24 stundir - 20.05.2008, Side 11
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 11
Konunglega bókasafnið í
Kaupmannahöfn hefur nú
safnað saman nánast öllum
tólf frumteikningunum af
Múhameð spámanni sem ollu
miklu fjaðrafoki í Mið-
Austurlöndum og víðar,
nokkrum mánuðum eftir birt-
ingu þeirra í Jyllands-Posten á
haustmánuðum 2005.
Samkomulag hefur náðst við
listamennina um að skop-
myndirnar verði ekki hafðar
til sýnis fyrr en í fyrsta lagi
eftir tíu til fimmtán ár, af ótta
við hryðjuverk. Mikil mót-
mæli brutust út í múslíma-
ríkjum í kjölfar birtingar og
var danski fáninn brenndur
og ráðist á sendiráð. aí
Múhameðsmyndir
Öruggar á bak
við lás og slá
Mósambískar löggur
Of feitir til að
veita eftirför
Mósambískum lögreglu-
mönnum verður öllum skipað
að taka þátt í sérstöku heilsu-
átaki, þar sem margir þeirra
eru taldir vera of feitir til að
geta veitt glæpamönnum eft-
irför.
Talsmaður innanríkisráðu-
neytisins segir að slæmum
lífstíl væri um að kenna.
„Margir eru með of stóran
maga, drekka óhóflega og
reykja. Sumir eru svo stórir að
það hefur áhrif á heilsu þeirra
og getu þeirra til að hlaupa.
Þeir eru of hægir og stirðir
sem gerir þeim ókleift að elt-
ast við glæpamenn eða að
bregðast skjótt og koma þann-
ig koma í veg fyrir glæpi.“ aí
Verkfall í Danmörku
Í pössun til
ömmu og afa
Verkfall leikskólakennara í
fimmtán sveitarfélögum í
Danmörku hófst í gær. Kenn-
ararnir eru að mótmæla lág-
um launum sínum og gripu til
verkfalls í þeim fimmtán sveit-
arfélögum þar sem borg-
arstjórar hafa talað harðast
gegn hækkun launa, þar á
meðal í Óðinsvéum, Esbjerg,
Árósum og Horsens.
Foreldrar 122 þúsund barna
þurfa nú að útvega börnum
sínum pössun yfir daginn og
sýnir nýleg könnun að í 80
prósentum tilfella hyggist þeir
leita aðstoðar hjá sínum eigin
foreldrum. aí
Kínverjar flögguðu í hálfa stöng og minntust
látinna með þagnarstund í gær þegar þess var
minnst að vika væri liðin frá því að öflugur jarð-
skjálfti reið yfir Sichuan-hérað. Þriggja daga
þjóðarsorg hófst í landinu í gær.
Á vef BBC segir að þetta sé í fyrsta sinn sem
stjórnvöld votti fórnarlömbum hamfara virð-
ingu með þessum hætti. Bann hefur verið lagt
við allar skemmtanir og allir sjónvarpsmenn
klæddust svörtu í útsendingu.
Rúmlega 71 þúsund manns eru nú látnir eða
týndir, en nánast útilokað er talið að fleiri finn-
ist á lífi í rústum húsa.
Úrhellisrigning, flóð og aurskriður
Mikið hjálparstarf hefur staðið alla vikuna, en
miklir eftirskjálftar og úrhellisrigning hefur gert
hjálparstarfsmönnum erfitt fyrir. Þannig hafa
um tvö hundruð hjálparstarfsmenn týnt lífi á
síðustu fjórum dögum eftir að hafa grafist undir
í aurskriðum. Mennirnir unnu flestir að því að
lagfæra skemmda vegi og gera hjálparliði þannig
auðveldara að koma hjálpargögnum til þeirra
sem búa í afskekktum þorpum og misstu heim-
ili sín.
Fjárhagslegt tjón mikið
Kínastjórn áætlar að fjárhagslegt tjón af völd-
um skjálftans nemi jafnvirði rúmlega 900 millj-
arða íslenskra króna.
Björgunarstörf eru nú í auknum mæli farin
að snúast um að sjá bágstöddum fyrir mat,
heilsuþjónustu og húsaskjóli. Ekkert lát virðist
vera á rigningunni á hamfarasvæðunum og ótt-
ast margir að flóð og aurskriður kunni að valda
enn frekari vandræðum. atlii@24stundir.is
Vika liðin frá jarðskjálftanum í Sichuan-héraði
Þriggja daga þjóðarsorg hafin í Kína
Þjóðarsorg Þúsundir manna komu saman á Torgi hins
himneska friðar í Peking í gær.
FRÁ
SAUMAKONU
TIL ZÖRU TIL
Hádegisfyrirlestur
fimmtudaginn 22. maí kl. 11:00
Háskólinn í Reykjavík
Ofanleiti 2
MANNAUÐUR er samstarfsverkefni
Háskólans í Reykjavík, Landsbankans, Deloitte,
Árvakurs og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Landsbankinn er meginstyrktaraðili verkefnisins.
Saumakonan sem stofnaði tískuvörukeðjuna ZÖRU og varð ein ríkasta kona heims
lýsir hvernig hún skipaði sér í fremstu röð þeirra sem leggja áherslu á samfélagsábyrgð
fyrirtækja með stofnun góðgerðarsamtakanna Paideia.
G
O
TT
F
O
LK
Rosalia Mera
11:00 Húsið opnar – Boðið verður upp á léttan hádegisverð meðan á
fyrirlestrinum stendur
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra – Kynning
11:15 Rosalia Mera – Konur, völd og samfélagsábyrgð
12:30 Pallborðsumræður
Rosalia Mera, Paideia
Nokkrir stofnaðilar Eþikos, miðstöðvar Íslands um samfélagsábyrgð fyrirtækja:
Ari Skúlason, forstöðumaður á fyrirtækjasviði Landsbanka Íslands
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans
Dr. Loftur Reimar Guttormsson, gæðastjóri Orkuveitu Reykjavíkur
13:00 Fundarlok
Fundarstjóri: Margrét Jónsdóttir, vararæðismaður Spánar og forstöðum. alþjóðasviðs HR
Erindi Rosaliu Meru er flutt á spænsku en Margrét Jónsdóttir þýðir jafnóðum yfir á íslensku
Verð: 2500 kr. / hádegisverður innifalinn / skráning á www.mannaudur.is
DAGSKRÁ
SAMFÉLAGSÁBYRGÐAR