Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Síða 6

Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Síða 6
son bóndi á Ilvítanesi, bróðurson- ur Helga Hálídánarsonar lektors, Guðmundur Þorbjörnsson Guð- mundssonar í Eyrardal 16 ára. Alla þessa þrjá báta rak upp í Bolungarvík. Er nú ósagt frá fjórða bátnum, sem fórst þennan slysadag. Bátur sá hét Hlöðver og var frá Aðalvík. Á bátnum voru þessir sex menn: Friðrik Magn- ússon, formaður og útgerðarmað- ur á Látrum, Þorbergur Jónsson, Efri-Miðvík, ér átti bátinn með Friðriki Magnússyni, Hermann ís- leifsson, 47 ára og var það hann sem stýrði bátnum þessa svaðil- íör frá Straumnesi og vestur.yfir Djúp í blindhríð og myrkri. Fjórði var Jósep Hermannsson, er þá var f.vrirvinna aldraðra foreldra, fimmti var Óli Þorbergsson, sjötti Friðrik Finnbogason og er hans áður getið. Frásögn af svaðilför þessari yf- ir Djúpið er einhver sú stórkost- legasta sem um getur. Eru þeir báðir tii frásagnar um það formað- urinn, Friðrik Magnússon, og nafni hans, Friðrik Finnbogason. Hefur síra Sigurðúr Einarsson, prestur í Hoiti, skrifað skilmerkilega gréin af frásögn þeirra eftir að hafa talað við þá báða samtímis, ennfremur er frásögn Friðriks skrifuð af honum sjálfum í bók- inni, Áraskip, bls. 118. Hér verður þó nokkuð sagt frá björgun þeirra félaga, er bát þeirra hvolfdi í lendingu í Bol- ungarvík í brimi og myrkri. Sjó- menn er voru nð gera að afla sín- um urðu þeirra varir og brugðu fljótt við, skinnklæddust og óðu upp undir hendur út í sjóinn til að grípa hvern þann, er hægt var að ná til. Ekki segja þeir Friðrik- arnir, enda lítið um það vitað, hverjir voru þarna að verki. En Bolvíkingar kunna frá einum manni að segja, er þar vann það afrek, sem lengi var í minnum haft; var það Bjarni Bárðarson, hinn handsterki og öruggi fullhugi. Einn mannanna, Jósep Heimiannsson, lenti undir bátnum og var fastur, en Bjarni og tveir menn aðrir óðu að bátnum og bauðst Bjarni til að lyfta bátnum að framan, meðan hinir tveir reyndu að ná manninum undan bátnum, áður en næsta ólag riði yfir, og tókst það. Er svo sagt, að maðurinn lægi þversum undir bátnum og stóðu höfuð og herðar útundan bátnum öðrum megin, en fætur hans hinum megin. Svo seg- ir Finnbogi Bernódusson, er var þó með sterkustu mönnum þar, að svona handtök mundu fáir leika við svo erfiðar aðstæður, og tel ég það til fádæma, segir Finnbogi ennfremur. Þarna tókst að bjarga strax öllum nema einum, Friðriki Finnbogasyni, en hans var leitað og fannst hann meðvitundarlaus í næstu vör og var hann lagður á tunnu og náðist þá sjór upp úr honum og hresstist hann brátt, en fékk þó snert af lungnabólgu og fór formaður bans strax daginn eftir til ísafjarðar að sækja með- ul handa honum. Friðrik Magnús- son var hið mesta hraustmenni og lengi formaður, bæði á ára- sklpum og síðar mótorum. Hann dó 1957, en var fæddur 8. júií 1877. Það leiö lieil vika þar til venzíafólk þessara Aðalvíkinga fékk fréttir af þeim og má nærri geta um fögnuð þann, sem ríkti norður þar, þegar hópurinn birt- ist einn