24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 23

24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 23
24stundir FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 23 Stoltur stuðningsaðili Yfirgefin herstöð á Íslandi er viðfangsefni sýningar myndlistarmannsins Anne Kathrin Greiner á sýningunni Leigjendurnir sem verður opnuð í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag. Myndirnar eru allar tekn- ar á herstöðinni í Keflavík stuttu eftir að íbú- ar hennar yfirgáfu hana og fluttu aftur til síns heima. Í verkum sínum fæst Anne Kathrin gjarn- an við þau veraldlegu og hversdagslegu svæði sem oft er litið framhjá en hafa þrátt fyrir það bolmagn til að vekja umræður um reynsluheim og minningar bæði einstak- lingsins og heildarinnar. Um leið eru þau hvatning til þess að fólk velti fyrir sér hinu liðna og tengingu þess við samtímann. Meðal hugðarefna hennar eru menning- arleg staða í umhverfi samtímans sem og landamæri og þröskuldar bæði í bókstaflegri merkingu og á myndhverfan hátt. Þrátt fyrir þá staðreynd að verkið sé að verulegu leyti undir miklum áhrifum og í raun samofið samspili stjórnmála og landafræði, segir Anne Kathrin að ásetningurinn með því sé fremur að beina sjónum áhorfandans að myndrænum og djúpum flötum verksins. Það felur í sér hugleiðingar sem tengjast missi, brotthvarfi, ótta við nútímann, of- sóknaræði sem orsakast og er hvatt áfram sem einskonar stjórntæki og arkitektúrinn í umhverfi okkar sem framlenging af einstak- lings- og hópsálum fremur en að það sé sér- staklega „huglæg“ skrásetning. Hugmyndin um yfirgefna herstöð er notuð í verkinu til að koma á framfæri málefnum af þessu tagi sem eru bæði tímalaus og alþjóðleg en sem um leið snúast að verulegu leyti um menning- arlega og pólitíska spillingu í samtímanum. Anne Kathrin Greiner býr og starfar í Berlín og London. Hún hefur MFA-gráðu í myndlist frá the Royal College of Art in London og hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Sýningin Leigjendurnir verður opin til 29. júlí. Anne Kathrin Greiner sýnir í Skotinu Gamla herstöðin í Keflavík í brennidepli Áshildur Haraldsdóttir flautu- leikari og Katie Buckley hörpu- leikari spila á stofutónleikum á Gljúfrasteini næstkomandi sunnudag klukkan 16. Áshildur nam flautuleik við Tón- listarskólann í Reykjavík og lauk síðan háskólaprófum frá The New England Conservatory of Music, Juilliard-skólanum í New York og Konservatoríinu í París. Hún hefur unnið til verðlauna í fjórum alþjóðlegum tónlist- arkeppnum og hljóðritað fimm einleiksgeisladiska. Katie hóf nám hörpuleik 8 ára gömul í Bandaríkjunum og lauk gráðunum Bachelor of Music, Performeŕs Certificate og Master of Music frá Eastman School of Music í Rochester, New York. Flauta og harpa á Gljúfrasteini Sýning á verkum Magnúsar Kjartanssonar myndlistarmanns stendur yfir í Listasafni Árnes- inga. Á sýningunni, sem er liður í dagskrá Listahátíðar, eru 43 verk sem Magnús vann á pappír frá 1982 til 1988 og hafa aðeins fáein af þessum verkum áður verið sýnd. Laugardaginn 7. júní klukkan 12.30 til 15.30 verður haldið stutt málþing um verk Magnúsar og viðfangsefni hans á safninu. Jón Proppé stýrir mál- þinginu og aðrir frummælendur verða Aðalsteinn Ingólfsson list- fræðingur, Halldór Björn Run- ólfsson, forstöðumaður Lista- safns Íslands, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður og Þóra Þórisdóttir, myndlist- armaður og gagnrýnandi. Málþing um Magnús Fjórða alþjóðlega barna- og ung- lingabókahátíðin sem kennd er við mýrina verður haldin dagana 19. til 23. september undir yf- irskriftinni Draugar úti í mýri. Meðal helstu atriða má nefna höfundaheimsóknir í skóla og stofnanir, kynningar og dagskrá í Norrræna húsinu, höfundaspjall og aðra menningardagskrá. Garðabær er sérstakur vinabær hátíðarinnar. Bókahátíð

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.