24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 10
Hagkvæmt
að bólusetja
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Það er hagkvæmt að bólusetja
ungar stúlkur á Íslandi gegn leg-
hálskrabbameini, segir Jakob Jó-
hannsson, krabbameinslæknir og
heilsuhagfræðingur.
Jakob rannsakaði í meistara-
prófsritgerð sinni í heilsuhagfræði
kostnaðinn við að bólusetja allar
12 ára stelpur á Íslandi gegn leg-
hálskrabbameini.
Niðurstaðan, sem hann kynnir í
fyrirlestri í Háskóla Íslands í dag,
er sú að hvert aukaár sem kona í
landinu myndi lifa vegna um-
ræddrar bólusetningu kosti 1,8
milljónir. Þá er búið að taka tillit
annars vegar til kostnaðar við
bólusetninguna og hins vegar þess
sem sparast þar sem færri konur
þurfa á aðgerð og meðferð vegna
leghálskrabbameins að halda.
Kostar 47 milljónir á ári
Heildarkostnaður á ári við
bólusetninguna segir Jakob að
yrði 47 milljónir, en 30 milljónir
eftir að búið er að taka tillit til
þeirra útgjalda heilbrigðisyfirvalda
sem sparast á móti.
„Að mínu mati er það forsvar-
anlegur kostnaður,“ segir Jakob.
„En þótt heilsuhagfræðin segi að
það sé hagkvæmt er þetta á end-
anum pólitísk spurning.“
Jakob bendir á að meðalaldur
þeirra sem greinast með legháls-
krabbamein sé 45 ár. „Þannig að
við þurfum að bólusetja í mörg ár
áður en ávinningurinn kemur í
ljós.“
Til er bólusetningarlyf gegn
ákveðnum gerðum af vörtuveir-
um, sem eru í um 60% tilfella or-
sakir leghálskrabbameins. „Með
bólusetningu væri því mögulegt
að draga úr tíðni leghálskrabba-
meins um 60%,“ segir Jakob.
Sprautan kostar 19 þúsund
Bóluefni þetta fæst í apótekum
og kostar hver sprauta um 19 þús-
und krónur. Jakob bendir á að vilji
foreldrar bólusetja dætur sínar
gegn leghálskrabbameini í dag geti
þeir beðið heimilislækni sinn um
að skrifa upp á umrætt lyf. „En
það er þá á kostnað viðkomandi.“
Samkvæmt heimildum 24
stunda hefur málið verið til athug-
undar innan heilbrigðisráðuneyt-
isins. Ekki náðist í heilbrigðisráð-
herra við vinnslu fréttarinnar.
Bólusetning gegn leghálskrabbameini kostar 47 milljónir á ári
Heilbrigðisráðuneytið verið með málið til athugunar
➤ Að meðaltali greinast 17 kon-ur árlega á Íslandi með leg-
hálskrabbamein.
➤ Meðalaldur þeirra er 45 ár og20% þeirra látast innan við
fimm árum eftir greiningu.
LEGHÁLSKRABBAMEIN
Þverfaglegur
Jakob er krabba-
meinslæknir á
Landspítalanum
og heilsuhagfræð-
ingur.
24stundir/G.Rúnar
10 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir
Börnin í Mjanmar (Búrma) þurfa hjálp
Þinn stuðningur skiptir máli
Hringdu í síma 904-1000 og gefðu 1000 krónur
Hringdu í síma 904-3000 og gefðu 3000 krónur
Hringdu í síma 904-5000 og gefðu 5000 krónur
„Bændur eru auðvitað staddir í
miðri íslenskri efnahagslægð eins
og aðrir. Ef svo væri ekki tel ég að
íslenskir bændur væru að taka
stórstígum framförum í átt til
meiri samkeppnishæfni við erlenda
landbúnaðarframleiðslu.“ Þetta er
mat Haraldar Benediktssonar, for-
manns Bændasamtakanna.
