24 stundir - 05.06.2008, Qupperneq 34
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
„Þetta er mjög spennandi verkefni
og það er búið að vera mjög gaman
að standa í þessu. Þetta er rosaleg
vinna því þetta fellur á milli tveggja
blaða. Maður vinnur alveg myrkr-
anna á milli núna,“ segir Sveinn
Birkir Björnsson, ritstjóri Reykja-
vík Grapevine, um væntanlegt af-
mælistölublað blaðsins sem kemur
út föstudaginn 13. júní.
Reykjavík Grapevine kom út í
fyrsta sinn þennan sama dag árið
2003 og fagnar blaðið því fimm ára
afmæli sínu. Af því tilefni var
ákveðið að bæta við einu auka-
blaði.
„Þetta er akkúrat á milli útgáfa
þannig að við smelltum bara inn
sérstöku aukablaði. Við ákváðum
að fá fimm gestaritstjóra fyrir blað-
ið sem hver um sig fær fimm blað-
síður til að vinna úr.“
Hin fimm fræknu
Það eru engin smánöfn sem setj-
ast í stól gestaritstjóra Grapevine.
Bergur Ebbi Benediktsson, söngv-
ari Sprengjuhallarinnar, Pétur
Blöndal, blaðamaður á Morg-
unblaðinu, Barði Jóhannsson tón-
listarmaður, Silja Magg ljósmynd-
ari og myndlistarkonan Sara Riel
munu hvert um sig setja mark sitt
á blaðið og segir Sveinn Birkir að
efnistök þeirra verði mjög ólík.
„Silja er með myndaþátt með
fimm manneskjum. Hún er í námi
í New York eins og stendur þannig
að hún ákvað að taka Íslendinga
sem vekja athygli í New York.
Bergur Ebbi og Barði eru með
flóknari konsept sem ég eiginlega
treysti mér ekki til að útskýra.“
Betrumbætt Grapevine
Sveinn Birkir segir að afmæl-
isritið verði ennfremur nýtt til að
sýna nýtt útlit á blaðinu. „Við not-
um tækifærið til að kynna nýtt
Grapevine með þessu afmæl-
isblaði.“ Hann segir ennfremur að
nýrri vefsíðu verði hleypt af stokk-
unum og nýtt merki blaðsins líti
dagsins ljós. Sem fyrr segir kemur
afmælisblað Grapevine út 13. júní.
Reykjavík Grapevine fagnar fimm ára afmæli sínu
Fimm ritstjórar á
fimm ára afmæli
Tekur á móti gestum
Sveinn Birkir fær fimm
fíleflda gestaritstjóra á
Reykjavík Grapevine.
➤ Reykjavík Grapevine komfyrst út 13. júní 2003.
➤ Í fyrstu var blaðið hugsaðsem upplýsingaveita fyrir er-
lenda ferðamenn en sinnir nú
einnig nýjum Íslendingum.
➤ Yfir sumartímann kemurblaðið út tvisvar í mánuði.
REYKJAVÍK GRAPEVINE
Föstudaginn 13. júní mun
Reykjavík Grapevine
fagna 5 ára afmæli sínu.
Af því tilefni verður gefið
út sérstakt afmælisblað
þar sem fimm gestarit-
stjórar láta ljós sitt skína.
34 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 24stundir
Alla daga
frá10 til 22
800
5555
Zanzibar - mjúkur og yndislegur bh
í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.950,-
buxur í stíl í S,M,L,XL á kr. 4.585,-
Zanzibar - glæsilegur sundbolur
í D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 10.990,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
NÝTT OG ÆÐISLEGT!!
Hljómsveitin Morðingjarnir
mun í dag halda í sínu fyrstu tón-
leikaferð erlendis. Ferðinni er heit-
ið til Skotlands þar sem til stendur
að leika á tveimur tónleikahátíð-
um. „Við erum að fara að taka
giggin sem Reykjavík átti að taka,“
segir Haukur Alfreðsson, söngvari
og gítarleikari Morðingjanna.
Hljómsveitin Reykjavík hafði
verið bókuð til að leika á Go
North- og Rock Ness-tón-
leikahátíðunum en eins og kunn-
ugt er reif Bóas Hallgrímsson,
söngvari Reykjavíkur, nýra í stór-
fiskaleik á dögunum og þurfti sveit-
in því að fresta tónleikaferð sinni.
Haukur vill þó ekki segja að nýr-
að í Bóasi sé að gefa Morðingj-
unum tækifæri til að skapa sér nafn
erlendis. „Það er allavega að gefa
okkur séns á að fara til Skotlands.
Þetta er að minnsta kosti gott frí frá
gráum hversdagsleikanum.“
Haukur segir að það sé frágengið
að Morðingjarnir spili á Go North-
hátíðinni en það sé enn í vinnslu að
fastnegla tónleikana á Rock Ness-
hátíðinni. „Go North er svona
meira í ætt við Airwaves-hátíðina
með mörgum tónleikastöðum en
Rock Ness er meira svona hefð-
bundið festival, allir í tjöldum og
svoleiðis.“
Réðu leigu-Morðingja
En það eru ekki allir Morðingj-
arnir sem halda í víking til Skot-
lands því bassaleikari sveitarinnar,
Atli Erlendsson, situr eftir heima en
hann varð faðir fyrir tæpri viku. Í
Atla stað hefur Bibbi úr hljómsveit-
unum Innvortis og Ljótu hálfvit-
unum verið fenginn til að hlaupa í
skarðið og má því segja að hann sé
nokkurs konar leigu-Morðingi.
„Hann er núna örugglega mjög illa
sofinn að reyna að læra Morð-
ingjalög,“ segir Haukur að lokum.
vij
Morðingjarnir til Skotlands í stað Reykjavíkur
Stórfiskaleikurinn gefur sveitinni séns
Mynd/Árni Torfason
Á leiðinni í víking
Morðingjarnir halda
til Skotlands í dag.
Söngkonan Anna Mjöll Ólafs-
dóttir heldur djasstónleika á Sólon
laugardaginn 6. júní næstkomandi
klukkan 22.00.
Anna Mjöll hefur verið búsett í
Englaborginni Los Angeles, þar
sem hún starfar sem söngkona.
„Ég kem alltof sjaldan heim til
Íslands að syngja, en þetta reyndist
frábært tækifæri og kærkomið. Ég
hef ekki verið alltof dugleg að
sinna samlöndum mínum hér á
Fróni, en ætlunin er að breyta því.
Á tónleikunum mun ég syngja
klassískan djass eftir þekkta flytj-
endur eins og Ellu Fitzgerald, Billie
Holliday og aðra, auk þess sem ég
mun taka nýrri lög. Annars má
segja að prógrammið samanstandi
af lögum frá 1930 til dagsins í
dag,“ segir Anna Mjöll sem hefur
notið fulltingis Geirs Ólafssonar
við að skipuleggja tónleikana.
„Ég hef auðvitað unnið mikið
með föður Önnu, honum Ólafi
Gauki, ég vissi af Önnu auðvitað
og í sameiningu komum við þessu
á koppinn,“ sagði Geir.
Djasstónleikar Önnu Mjallar
Djassgeggjari Anna Mjöll mun syngja
sig og aðra inn í sumarið.
FÓLK
lifsstill@24stundir.is a
Bergur Ebbi og Barði eru með flóknari
konsept sem ég eiginlega treysti mér
ekki til að útskýra.
Ókeypis
-heim til þín
- kemur þér við
poppmenning