24 stundir - 20.05.2008, Blaðsíða 43
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008 43
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
MacBook Air 1,36 kg, þyngd í samanburði við:
Fartölvu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2,50 kg
Tímarit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1,64 kg
Handtösku . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2,37 kg
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
MacBook Air – örþunn, fislétt, líka fyrir Windows
Þegar þú snertir nýju MacBook Air breytist allt sem þú taldir þig vita um fartölvur og
verður aldrei eins aftur. MacBook Air á þig um leið og þú sérð hana.
Létt, örþunn, öflug.
Fágun. Upplifun. Óviðjafnanleg.
Rússinn Roman Abramovich ku
vera maðurinn á bak við kaupin á
málverkunum Benefits Superv-
isor Sleeping eftir Lucian Freud
og Triptych eftir Francis Bacon
en myndirnar voru seldar á upp-
boði í síðustu viku. Samtals
þurfti Roman að punga út um 60
milljónum punda fyrir málverkin
tvö eða rúmlega átta og hálfum
milljarði íslenskra króna.
Listunnandinn
Abramovich
Það muna allir eftir myndunum
um Júragarðinn, en nú stendur
til að gera fjórðu myndina um
þessi risavöxnu skriðdýr. Laura
Dern mun snúa aftur sem Dr. El-
lie Sattler, en óvíst er með þát-
töku Sam Neill. „Mér skilst að
þetta sé í bígerð, og mín persóna
komi þar fyrir. Ég veit líka að
Spielberg er farinn að hlakka til,“
sagði Laura í viðtali.
Risaeðlurnar
snúa aftur
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
„Formlega forsendan fyrir því að
kvöldinu var aflýst var sú að Eric
Prydz var búinn að fljúga mikið
og var þreyttur,“ segir Kristinn
Bjarnason hjá Flex Music er hafði
eytt heilmiklu púðri í að auglýsa
klúbbakvöldið sem átti að fara
fram síðasta laugardag. Honum
var svo ekki tilkynnt af ákvörðun
Prydz fyrr en daginn fyrir tón-
leikana. „Það var klausa í samn-
ingnum hans sem gaf honum leyfi
til þess að kippa sig lausan ef eitt-
hvað kæmi upp á. Héðan í frá læt
ég lögfræðing lesa samningana yf-
ir því þetta var algjör hörmung.“
Prydz átti að leika á tveimur
uppákomum á Broadway. Í fyrra
skiptið fyrir krakka á aldrinum
16-20 ára án vínveitingarleyfis en í
seinna skiptið fyrir 20 ára og eldri
fram eftir nóttu. Kiddi var búinn
að selja glás af miðum og þurfti að
endurgreiða öllum. Hann ákvað
að aflýsa fyrra ballinu en hélt það
seinna með þeim íslensku upphit-
unaratriðum sem höfðu verið
bókuð til þess að spila með Prydz.
Miðaverð á seinni tónleikana var
því lækkað og mismunurinn end-
urgreiddur til þeirra er höfðu þeg-
ar keypt sér miða. Mæting var afar
dræm.
„Umboðsskrifstofa Prydz lofar
mér því að hann muni koma síðar
og spila þannig að ég er bara að
reyna að finna einhvern minni
stað fyrir þá uppákomu,“ segir
Kiddi sem getur vart talist líklegur
til þess að eyða jafn miklu púðri í
það gigg.
Prydz hafði sett fram ýmsar
kröfur fyrir ferð sína hingað, þar á
meðal að ferðast á fyrsta flokks
farrými hjá Icelandair og að fá fín-
ustu hótelsvítuna sem væri í boði.
Eric Prydz afboðaði komu sína til landsins á síðustu stundu
Var of þreyttur
til að fljúga
Eric Prydz Stóð ekki
við skuldbindingu sína
vegna þreytu.
➤ Er rétt rúmlega þrítugurplötusnúður frá Svíþjóð.
➤ Afboðaði tónleikana meðlitlum sem engum fyrirvara.
➤ Segist ætla að koma seinna.
➤ Kiddi hjá Flex Music situr eftirmeð sárt ennið.
ERIC PRYDZ
Sænski plötusnúðurinn
Eric Prydz hætti við komu
sína til landsins á síðustu
stundu. Tónleikahald-
arinn er mjög svekktur
enda var mikið í húfi fyrir
Flex Music.
Samkvæmt áreiðanlegum Holly-
wood-heimildum hefur handrits-
höfundurinn James Vanderbilt,
sem skrifaði handritið að Zodiac,
skrifað handrit að fjórðu mynd-
inni um Köngulóarmanninn en
söguþráðurinn í henni gerir ráð
fyrir frekara framhaldi. Sáu
framleiðendur myndarinnar því
hagkvæmni í því að taka þær upp
samtímis.
Köngulóarmað-
urinn 4 og 5
Söngkonan Ashlee Simpson, sem
er kannski þekktust fyrir að vera
yngri systir Jessicu Simpson,
gekk í hnapphelduna um daginn,
en sá heppni er bassaleikarinn
Pete Wentz úr hljómsveitinni Fall
Out Boy. Óstaðfestar fregnir
herma að parið eigi nú von á erf-
ingja, þó lítið beri á kúlunni.
Brúðhjón eiga
von á barni