Sunnudagsblaðið - 17.04.1966, Qupperneq 8
-
iliiSi*
■ ;'i..
■ ' . ,
. i ‘ ■
-
/; .■:' ■ ;
;:i
Bolun írarvík.
bátnum inn til Bolungarvíkur.
Sagt er, að bátur sá hafi verið úr
Álftafirði.
Eitt sinn var það er Bjarni var
á sjó, líklega sem háseti, að línan
festist £ skrúfunni og stöðvaðist
vélin og varð ekki komið í gang.
Bjarni lét binda á sig streng og
fór svo útbyrðis og kom ekki inn
aftur, fyrr en hann hafði skorið
hvern spotta úr skrúfunni. Það
mætti segja margar sögur af
hreysti og hugdirfð Bjarna. En
hann var aldrei fyrir það sjálfur
að gera mikið úr verkum sínum,
og skal hann ekki á hinu eilífa
lífsins landi argast'yfir masi um
þá hluti, er hann sjálfur taldi
einskis virði. Bjarni var góður
glímumaður og talinn með allra
sterkustu mönnum síns tíma í Vík-
inni. Bjarni reri lengi með gæða-
manninum Jóhannesi Jenssyni,
líklega á Vigurbrelð. Voru þar þá
eitt sinn fimm mestu ræðarar í
Bolungavík og þótt sá bátur væri
þungur í róðri, þurfti þá enginn að
reyna að róa fram úr þeim. En
sagt var að margar brotnuðu ár-
arnar á því skipi, er þessir ber-
serkir voru saman komnir, en svo
var sagt um þessa menn, að engin
ár væri svo sterk að þeir gætu
ekki brotið hana um legginn í
róðri, ef þeim bauð svo við að
horfa, og var Bjarni einn af þeim.
Eitthvert sinn, er Bjarni var ungur
eða innan við átján ára aldur, var
staddur í búð Bárðar föður hans
mikill slagsmála og áflogahundur,
Jón Matthíasson. Voru þeir Bjarni
þá eitthvað að takast á og lagði
Jón Bjarna. Þá sagði Bárður: -r
Það er mannlegt að detta Bjarni,
en að standa upp aftur! Réðist þá
Bjarni aftur á’Jón og kom honum
undir, Þessi vel fseri maður sém
var um leiö mikill fiskimaður og
nökkuð drykkfelldur, fór til Ame-
ríku. Þar var hann eitt sinn stadd-
ur í banka um miðjan dag. Komu
þá tveir ræningjar inn og ógnuðu
starfsfólkinu með byssum og þorði
enginn að hreyfa sig. En fyrr en
varði réðist Jón á annan ræningJ
ann og gat rotað hann, en fékk
um leið skot í kviðinn, sem þó var
ekki alvarlegt, en ræningjarnu
urðu handsamaðir fyrir snarræði
Jóns. En þegar blað eitt í borginni
sagði frá atburðinum hélt ritstjór-
inn því fram, að annað hvort hefði
maður þessi verið vitlaus eða Þa
að hann hefði verið íslendingur-
Já, þeir voru margir karlmenm
þessir sjóarar í Bolungavíkinni og
eru það eflaust enn, því nú er þar
að rísa sjómanna borg með ny-
tizku sniði og vélvæðingu.
Bjarni andaðist í Reykjavík 9-
maí J957.
248 SUNNUDAGSBLAÐ, _ ALÞÝÐUBLAÐIÐ
»