24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 48
24stundir
? Ég leigi hjá ungu pari sem eignaðistnýlega sitt fyrsta barn. Það eru forrétt-indi að fá að fylgjast með hringrás lífsinsáður en ég fjölga mér sjálfur. Barnið hef-ur opnað augu mín fyrir því að ég semfaðir er í besta falli fjarstæðukennd hug-mynd. Þó barnið sé stórkostleg lífvera,þá er ég ekki tilbúinn til að vakna á næt-
urnar til að hugga og skipta á.
En það er ástæða fyrir því að nýfædd
börn eru hávær – náttúran er að sporna
við offjölgun mannkyns á sjálfbæran
hátt. Ef nýfædd börn væru hljóðlát
myndi fólk fjölga sér ótakmarkað vegna
þess að þau eru svo krúttípúttíleg þegar
þau eru ekki vælandi. Kjarnafjölskyldan
væri hjón með 30 börn og skóla-, heil-
brigðis- og velferðarkerfi heimsins væru
löngu sprungin. Þá væri byggð á Íslandi
löngu byrjuð að teygja sig inn á hálend-
ið.
Það er fróðlegt að vera áhorfandi. Eft-
ir að leigusalar mínir eignuðust barn þá
hófst andlegur undirbúningur minn fyr-
ir barneignir framtíðarinnar. Enn sem
komið er hef ég reyndar ekki lært mikið,
enda hvorki verið fenginn til að passa né
skipta á - ég þori varla að halda á
barninu. En ég hef komist að því að
barnið hagar sér svolítið eins og
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner. Líkt
og Hefner þá gerir barnið lítið. Það ligg-
ur bara og sefur þar til það byrjar að
grenja. Þá fær það framan í sig kven-
mannsbrjóst sem er yfirleitt nóg til að
hugga það. Ef það virkar ekki þarf að
skipta á því – líkt og um moldríkt gam-
almenni sé að ræða.
Hringrás lífsins
YFIR STRIKIÐ
Hvers vegna
eru kornabörn
hávær?
Atli Fannar
Bjarkason
ætlar ekki að
fjölga sér strax.
24 LÍFIÐ
Flottasti næturklúbbur Belgrad var
sérpantaður fyrir Íslendingapartí
Eurobandsins í gær-
kvöldi.
Eurobandið með
VIP-partí í gær
»46
Listakonan Marina Abramovic og
Dr. Ruth slitu samstarfi sínu og
komu fram á Listahátíð
hvor í sínu lagi.
Kynlífsgjörningur
rofinn
»46
● Ekki lokið
„Það er mikill
gleðidagur í dag,“
segir Lára Hanna
Einarsdóttir. Hún
hefur verið í far-
arbroddi þeirra
sem andmælt hafa
fyrirhugaðri
Bitruvirkjun en Skipulagsstofnun
lagðist gegn virkjuninni í gær. Lára
Hanna segir baráttunni þó ekki
lokið. „Þetta er álit skipulagsstofn-
unar og það er afdráttarlaust.
Næsta skref finnst mér að ætti að
vera að Orkuveitan hætti við virkj-
unina, Ölfus dragi breytingu á að-
alskipulagi til baka og landið verði
friðlýst, það væri óskaferlið.“
● Áfram Pólland
„Það munu allir
fylgjast með en ég
hef ekki heyrt
pólska lagið
ennþá,“ segir Gra-
zyna María Ok-
uniewska, hjúkr-
unarfræðingur og
varaþingkona Sjálfstæðisflokksins,
aðspurð um hvort að Pólverjar á
Íslandi muni koma saman og
styðja sína þjóð í forkeppni Euro-
vision, en Pólverjar keppa í fyrri
undankeppninni sem fram fer í
kvöld. Grazyna er frá Póllandi en
hefur búið á Íslandi frá árinu 1991.
„Ég veit ekki einu sinni hver syng-
ur lagið en ég mun horfa á keppn-
ina. Ég geri það á hverju ári.“
● Til taks „Við
óskum alltaf að
til þess þurfi ekki
að koma að okk-
ar atkvæði séu
notuð. Það gerist
bara ef símakerfið
klikkar,“ segir
Kristín Björg
Þorsteinsdóttir sem fer fyrir
varadómnefnd Íslands í Eurovisi-
on. Tveimur undankeppnum
fylgir ekki aukið álag fyrir nefnd-
ina. „Íslendingar mega ekki
greiða atkvæði í fyrri und-
ankeppninni en við erum til taks
í þeirri seinni og á laugardeg-
inum.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
King Koil hefur framleitt hágæða rúm í Bandaríkjunum síðan árið 1898 og framleiðir
í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottun frá FCER (Alþjóða rannsóknasamtök
kíropraktora) og Good housekeeping (stærstu neytendasamtök í Bandaríkjunum).
AMERÍSKAR HEILSUDÝNUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI.
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is
VORTILBOÐ
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM
MIKIÐ ÚRVAL FJÖLSTILLANLEGRA
RAFSTÝRÐRA HEILSURÚMA
FRÁ ÞÝSKALANDI OG USA
S Cape Wallhugger mest seldi ameríski
stillibotn í heimi með heilsudýnum frá King Koil
TILBOÐ!
Francisco
Fjölstillanlegt þýskt
heilsurúm með heilsudýnu
(2x90x200)
kr. 499.000
TILBOÐ!
Pablo
Fjölstillanlegt þýskt
heilsurúm með heilsudýnu
(2x80x200)
kr. 315.000
Á RAFSTILLANLEGUM HEILSURÚMUM
Eigandi Flex Music er miður sín
eftir að Eric Prydz afboðaði komu
sína til landsins á síð-
ustu stundu
Eric Prydz var of
þreyttur
»43