24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 42

24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir Eftir Viggó I. Jónasson viggo@24stundir.is „Myndin mun ekki breyta lífi ykkar en ef þið eruð í réttu hugarástandi þá mun myndin breyta skapi ykkar. Þið munið kannski kveina og kvarta og þið munið kannski vera ósátt við stóra, kjánalega loka- atriðið en þið munið aldrei hætta að brosa,“ segir kvikmyndarýnir Empire-kvikmyndaritsins, Damon Wise, í dómi sínum um nýjustu af- urð þeirra Stevens Spielbergs og George Lucas, Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull. Wise er hæstánægður með mynd- ina og gefur henni fjórar störnur af fimm mögulegum. Flestir nokkuð sáttir við Indy Wise er síður en svo eini kvik- myndarýnirinn sem er ánægður með nýjustu ævintýraför hins knáa fornleifafræðings Indiana Jones því flestir dómar um myndina hafa hingað til verið fremur jákvæðir. Á vefsíðunni metacritic.com er myndin með einkunn upp á 68 af 100 mögulegum en einkunnin er fundin út með því að reikna með- altal af þeim dómum sem birst hafa um myndina. Indy lifir áfram Þó svo að flestir séu nokkuð ánægðir með Indy þá þykir myndin síður en svo fullkomin og hafa gagnrýnendur bent sérstaklega á að tölvugerðar tæknibrellur í mynd- inni séu á köflum að kaffæra sög- una og séu ekki í stíl við fyrri myndir. Þessi gagnrýni mun þó síður en svo draga úr áhuga aðdáenda fyrri myndanna á að berja þessa augum og er líklegt að myndin verði vel sótt þegar hún verður frumsýnd hér á landi 22. maí. Svo ætti það ekki að spilla að nú þegar er farið að ræða um fimmtu Indiana Jones-myndina en þar kemur til greina að Harrison Ford verði í aukahlutverki á meðan ung- stirnið Shia LaBeouf sjái um allan hasarinn. Á kunnuglegum slóðum Indy sýnir arf- taka sínum hvar hann kann best við sig. Dómar um nýjustu Indiana Jones-myndina streyma inn Flestir sáttir við Indiana Jones Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull var frumsýnd á Can- nes-kvikmyndahátíðinni um helgina. Dómar um kvikmyndina eru því farnir að streyma inn. ➤ Af þeim dómum sem birsthafa um Indy 4 hefur dómur Empire verið jákvæðastur, 80 af 100. ➤ Neikvæðasti dómurinn birtisthins vegar í breska blaðinu The Guardian, tvær stjörnur af fimm. INDY-DÓMAR Kvikmyndir traustis@24stundir.is Í Harold & Kumar Escape from Guantanamo Bay segir af vinunum hörundsdökku, Harold og Kumar, sem eru handteknir fyrir misskiln- ing á leið sinni til Amsterdam og sendir til Guantanamo Bay, þaðan sem þeim tekst að flýja. Markmið þeirra er að komast í brúðkaup fyrrum kærustu Kumars, svo þeir geti hreinsað mannorð sitt og Kumar geti unnið kærustuna aftur. Staðalímyndir og tabú Það er ekki annað hægt að segja en að húmorinn sé frekar einhæfur í þessari grínmynd. Hún setur sér það markmið eitt að gera grín að sem flestum staðalímyndum, minnihlutahópum og tabú-málum eins og rúmast í einni kvikmynd. Suðurríkjamenn, svertingjar, músl- imar, arabar, gyðingar, hommar, fangaverðir, hasshausar og George W. Bush fá allir fyrir ferðina í myndinni, sem á löngum köflum tekst að vera þokkalega fyndin og skemmtileg. Hún er gerð til að hneyksla og hræra aðeins í pólitísk- um réttrúnaðar-hugsunarhætti, sem full þörf er á í nútímaþjóð- félagi þar sem varla má prumpa án þess að farið sé fram á umhverf- ismat og grenndarkynningu. Vandamálið er að myndin gerir þetta bara ekki alveg nógu vel. Því þó að hún sé nokkuð beinskeytt, og komi áhorfendum í opna skjöldu á tíðum, getur hún ekki flokkast undir neitt annað en formúluunglingamynd með snið- ugum, kjánalegum og neyð- arlegum húmor í besta falli, í stað þess að vera sprenghlægileg. Það er fullljóst að þessi mynd Kaldhæðni, klof og kannabisreykingar mun hneyksla margan góðborg- arann, enda markmið hennar að vissu leyti. Því má segja með nokk- urri vissu að hún höfði heldur til yngri áhorfenda en eldri. En þessi mynd á best heima á leigunum, eða sem stolinn „fæll“ í fartölvu fermingarkrakka. Yfirheyrsla Hinn vitgranni laganna vörður eys úr skálum heimsku sinnar. Little Britain-tvíeykið, David Walliams og Matt Lucas, er nú að undirbúa innrás sína á Bandaríkja- markað þar sem það hyggst kynna Bandaríkjamönnum ekta breskan húmor. Nú þegar hefur það verið gert opinbert að tvíeykið trítilóða sé að vinna að bandarískri útgáfu af Little Britain-þáttunum, sem verða sýndir á HBO-sjónvarps- stöðinni, en ef eitthvað er að marka Variety-kvikmyndaritið þá leynist mun meira í pokahorninu hjá hinum bráðfyndnu Bretum. Variety greinir frá því að Walli- ams og Lucas séu um þessar mundir að vinna að tveimur bíó- myndum, með sitt hvoru kvik- myndaverinu. Annars vegar eru þeir að vinna að mynd með DreamWorks kvik- myndaverinu en svo einnig með hinu breska Working Title kvik- myndaveri sem hefur meðal ann- ars sent frá myndir á borð við Ato- nement og Hot Fuzz. Little Britain þættirnir hafa sleg- ið rækilega í gegn um heim allan en þættirnir hófu göngu sína sem útvarpsþættir á BBC árið 2003 en sökum vinsælda var ákveðið að færra þættina yfir í sjónvarpið. vij Með tvær myndir í vinnslu 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Þessi mynd á best heima á leigunum, eða sem stolinn „fæll“ í fartölvu fermingarkrakka. Leikstjórar: J. Hurwits og H. Schlossberg Leikarar: John Cho, Kal Penn Harold & Kumar Escape from Guantanamo Bay Hörfatnaður frá Pause Café Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum Fákafeni) www.gala.is • S:588 9925 Opið 11-18 og 11-16 lau. Stærðir 34-52 HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Grennandi meðferð Rétt verð 55.700 kr. Sumartilboð 29.200 kr. CELLÓNUDD: Kemur blóðrásinni af stað, hjálpar til við frekara niðurbrot og losar líkamann við eiturefni. HÚÐBURSTUN: Opnar húðina og gerir leirnum kleift að fara vel inn í hana. HLJÓÐBYLGJUR: Brjóta niður fitu. VAFNINGAR: Leir er borinn á húðina sem gerir hana stinna, silkimjúka og er jafnframt mjög vatnslosandi. Síðan er notaður Universal líkamsvafningur en með honum missir þú að minnsta kosti 16 cm í hvert skipti. FLABÉLOS: Að lokum er gott að fara í nokkrar mínútur í Flabélos tækið. hringið núna í síma 577 7007 OPIÐ TIL 9 af völdum vörumGJAFA DAGAR Matar og kaffistell ásamt öðrum gjafavörum til sýnis á uppdekkuðum borðum á gangi Kringlunnar. Velkomin brúðhjón að skrá óskalistann www.tk.is Líttu við - Sjón er sögu ríkari

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.