Verðbólgan étur ávinning
Eins og greint var frá í 24 stund-
um má ætla að heyskapur muni
kosta bændur þriðjungi meira í ár
en í fyrra. Haraldur segir að hluta
af þessari kostnaðarhækkun sé bú-
ið að taka inn í mjólkurverðshækk-
unina sem tók gildi í byrjun apríl
síðastliðins. „Engu að síður er það
nú staðreynd að verðbólgan er
nánast búin að éta þessa hækkun
upp. Það sem við munum sjá á
næstunni tel ég vera að kjötverð
muni hækka verulega. Það er hins
vegar alþjóðleg þróun og ég tel að
verðmunur milli innlends og er-
lends nauta- og lambakjöts muni
fara minnkandi á næstunni.“
Haraldur segir að vissulega séu
þessar hækkanir erfiðar fyrir
bændur. „Margir bændur hafa að
undanförnu lagt út í fjárfestingar
til að stækka bú sín og auka hag-
ræðingu í búskap. Þegar þessar
hækkanir á aðföngum erlendis frá
leggjast ofan á háan fjármagns-
kostnað og mikla verðbólgu er ljóst
að það verður mörgum ansi erfitt.“
freyr@24stundir.is
Efnahagsaðstæður standa í vegi fyrir aukinni samkeppnishæfni
Efnahagslægð bændum erfið
Heyskapur Það gæti orðið þriðjungi
dýrara að heyja í sumar en í fyrrasumar.
Forsvarsmenn stærstu söluaðila
veiðileyfa í ám landsins greina lítil
áhrif kreppunnar í sölunni þó að-
eins megi greina minnkandi eftir-
spurn.
„Það hafa rétt um 87% af veiði-
leyfunum verið seld, sem er svipað
og í fyrra,“ segir Páll Þór Ármann,
framkvæmdastjóri Stangveiðifélags
Reykjavíkur og sömu sögu segir
Arnar Jón Agnarsson, sölufulltrúi
hjá Laxá. Segja þeir jafnframt að-
eins mega greina minnkandi eft-
irspurn en ekki sé ástæða til að hafa
áhyggjur af sumrinu.
„Maður verður þó að hafa í huga
að 70% leyfanna seldust í haust svo
áhrifin af kreppunni verða líklega
meiri næsta ár. Maður hefur svona
frekar áhyggjur af því,“ segir Arnar.
Misjafnt er hve mikið selst af
leyfum eftir ám og er það breytilegt
á milli ára. Fer þar saman veiði árs-
ins á undan og hvað leyfin kosta í
viðkomandi ám. Er þó alltaf tals-
verður hópur kúnna tryggir sínum
svæðum hvernig sem veiðist, að
sögn Páls.
thorakristin@24stundir.is
Kreppan hefur lítil áhrif á sölu veiðileyfa í ám landsins
Leyfin seljast svipað og í fyrra
24stundir/Einar Falur
Fjölbreytt verð Veiðileyfi kosta frá nokkrum þúsundum upp í yfir 100 þúsund.
Lögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu og tollstjórinn í Reykjavík
hafa skrifað undir samkomulag um
aukið samstarf og samvinnu á sviði
fíkniefnamála. Embættin munu m.a.
hafa samvinnu um rekstur og þjón-
ustu fíkniefnaleitarhunda og sam-
vinnu við rannsóknir á innflutningi,
sölu og dreifingu fíkniefna og grein-
ingarvinnu á því sviði.
Tollstjórinn í Reykjavík ber ábyrgð
á rekstri, þjálfun og öllu öðru utan-
umhaldi um hundateymi sem er til
taks fyrir lögregluna á höfuðborgar-
svæðinu þegar á þarf að halda.
Lögreglan og tollurinn í Reykjavík
Aukið samstarf
um fíkniefnamál
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Göran Hägglund,
heilbrigðisráðherra Svíþjóðar, hafa undirritað viljayfirlýsingu um auk-
ið samstarf landanna í lyfjamálum. Í viljayfirlýsingunni, sem var und-
irrituð á fundi heilbrigðisráðherra Norðurlanda á Gotlandi nú í byrj-
un vikunnar, er sérstaklega getið um vilja til að auka samstarf á sviði
verðmyndunar lyfja og endurgreiðslna vegna lyfjanotkunar. Á fund-
inum lagði Guðlaugur Þór áherslu á aukið norrænt samstarf í lyfja-
málum, að því er segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.
Viljayfirlýsing um lyfjamál