Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Side 3

Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Side 3
farni Bárðarson frá Hóli ^OLUNGARVÍK við ísafjarðar- djúp er me'ð allra .elztu veiðistöð- Unt á landi hér og er nú að rísa til vogs og virðingar fyrir dugnað °g fyrirhyggju dugmikilla at- hafnamanna og nútíma tækni, sem bar ryður sér óðfluga til rúms og skapar íbúunum velmegun á borð við það sem er hér í kaupstöðun- Utn við Faxaflóa. Víkin hefur frá iandnámstíð verið þekkt sem ein allra fremsta veiðistöð þessa ]ands. Víkin horfir móti norðri °S úthafinu. Þar er allra veðra v°n að vetri til og eiginlega hvaða tima árs sem er. Þarna nam land, sem kunnugt er, norsk seiðkona, i’uriður sundafyllir af Háloga- iandi. Hún var svo kölluð, af því að hún seiddi öll sund nærri byggð smni full af fiski, þegar hallæri mikið hafði herjað svo að við hungri lá. Hún setti Kvíamið á Isafjarðardjúpi og tók til á koll- °tta af hverjum bónda í ísafirði, en bá var allt Djúpið kallað einu nafni ísafjörður, líklega eftir að th'afna-Flóki háfði gengið á fjöll UÍ>P írá Vatnsfirði á Barðaströnd °S séð flóann fullan af hafis. Og a'ltaf hefur það þótt boða góðan af'a, þegar fiskur var genginn á Kvíamið. Jóhann Bárðarson frá Bolungar- V|k hci'ur skrifað bók um víkina, sem heitir Áraskip. Er það merki- leg bók og hafi hann mikla þökk fyrir . það verk. í þeirri bók eru teiknúð fiskimið þau, er mest voru notuð, þar á meðal Kvíamið, og sést á því, að snemma hafa Bol- víkingar og Inndjúpsmenn, er uppsátur höfðu í Víkinni, verið djarfir til sjósóknanna. Ég minnist þess að hafa veturinn 1932—33 róið við annan mann á smátrillu, tveggja-manna-fari frá ísafjarðar- kaupstað og út á Kvíamið á gó- unni Við fengum einmuna veður þessa átta róðra, sem við rerum, en lítið held ég hefði orðið um varnir hjá okkur, ef veður hefði rokið upp. Allt frá dögum Þur- iðar hefur verið sóttur sjór þarna af kappi og margur stjórnsnill- ingurinn hefur fleytt skipi sínu yfir úfinn sjóinn og náð heilu og höldnu að landi, en margir hafa líka gist hina votu gröf í blátær- um sjónuin. Ég minnist þess til dæmis, að afi minn, móðurbróðir og tvcir langafabræður mínir auk margra frænda minna eru í þessu stóra, fagra hvilurúmi. Á þessari vík seiðkonunnar frá Hálogalandi hafa líka margar hetjudáðir verið drýgðar og margur maðurinn hrifinn úr liörðum greipum dauð- ans, bæði á sjó og við sjávarmál- ið, eltur út í ógnandi holskeflur, Bjarni Bárðarson hvítfyssandi, gráðugar og misk- unnarlausar. Meðal fornmanna, hinna miklu sæfara víkinga- . og sögu-aldar, þótti það sérstakt lán og heppni að bjarga mönnum úr sjávarháska. Leifur Eiríksson, landafundamað- urinn mikli, sem kallaður var hinn heppni, fékk ekki það viðurnefni fyrir að finna eina af heimsálf- unum, heldur fyrir það, að hann bjargaði heilli skipshöfn frá bráð- i um bana, sem hafði brotið skip sitt og hafðist við í eyðiskeri langt frá aílri mannabyggð. í þessum kafla verður sagt frá ein- um manni af svo mörgum sem ekki aðeins einu sinni, heldur þrisvar sinnum var svo lánssam- ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 243

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.