Henry kvartarsáran yfir að vita ekkertum hvort hann sé í áætlunum verðandi þjálf- ara Barcelona, Pep Guardiola, á næstu leiktíð. Hann er reynd- ar ekki einn um það því Spán- verjinn hefur ekkert látið uppi enn sem komið er og einbeitir sér að því að tryggja varaliði Barcelona, sem hann stjórnar, sæti í annarri deild B á næstu leiktíð. Varalið stórliða Spánar spila sem kunnugt er í neðri deildum landsins en geta þó ekki farið upp í þá efstu. Getur verið að fyrrumlandsliðsþjálfari Eng-lands, Steve McCla- ren, þjálfi í Hollandi á næstu leiktíð? Fjölmiðlar ýja að því eftir að karlinn sat í stúku með eiganda FC Twente og fylgdist með leik Twente og Ajax. Sjálfur segist hann aðeins hafa verið að fylgjast með góð- um knattspyrnuleik. Lítil sem engin eftirspurn hefur verið eft- ir hæfileikum hans eftir að hann fékk sparkið frá enska knattspyrnusambandinu. Stjóri Arsenal er farinn aðlíta í kringum sig hvaðnýja leik- menn varðar. Umboðsmaður Albertos Agu- ilani hjá Roma fullyrðir að Ar- sene Wenger hafi sett sig í samband og forvitnast um kaup á Ítalanum sem þykir einn þeirra flottari meðal yngri leikmanna Ítalíu. Aguilani get- ur og hefur spilað fleiri stöður en eina á vellinum en mest ánægja er með hann á miðj- unni hjá Roma. Þrátt fyrir ágætan árangurChelsea undir stjórnAvrams Grants hefur karlinn við- urkennt það sem fjölmiðlar þarlendir hafa haldið fram; að hann verði vart við stjórnvölinn hjá liðinu á næstu leiktíð þrátt fyrir árang- urinn. Þykir honum mest til lasts að hann þykir innhverfur um of sem er galli þegar forver- inn var hinn sviðsljósglaði Jose Mourinho. Sá er enn kenndur við allnokkur lið. „Ég er viss um að mótin verða mun meira spenn- andi en áður því miklu fleiri kylfingar geta haldið dampi í 36 holur en 54,“ segir Haraldur Heimisson, stigameistari Kaupþingsmótaraðarinnar 2007 en hún hefst að nýju í ár eftir viku á Hellu. Verður hún með því breytta sniði að spilaðar verða 36 holur í stað 54 áður sem flestir telja að geti fært enn meiri spennu í mótið. Kaupþingsmótaröðin er deild þeirra bestu hérlendis og fá 144 bestu kylfingar landsins keppnisrétt á henni. Hápunkturinn er Íslandsmótið í höggleik sem í ár fer fram í Vestmannaeyjum 24. til 27. júlí. Mánuði síðar fer svo fram Íslandsmótið í holukeppni á Grafarholts- velli. Samhliða Kaupþingsmótaröð unglinga þetta árið fer einnig fram Áskorendamótaröð en þar geta þeir keppt sem eru að byrja í golfinu og komast ekki inn á aðal- mótaröð unglinga. Kaupþingsmótaröðin í golfinu hefst um næstu helgi Hella verður fyrsta hindrunin Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Fyrsta keppnin tókst að öllu leyti vel og keppendur almennt mjög ánægðir enda eru þeir talsvert fleiri nú en verið hefur í rallinu hér heima lengi,“ segir Guðmundur Höskuldsson, stigavörður hjá Landssambandi íslenskra aksturs- félaga. Fyrsta rall sumarsins fór fram um helgina og var metþáttaka í öllum fjórum keppnisflokkum. Þeir félagar Sigurður Bragi Guð- mundsson og Ísak Guðjónsson á Lancer Evo sigraðu um helgina með nokkrum yfirburðum en átta mínútur skildu að fyrsta sætið og það fimmta. Forvitnir Allmargir voru mættir á kajann í Hafnarfirði þaðan sem fyrsta rall sum- arsins hófst um helgina. Byrjunin lofar góðu  Fyrsta vorrall rallökumanna fór fram um helgina og tókst vel  Keppendum fjölgað mikið milli ára og spennan því meiri ➤ Niðurstaðan eftir fyrsta mótiðSigurður/Ísak 59.06 Pétur/Heimir 01.00.56 Marian/Jón Þór 01.03.00 Jóhannes/Björgvin 01.05.28 Fylkir/Elvar 01.07.33 HEILDARNIÐURSTAÐA Kristján Einar Kristjánsson ökuþór náði sínum besta ár- angri í Formúlu 3 hingað til um helgina þegar hann náði þriðja sætinu í fimmtu keppni ársins og það á hinni heims- frægu kappakstursbraut Monza á Ítalíu. Voru aðstæður allar samt með erfiðara móti, mikil rigning og meðalhraði talsvert undir því sem best gerist vegna þess. Talsvert var einnig um árekstra sem Krist- ján sneiddi þó listilega hjá. Kristján hinn þriðji Miklar breytingar urðu á lög- um Handknattleikssambands- ins á nýliðnu ársþingi þar sem mestum tíðindum sætti mót- framboð til embættis for- manns sambandsins. Var Guðmundur Ingvarsson þó endurkjörinn til eins árs. Hvað mótið varðar er mesta breytingin sú að fjögurra liða úrslitakeppni fer fram í efstu deild en margir hafa kallað eftir slíkri breytingu síðustu árin. Standa vonir til að áhorf- endatölur hækki í kjölfarið. Aukin ábyrgð Auðvelt Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki byrja leiktíð sína vægast sagt örugglega. Eru þær á toppnum eftir tvo leiki með fullt hús stiga og sjö mörk í plús. Öll önnur lið hafa tapað stigum. Sjö í plús SKEYTIN INN Slakað á Andartökin fyrir startið eru oft taugastrekkjandi Niðurtalning Mun fleiri voru skráðir til leiks nú en voru í fyrra Pittsburg Penguins eru komn- ir í úrslitaleikinn í NHL deild- inni eftir að hafa kaffært Philadelphia Flyers auðveld- lega í fjórum leikjum gegn einum. Sidney Crosby og fé- lagar hafa skautað gegnum andstæðinga sína ótrúlega auðveldlega og unnu fjórða leikinn gegn Flyers 6-0. Þær mæta Detroit í úrslitum.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.