24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@24stundir.is Boston hefur átta sinnum fagnað sigri í þeim „rimmum“ en Lakers náði að brjóta ísinn í áttundu tilraun vorið 1985 og aftur vorið 1987. Fjölmargir stuðningsmenn Boston Celtics hafa „skriðið“ undan steini í vetur eftir um tveggja áratuga þrautagöngu en Lakers hefur aftur á móti fagnað titlinum þrjú ár í röð, 2000-2002. Hannes Hjálmarsson er einn af hörðustu stuðningsmönnum Boston og elskar hann að hata Lakers. Hans Henttinen vorkennir stuðningsmönnum Boston en hann lét húðflúra félagsmerki La- kers á handlegg sinn skömmu eftir að hann varð fertugur. Tilviljun réði Hans Henttinen hefur frá árinu 1979 verið stuðningsmaður LA Lakers en þá sá hann einn frægasta körfu- boltaleik fyrr og síðar. „Það var tilviljun sem réði því að ég fór að halda með Lakers. Fyrsti körfu- boltaleikur sem ég sá var sjötti leikur Lakers og Philadelphia 76’ers, þar sem Magic Johnson tók að sér að leika miðherja í stað Kareem Abduhl Jabb- ars. Þar skoraði Magic 42 stig, tók 15 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Eftir þann leik varð Lakers liðið mitt og Magic var „maðurinn“. Fram að þess- um leik hafði ég aldrei horft á körfu- bolta, aldrei spilað körfubolta sjálfur.“ Hans segir að hann hafi aldrei haft sterkar taugar til Boston-liðsins í gegn- um tíðina. „Ég veit ekki hvort maður getur notað svo sterkt orð að maður hafi hatað Boston-liðið. Jú kannski á fyrstu árunum en eftir 1987 hef ég eig- inlega vorkennt þeim sem hafa haldið með Boston. Liðið hefur ekki getað neitt. Svona svipað og ég vorkenni stuðningsmönnum Liverpool í enska boltanum. Ég nenni ekki lengur að hata, ég vorkenni þeim,“ segir Hans en hann er einn dyggasti stuðningsmað- ur Manchester United. Sagði engum frá húðflúrinu „Árið 1988 ákvað ég að láta húð- flúra merki Lakers á mig þegar liðið yrði meistari á ný. Það gerðist árið 2000, rétt rúmum tveimur mánuðum eftir að ég varð fertugur. Ég sagði eng- um frá þessu. Fór bara til Fjölnis Bragasonar og lét gera þetta. Konan mín og börnin tóku ekki eftir þessu fyrr en nokkrum dögum síðar. Ég er afar stoltur af Lakers-merkinu og ég hef meira að segja bætt við tölunni 32 til þessa að heiðra Magic og Man Utd fékk einnig að fljóta með. Bara til að undirstrika þessa sjúklegu dellu þá fór ég í tvær ferðir til að sjá mína menn spila. Báðar ferðirnar voru á „Show- time“-tímabilinu og var ég svo hepp- inn að komast á æfingu hjá Lakers og Chicago sem þeir voru að spila við í Forum-höllinni. Þar hitti ég Magic Johnson, Kareem Abduhl Jabbar, James Worthy og fékk einnig tækifæri til þess að ræða við Michael Jordan.“ Þeir sem aka um götur Reykjavíkur hafa eflaust tekið eftir bifreið með númerinu LAKERS. Þar er Hans Henttinen á ferð. „Ég lét reyndar þetta númer á bílinn hjá konunni minni. Fyrir tveimur árum neitaði hún að vera með þetta númer á bílnum. Það vakti of mikla athygli og hún þoldi það ekki. Númerið er í geymslu núna,“ sagði Hans Henttinen. Í geymslu Manchester United og La- kers eru liðin að mati Hans. Lakers- númerið er í geymslu eftir að eiginkonan neitaði að vera með það á bílnum. Hef kennt í brjósti um Boston í 20 ár  Hans Henttinen er viss um að Lakers „rúlli“ Boston upp í úrslitum NBA-deildarinnar Að eilífu Lakers verður órjúfanlegur hluti af per- sónu Hans Henttinen það sem hann á eftir ólifað. ➤ Fyrsti körfuboltaleikurinnsem Hans Henttinen sá um ævina var sjötti leikur Lakers og 76’ers í úrslitum NBA- deildarinnar vorið 1980. ➤ 12 árum eftir að Hans ákvaðað láta tattóvera Lakers- merkið á sig var það komið á sinn stað. MEÐ LAKERS-TATTÚGömlu stórveldin Boston Celtics og LA Lakers mæt- ast í lokaúrslitum NBA- deildarinnar og er fyrsti leikurinn í kvöld. Þessi lið mættust síðast í úrslitum vorið 1987 og er þetta í 10. sinn sem Boston og Lakers keppa um titilinn. „Ég var eiginlega alveg búinn að gleyma því hvað maður hatar La- kers-liðið. Þessi tilfinning er mjög sterk þessa