24 stundir - 20.05.2008, Page 25

24 stundir - 20.05.2008, Page 25
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 25 „Í lok maí, byrjun júní ætlum við að setja sumarblóm í kerin,“ segir Þórólfur Jónsson, garð- yrkjustjóri Reykjavíkurborgar, um auð ker á Lækjartorgi. „Þótt það sé fínt veður í dag þá reiknum við ekki með að það sé öruggt að fara með blómin út fyrr en í lok maí. Þetta er háð því að blómin séu tilbúin og að við séum kom- in með mannskap sem plantar þessu út. Við erum háð veð- urduttlungum landsins. Við gæt- um auðvitað verið með lauka til að lífga upp á tilveruna á torg- inu. Við erum farin að setja þá niður í auknum mæli, þá erum við stundum með vetrarskreyt- ingu í pottunum. En fyrir þá sem vilja setja út sumarblómin er rétti tíminn núna.“ Ágangur á fegurðina „Á Lækjartorgi er svolítill ágangur á kerin,“ segir Þórólfur. „En það er mismunandi, stund- um gengur það vel. Þarna var skemmtistaður sem er ekki leng- ur en þegar hann var opinn þá var ágangurinn mikill. Ég trúi að það verði rólegra í sumar. „Sum- arblóm í kerjum og beðum lífga verulega upp á garða og opinbera staði borgarinnar,“ bætir hann við. Torgið slitið „Það er orðið slitið þetta torg,“ segir Þórólfur um Lækjartorg og segir alla vita það að það sé tímaspursmál hvenær það verði allt endurgert. „Núna getum við bætt ástandið með því að bæta við kerjum, blómum og lífi en til lengri tíma litið þarf mun veiga- meiri aðgerðir til og þær standa til með endurreisn miðbæjarins.“ dista@24stundir.is Nú má fara að setja sumarblómin út Sumarblóm í kerin á torginu 24 stundir/Valdís Thor Íbúum í sérbýli býðst að fá grænar öskutunnur í stað þeirra hefð- bundnu. Í grænu tunnurnar fer líf- rænn úrgangur til endurvinnslu. Sorphirðugjöld fyrir grænar tunn- ur eru helmingi lægri en fyrir hefð- bundnar tunnur eða 8.150 á móti 16.300 krónum. Grænar tunnur eru losaðar á tveggja vikna fresti í stað vikulega. Stefnt er að því að nýtt sorphirðukerfi nái til 20% sér- býla í Reykjavík. Grænar tunnur fyrir góðborgara Fyrir þá sem eru umhverfisvænir, eiga bakgarð og góða granna er ef til vill langsótt en skemmtileg hug- mynd að fá sér nokkrar hænur í bakgarðinn. Hænurnar geta orðið prýðis búbót, að sögn Kolbrúnar Baldursdóttur sálfræðings sem elur hænsnahóp í bakgarði sínum í Breiðholti. Hænur borða allt og eru því góð viðbót í umhverf- isvænt heimilishald þar sem lögð er áhersla á endurvinnslu. Hænur í bakgarðinn? Urðun sorps kostar bæði meira fé og land en endurvinnsla. Mikið magn af heimilissorpi reynist vera pappírsúrgangur. Dagblöð og aug- lýsingabæklingar sem má end- urvinna í stað þess að urða. Hjá Reykjavíkurborg má sækja um bláa tunnu fyrir pappírsúrgang og því geta samviskusamir borgarbúar nú sparað sér sporin á endur- vinnslustöðvar og hent papp- írsruslinu beint í tunnuna. Pappírinn í tunnuna Vitretex er létt í vinnslu og þekur vel, ætluð á steinsteypu og múrhúð utanhúss. Mött og vatnsþynnanleg akrýlmálning með frábært alkalí-, vatns- og veðrunarþol og hentar því íslenskum aðstæðum sérlega vel. Sveigjanleg filma minnkar líkurnar á sprungumyndun, málningin andar og hindrar því ekki eðlilegt rakaútstreymi frá fletinum, hreinsar sig sérlega vel og safnar ekki í sig óhreinindum. Komið og leitið ráða hjá sérfræðingum okkar eða fáið góð ráð og lausnir á heimasíðunni, www.slippfelag.is. DUGGUV OGI 4 • 104 REY KJAVÍK • SÍMI 5 88 8000 www.slip pfelagid. is UTANHÚSM ÁLNING allir litir náttúrunnar eru okkar litir VITRETEX, á steinsteypu og múrhúð utanhúss, ...vatnsþynnanleg akrýlmálning, veðurþol fyrir íslenskar aðstæður Tilboð á pallaolíu fram til 24.maí www.slippfela gid.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.