daginn á brekkubrún fyr- ir ofan bæinn í Miðvík. Skal nú skilið við þennan slysa- dág, en þegar Bjarni kom heim til sin að Ytribúðum, barði hann að dyrum, en ekki heyrðist til hans fvrir veðurol'sanum. Barði hann þá aftur og svo liarkalega að ekki þurfti upp að ljúka, því að hurðin mölbrotnaði og var þó sterk og vel frá henni gengið. Var þarna þá stödd kona, er ekki var þar til heimilis og var henni lengi minnisstætt þetta atvik, sem von var, en Kristín undraðist minna, því að hún hafði víst ýmislegt séð, sem fáir léku sem Bjarni, ef hann var í þeim ham, sem hann var þetta skipti. Á sumardaginn fvrsta 24. apríl 1913, var mesta afspyrnurok við ísafjarðardiúp. í roki þessu brotn- uðu nokkrir bátar í Bolungarvík oe í Hnífsdal og líklega hafa þá víðar orðið skemmdir þar vestra, bótt enn sé bað ófrétt. (Þióðvilj- inn, 30. anríi 1913). Blíðskanar- veður var bá í Revkjavík. Blaðið ísafold segir svo 26. apríl: Aftaka- veður var við ísafjarðardjúo á sumardaginn fyrsta. Þrír bátar höfðu brotnað í Hnifsdal og eitt- hvað af bátum í Bolungarvík, en manntjón þó eigi orðið. — Dag- blaðið Vísir segir 27. april: — í ofsaveðri í dag (fimmtudag) (fregnin er frá Bolungarvík). Báts tapar. — fórst mótorbátur hé'ðan úti á Djúpi; mannbjörg varð með naumindum. Annan mótorbát rak hér upp og brotnaði í spón. Átta mótorbátar héðan hleyptu til ísa- fjarðar. í Hnífsdal brotnuðu fjórir mótorbátar. Ilaraldur Stefánsson dagbókar- höfundur í Bolungárvík skrifaði í bók sína þennan eftirminnilega dag: — 24. apríl, sumardagur fyrsti. — Austan andvari til kl. 1 um daginn, eftir það gekk hann í N.-rok með bleytukafaldshríð, var veðrið með því mesta sem kemur. 8 mótorbátar hleyptu héð- an til ísafjarðar. 4 mótorbátar sukku í Hnífsdal og brotnuðu mik- ið. Vélbáturinn ,.l\Iávur”, sem var að koma úr róðri, sökk. Mennirn- ir björguðust yfir í annan bát. Vélbáturinn Guðrún sökk hér á höfninni. Vélbátarnir Hringur, Sóló og Frægur slitnuðu upp og drifu hér í land. M.k. Hekla frá Eyjafirði strandaði hér á sandin- um. Menn björguðust allir.” — Þannig eru þær helztu skrifaðar heimildir sem finnanlegar eru um veðrið á sumardaginn fyrsta 1913 og afJeiðingar af því. Um Mávinn er það helzt að segja, að hann var veikbvggður danskur bátur mcð Alfavél, og voru sumir bátar af þessari gerð keyptir með vél- inni í frá Danmörku. En þeir voru eins og gömlu árabátarnir ekki nógu sterkir fvrir vélarnar, og það fundu menn með tíð og tíma. Þeaar Mávurinn sá, að ekki var lendandi í Vikinni, sneri haiin frá landi og keyrði beint í báruna, en bað boldi báturinn ekki og brotnaði að framan eða sprakk eins oa sumir orða það. Var nú ekki að sökum að spyrja. Bátur- inn fvlltist brátt af sjó og vélin stöðvaðist. Bátinn bar að landi, hann náleaðist óðum grunnbrotin. oa enain hjálp gat borizt úr landi- Mennirnir, er voru siö að tölu, biðu barna bess er verða vildi án bess að geta nokkuð aðhafzt sér til biargar, og hlýtur bað að hafa verið hrollvekjandi tilhugsun bæði 246 SUNNUDAGSÚJ.AÐ _ ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.