24 stundir - 05.06.2008, Blaðsíða 25
24stundir FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 25
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég er hrifinn af öllu því sem upp
úr sjónum kemur,“ segir Kjartan
Halldórsson sægreifi þegar þjarm-
að er að honum að velja eitthvert
uppáhaldssjávarfang á grillið.
Að lokum lætur hann undan og
segist eiga bágt með að standast
hrefnukjötið. „Já, ætli það sé ekki
hrefnukjötið sem eigi vinninginn,
en svo finnst mér líka humar
ómótstæðilegur.“
Kjartan segir það af og frá að
hrefnukjötið flokkist undir hag-
kvæma húsmæðrabrellu í matseld.
„Nei, nei! Af og frá, hrefnan er og
hefur alltaf verið herramannsmat-
ur.“ Kjartan segir kílóverðið á
hrefnunni líklega um 1200 krónur
um þessar mundir. „Ekki er hún
dýr þótt hún hafi nú reyndar
hækkað aðeins nýlega,“ bætir hann
við.
Kjartan sker hrefnukjötið í bita
og raðar á pinna með rauðlauk og
rauðri papriku. Hann setur örlítið
af olíu á kjötið og kryddar með
kryddblöndu sem hann fæst ekki
til að tilgreina nánar. „Salt og pipar
er ágætt á hrefnukjöt,“ segir hann
leyndardómsfullur og það er ljóst
að þeir sem vilja bragða á sannri
Sægreifahrefnu verða að leggja leið
sína til Kjartans á Geirsgötuna en
einn grillpinni með veglegum
hrefnubitum á fæst þar fyrir um
1200 krónur.
Útlendingar vilja hrefnukjöt
Kjartan býður upp á kartöflu-
spjót með hrefnukjötinu og kók í
gleri. „Mér finnst gott að hafa sætt
sinnep með hrefnunni,“ segir hann
og býður það með.
„Útlendingar vilja helst hrefnu-
kjöt,“ segir hann og segir hvala-
skoðunarskipin í nágrenninu ekki
skipta neinu máli hvað varðar vin-
sældirnar.
Frægur á heimsvísu
Aðspurður um vinsældir staðar-
ins og skrif um hann í víðlesnustu
blöðum heims segist hann vera
þakklátur fyrir viðtökurnar. „Ég
borgaði ekkert fyrir þetta,“ segir
hann og hlær. „Þeir gera þetta bara
sjálfviljugir og þrátt fyrir allt saman
þá standa ekki milljónir í röðum
hjá mér,“ bætir Kjartan við í
gamni. „Það er nóg að hafa hér
hundruð,“ segir hann og hlær enn.
„Ég hef ekki undan að matreiða og
nú ætla ég að fara að selja fisk hér
líka í verbúð 3 á næstunni.“
Útlendingarnir sólgnir í grillað hrefnukjöt
Sægreifinn grillar
Í gömlu höfninni í Reykja-
vík er lítill veitingastaður
sem hefur vakið athygli
heimsins. Um Sægreifann
við Geirsgötu hefur verið
skrifað í New York Times
og ferðamannavísinum
Lonely Planet og fisk-
réttir staðarins lofaðir.
Kjartan Halldórsson, sæ-
greifinn sjálfur, skellti
hrefnu á grillið.
➤ Kjartan segir algeran óþarfaað leggja hrefnukjöt í bleyti í
mjólk áður en það er mat-
reitt.
➤ Hrefnukjötið fær lýsisbragðef það er eldað í of langan
tíma.
GRILLAÐ HREFNUKJÖT
Góðar fréttir fyrir sælkera Sægreif-
inn ætlar að opna fiskverslun í grennd
við veitingastaðinn á næstunni.
Hógvær greifi Vinsældir
grillaða sjávarfangsins
aukast í sífellu en sæ-
greifinn lætur frægðina
ekki stíga sér til höfuðs.
„Gott hrefnukjöt minnir á nauta-
kjöt og er frábært á grillið,“ segir
Karl Ómar Jónsson hjá Esju kjöt-
vinnslu og bætir því við að yfir
sumartímann sé hrefnukjötið selt
ferskt sem geri matreiðsluna
fyrsta flokks.
„Hrefnukjötið fæst m.a. í öllum
Samkaupsverslununum, Nóatúni
og Melabúðinni,“ segir Karl Óm-
ar. „Verðið er fast í 1498 krónum
á kílóið hjá öllum söluaðilum.“
Meyrt og minnir
á nautakjöt
Á sumrin er mangó vinsæll í salöt
og eftirrétti. Mangóávöxturinn
þroskast hægt líkt og perur. Í ís-
skáp getur ferlið tekið langan
tíma og betra að láta mangóá-
vöxtinn þroskast við herberg-
ishita en stinga honum síðan í ís-
skápinn þegar hann er farinn að
mýkjast. Vel þroskaðan mangó
má til dæmis mauka í mat-
vinnsluvél með ferskum súrald-
insafa( 2 -3 tsk.) og bera fram
með þeyttum rjóma og rifnu súr-
aldinhýði til skrauts.
Mangóæðið
byrjar senn
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Já, ætli það sé ekki hrefnukjötið sem eigi
vinninginn en svo finnst mér líka humar
ómótstæðilegur.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 510 3744
grillið