Morgunblaðið - 24.09.2003, Blaðsíða 5
Útgefandi: Árvakur hf. • Ábyrgðarmaður: Gestur Einarsson • Efnisstýring, hönnun
og útlit: Gunnar Sverrisson og Halla Bára Gestsdóttir, lifun@mbl.is, sími 894 0038 •
Aðrir höfundar efnis: Elsa Ævarsdóttir og Guðlaug Halldórsdóttir • Ljósmyndir:
Gunnar Sverrisson • Auglýsingasala: lifunaugl@mbl.is, sími 569 1111 • Tímarit sem
fylgir Morgunblaðinu mánaðarlega • Prentun: Prentsmiðja Árvakurs hf. • Upplag:
55.000 eintök • ISSN 1670-3863. Púðarnir á forsíðunni eru eftir Guðlaugu
Halldórsdóttur og fást í má mí mó.
lifun
upplifun
Beðist er velvirðingar á því að í síðasta
tölublaði Lifunar misfórst að greina frá
nafni innanhússarkitektsins Rutar
Káradóttur í innliti í tvö stúlknaherbergi
en Rut hannaði herbergin og innrétt-
ingarnar. Beðist er velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
Nú eru árstíðaskipti. Litabreytingar. Við erum meira
inni við og viljum hafa það gott heima. Hafa fallegt í
kringum okkur og búa okkur og heimilið undir veturinn
og myrkrið.
Við gerum ýmislegt til að geta slakað á og skapað
okkur aðlaðandi umhverfi; skreytum með kertum og
lifandi ljósi, fáum okkur eitthvað gott að borða og
drekka, horfum á sjónvarpið, lesum, spjöllum við
ættingja og vini, leikum við börnin. Flestar þessar
athafnir fara fram í því herbergi í húsinu sem á
íslensku kallast stofa – frekar ætti það að vera „rými
til daglegra athafa“ eða „hið lifandi herbergi“.
Þetta herbergi þarfnast stöðugrar athygli og reglu-
legrar endurnýjunar, hvort sem hún er stór eða smá í
sniðum.
Oft nægir að setjast niður og líta í kringum sig.
Velta fyrir sér hvort of mikið áreiti sé í umhverfinu;
fækka hlutum, endurraða, mála, skipta um gardínur,
kaupa fallegan hlut í herbergið, skoða lýsinguna og
athuga hvort herbergið bjóði jafnvel upp á leynda
mögueika.
Hversdagsleiki, skemmtan, friður og ró með Lifun.