dagana. Það er ekki spurning að Boston Celtics mun fagna NBA-meistaratitlinum og þetta fer 4:0 eða 4:1 fyrir mína menn. Og ég rökstyð það þannig að Lakers mun ekki ráða við varn- arleik Boston – sem er frábær,“ seg- ir Hannes Hjálmarsson, rekstrar- og stjórnmálafræðingur, einn dyggasti stuðningsmaður Boston Celtics á Íslandi. Hannes segir að áhuginn á Bost- on Celtics hafi vaknað á fjölliða- móti í Njarðvík þegar hann var 12 ára. „Þar var sýnt myndband með leik Boston Celtics þar sem Bill Russell var aðalmaðurinn. Þegar Larry Bird kom til liðsins sumarið 1979 og Magic Johnson á sama tíma til Lakers þá vaknaði enn meiri áhugi á deildinni hjá mér.“ Hannes fylgist grannt með gangi mála í úrslitakeppninni en „fjörið“ hefst í kvöld þegar liðin mætast í fyrsta sinn í Boston Garden í Bost- on. „Maður lætur ekki þessa leiki fara framhjá sér. Ekki séns. Ég hef séð flesta leikina í úrslitakeppninni. Það hefur aldrei komið fyrir að ég hafi vaknað í sófanum kl. 5 að morgni og misst þar með af loka- kaflanum. Það hefur verið frekar erfitt tíðarfar fyrir okkur sem höld- um með Boston. Ég hef reyndar alltaf haft trú á mínum mönnum í upphafi tímabils. Síðan hefur fokið í flest skjól þegar liðið hefur á tíma- bilið. Staða liðsins í dag er því mik- ið gleðiefni og sumarið hefur ekki verið svona fallegt lengi,“ sagði Hannes. Hannes Hjálmarsson segir að Lakers ráði ekki við vörn Boston Bill Russell kveikti neistann Kobe Bryant, leikmaðurLakers, var valinn bestileik- maður NBA- deildarinnar á dögunum og er þetta í fyrsta sinn á 12 ára ferli sem hann fær þessa við- urkenningu. Boston sigraði AtlantaHawks, 4:3, í fyrstu um-ferð Austurdeildar. Lið- ið lenti í vandræðum gegn Cle- veland Cavaliers í næstu umferð en hafði einnig betur, 4:3. Í úr- slitum sigraði Boston lið Detroit, 4:2. Boston lék síðast til úrslita í deildinni vorið 1987 þar sem Larry Bird var aðalmaðurinn. Lakers lenti ekki í miklumvandræðum á leið í úr-slitarimmuna. Liðið vann Denver Nuggets, 4:0. Utah Jazz veitt aðeins meiri mótspyrnu í annarri umferð en þar hafði Lakers betur, 4:2. Meistaralið San Antonio Spurs, með Tim Duncan fremstan í flokki, átti ekki möguleika í úrslitum Vest- urdeildar en þar hafði Lakers betur, 4:1. Kevin Garnett, leikmaðurBoston Celtics, verður ínýrri tegund af Adidas- skóm í fyrsta leiknum í kvöld gegn La- kers. Aðeins verða fram- leidd átta pör af þessum skóm fyrir hvern leik í úrslitakeppninni. Skópörin verða því 32 í það minnsta en 56 ef sjö leiki þarf til að knýja fram úrslit. Skórnir verða seldir á uppboði fyrir góðgerðarsamtök. Lakers hefur fagnað 14 titlum. Síðast árið 2002. Boston er sig- ursælasta lið NBA með 16 titla en liðið hefur aðeins tapað þrisvar í lokaúrslitum. FRÉTTIR ÚR NBA ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Ég veit ekki hvort maður getur notað svo sterkt orð að maður hafi hatað Boston-liðið. Liðið hefur ekki getað neitt. Svona svipað og ég vorkenni stuðningsmönnum Liverpool í enska boltanum. Ég nenni ekki lengur að hata, ég vorkenni þeim. ÞÝSKAR ÁLKERRUR til allra starfa Vandaðar kerrur á góðu verði, léttar og fallegar. Margar stærðir og gerðir. Sturtubúnaður , álbrautir o. fl. Söluumboð: N1 Laugatanga 1 Mosfellsbæ - sími 566 8188. Fjarðanet hf. Grænagarði Ísafirði sími 470 0836. KB búrekstrard. Egilsholti 1 Borgarnesi sími 430 5500. Háholt 18 Mosfellsbæ sími 894 5111 Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður NBA-meistari. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í Boston, 5. og 7. júní. Næstu tveir verða í Los Angeles 10. og 12. júní. Eftir það verður leikið til skiptist í Boston og Los Angeles ef til þarf. Fimmti leikurinn er á dagskrá 15. júní, sá sjötti á þjóðhátíðardegi íslenska lýðveldisins og fæðingardegi Jóns Sigurðssonar. Sjöundi leikurinn er á dagskrá 19. júní, sem er jafn- framt kvenréttindadagurinn á Íslandi. Ráðast úrslitin þann 17. júní?

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.