24 stundir - 20.05.2008, Síða 18

24 stundir - 20.05.2008, Síða 18
Framandi fas og fés Augliti til auglitis við Kína í Listasafninu á Akureyri Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is Í Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýningin „Facing China“ (Augliti til auglitis við Kína), en hún er einn af hápunktum Listahátíðar þetta árið. Þar eru sýnd málverk og skúlptúrar eftir níu kínverska samtímalistamenn sem sett hafa hvert sölumetið á fætur öðru í uppboðshúsum heimsins. Verkin koma úr safni hollenska listaverkasafnarans Fu Ruide. Það er Listasafnið sjálft undir forystu Hannesar Sigurðs- sonar forstöðumanns sem á veg og vanda af hönnun sýningarinnar frá grunni og gerir hana út af örkinni frá Akureyri sem alþjóðlega far- andsýningu. Einstakur safnari „Fyrir tveimur árum frétti ég af þessum dularfulla hollenska safn- ara Fu Ruide sem hefur djúpstæð tengsl við Ísland. Skömmu síðar var ég kominn með puttana ofan í þennan stóra sjónræna nammi- poka hans í von um að geta deilt honum með íslenskum áhorfend- um,“ segir Hannes Sigurðsson. „Fu er einstakur safnari með hjartað á réttum stað. Hann byrjaði að kaupa listaverk í Kína löngu áður en þessi markaður varð að tísku- bólu enda eru listamennirnir þakklátir fyrir áhuga hans og stuðning. Við æstum hvor annan upp þar til við vorum komnir með þetta tröllaukna verkefni sem er visst uppgjör á safnaraferlinu. Fu Ruide leggur höfuðáherslu á að kynna ennþá betur þessa heims- frægu vini sína, ekki síst í Skandin- avíu og þakka þannig fyrir sig en ekki lúra á safneigninni eða draga óþarfa athygli að sjálfum sér. Síðastliðið vor fórum við saman til Peking til að fínstilla sýninguna og bæta við nýjum verkum og þá hitti ég þessa kínversku listamenn. Allir eru þeir orðnir milljónamær- ingar. Mér leið eins og ég væri í forsetaheimsókn. Ég var keyrður frá einni vinnustofunni til annarr- ar í svörtum eðalbílum, en stúdíó þessara listamanna eru flest marg- falt stærri en Listasafnið á Akur- eyri.“ Dr. Ruth stórhrifin Þegar Hannes er spurður hvað einkenni verkin á sýningu Lista- safnsins svarar hann: „Spenna, harka og ljúfsár firring. Einhvers konar leitandi ófullnægja, ef marka má kynlífsfræðinginn Dr. Ruth sem var meðal gesta á opnun. Hún taldi þetta magnaða sýningu sem hún ætlaði heldur betur að tala um í bandaríska sjónvarpinu. Reyndar hafa fjölmiðlar um allan heim sýnt sýningunni mikinn áhuga. Listamennirnir eru ólíkir að mörgu leyti þótt segja megi að hér sé dregið fram hið sálfræðilega nú- tímaandlit Kína, því meginstefið í verkunum er mannslíkaminn og andlitið, fas og fés. Í Kína er mikil handverkshefð og þessir listamenn búa yfir gríðarlegri tæknilegri færni. Þeim hefur tekist að tvinna sína eigin hefð saman við þá vest- rænu. Í verkum þeirra úir og grúir af tilvitnunum í listasöguna í bland við austræn áhrif, en allt er þetta keyrt áfram af þeirra eigin sterka persónulega stíl — og kannski líka kynferðislegri áfergju enda er að- eins einn kvenlistamaður á sýning- unni,“ segir Hannes. ➤ Frá Akureyri fer sýningin tilVínar og Innsbruck í Aust- urríki, Noregs, Kuopio og Salo í Finnlandi, Svíþjóðar, Hollands, Þýskalands, Banda- ríkjanna og Kína. ➤ Í tengslum við sýninguna hef-ur verið gefin út glæsileg 270 bls. bók á ensku og kín- versku. Í hana rita, auk Hann- esar og Fu Ruide, Vigdís Finn- bogadóttir, Robert C. Morgan, prófessor í listasögu í New York, og hinn virti gagnrýnandi Li Xianting, sem gjarnan er kallaður guðfaðir kínverskrar samtímalistar. SÝNINGIN Hannes Sigurðsson segir spennu, hörku og ljúfsára firringu einkenna sýn- inguna Augliti til auglitis við Kína í Listasafninu á Akureyri. Kynlífsfræðing- inn Dr. Ruth, var meðal gesta við opnun, og heill- aðist af sýningunni. 18 ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Ég legg í vana minn að trúa aðeins því sem ég skil. Disraeli Á þessum degi fyrir hundrað árum fæddist James Stewart. Hann var lærður arkitekt þegar hann sneri sér að sviðsleik og síðar kvikmyndaleik og varð einn ástsælasti leikari heims. Stewart var einn af þeim leikurum sem virðast ekki leggja mikið á sig til að ná til áhorfenda. Leikstíll hans var áreynslulaus og einlægur. Á hvíta tjaldinu skapaði hann nokkrar ódauðlegar persónur og nægir þar að nefna hlutverk hans í Mr. Smith Comes to Wash- ington, It’s A Wonderful World og Harvey. Á sjötta áratugnum breytti hann um stíl og naut vinsælda fyrir leik í kúrekamyndum. Hann átti einnig farsæla sam- vinnu við Alfred Hitchcock í myndunum Rear Win- dow, The Man Who Knew Too Much og Vertigo. Stewart gekk einungis einu sinni í hjónaband, sem er töluvert afrek þegar vinsæll Hollywoodleikari á í hlut. Hann lést árið 1997. Goðsögn fæðist MENNINGARMOLINN Ísland: Landið hlýja í norðri / Iceland: The Warm Country of the North, margverðlaunuð ljósmyndabók Sigurgeirs Sig- urjónssonar með texta Torfa H. Tuliniusar, er nú fáanleg á ný í nýrri prentun. Hún er gef- in út á þrettán tungumálum: íslensku, ensku, þýsku, frönsku, ítölsku, spænsku, dönsku, sænsku, norsku, finnsku, kínversku og jap- önsku auk rússnesku. Landið hlýja í norðri Nýtt hefti Tímarits Máls og menningar er komið út. Með- al efnis eru fjórtán hækur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur, ortar til heiðurs Helga Hálf- danarsyni. Meðal greina eru Blóðörn í Flatey, umfjöllun Aðalbjargar Bragadóttur um Flateyjargátu Viktors Arnars Ingólfssonar, Deilur um lestur rómana á Íslandi á 19. öld eft- ir Braga Þ. Ólafsson og Af myndum og sögum eftir Úlf- hildi Dagsdóttur. Grete Cox rifjar upp þegar hún kom til Íslands og kynntist Málfríði Einarsdóttur. Fjölmargt fleira er að finna í tímaritinu. Fjölbreytni í fyrirrúmi AFMÆLI Í DAG Honore de Balzac rithöfundur, 1799 John Stuart Mill heimspekingur, 1806 Moshe Dayan hershöfðingi, 1915 Ferðaskrifstofa Sjóðheittsólarlottó! Spilaðu með og láttu sólina leika við þig. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar og bókanir á www.plusferdir.is Í boði eru 200 sæti til Krítar, Marmaris, Mallorca og Costa Del Sol. Hún er ekki hrædd við Mondrian. Mynd eftir Liu Ye frá árinu 1995.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.