Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 26.04.1964, Qupperneq 8

Sunnudagsblaðið - 26.04.1964, Qupperneq 8
LISTVINAHUSIÐ Frh. af bls. 323. arinnar. Einn hvellur. Og sjá: Mannvirkin eru að engu gerð. Allt cr gleymt, séhi bendit til þess, að nokkru sinni hafi lifað menn og listámenh á SkólaVorðuhæð, — þar er ekkert eftir nema Hall- grímskirkjan. Bara kírkjan og skólinn! Her stóð Kjarval og fór með liti sina og lércft. Eggcrt stóð hér og teiknaði. Guðmundiir mótaði hér andlit í steininn. Hér kom fólk og keypti kunningjunum gjafir. En nú er ekkert, meir. . Ekkert meir! Listvinahúsið á Skólavörðuhæð var reist árið 1922 að tilhlutan fé- lagsskapar, er stofhsettur var hér í Reykjavík laust fyrir 1920 og hafði það á stefnuskrá sinni að veita ungum og úpprennándi lista- mönnum brautargengi;. Þórarinn B. Þorláksson, hinn góðkunni list- málári, sem nefndur hefuir verið faðir íslenzka landsíagsinálverks- ins, skrifaði bæjarstjóm í maí 1922 og sótti fyrir hönd Eistvina- félagsins um leyfi til að byggja liús, er ætlað yrði til sýninga á listaverkum og listiðnaði. Var um- sóknin samþykkt í júní’1922 og íélaginu úthiutað lpð á Skólavörðu liæð vestanverðri. Þórarinn B. Þorláksson teiknaði húsið og var það í öllum atriðum byggt eftir þeirri teikningu. Mcnn voru þó inisjafnlega ánægðir með tillögur hins merka listamanns og varð kollega hans, Guðmundur Thorsteinssen (Muggur)-meðal ann arra til þess að bénda á, að þar mætti æði margt betur fara. Til dæmis taldi Muggur að húsið ætti að vera búið loftgluggum til að bjartara yrði í salnum. Þrátt fyr- ir þessar ábendingar var þó ckki vikið frá uppdrætti Þórarins og lians fyrirsögn fylgt til hlítar. Með byggingu Listvinahússins var unnið þarf verk fyrir frum- kvæði Listvinafélagsins. Fram að mönnum oft reynzt erfitt að fá inni fyrir sýningar sínar, og þar sem allmikil grózka var í listalífi þjóðarinnar um þessar mundir varð þörfin fyrir nothæft sýning- arhúsnæði sífellt brýnni. Að Listyinafélaginu, sem því miður lognaðist út af 1925—’26, stóð margt merkra manna, er höfðu orð á sér fyrir stuðning við listir og menningarmál. Má þar nefna þá Alexander Jóhannesson prófessor, Bjarna frá Vogi, Magn- ús Jónsson próf. og Matthías Þórð- arson þjóðminjavörð. Sakir ým- issa örðuglcika kom þó að þvi að þessir heiðursmenn urðu að láta í minni pokann fyrir aldarandan- um og slíta félagsskapnum og láta húsið af hendi. Á fyrstu árum Listvinahússins voru haldnar þar nokkrar ágætar listsýningar og meðal þeirra lista- mánna, er þar áttu hlut að máli má nefna tvö öndvegislistamenn þjóðarinnar fyrr og síðar, þá Ás- grím Jónsson og Jóhannes Kjar- val. Og sjálfur bjó Kjarval í vest- urenda hússins í nokkur ár. Og Eggert Guðmundsson stalst þar in'n og málaði í heilan vetur. A meðan Jóhannes Kjarval bjó í Listvinahúsinu var það allra húsa skcmmtilegast. Það cr til dæmis í frásögur fært, aö Kjarval hafi þar átt að sambýlisinanni danskan kynjakvist, cr Kaj Millner var ncfndur, og kunnur var að ýmis konar skrítilegheitum, cnda vart heill á sönsum. Kaj Millner tók upp á frálcitustu tiltækjum og fann meðal annars upp á því bæði hér á íslandi og lieima hjá sér í Danmörku, að spranga um götur í kjól og hvítt mcð tófu- skolt hangandi um licrðar. Af samskiptum þeirra Kjarvals ganga margar sögur og kostuleg- ar, meðal annarra sú, er segir, að einhverju sinni, er Kjarval þurfti að skrcppa úr borginni og lét Millner einan, hafi sá síðarnefndi verið búinn að ráðstafa öllum mál verkum meistarans, er liann kom í bæinn aftur. Og er Kjarval fór að rannsaka, hverju það sætti, að myndir hans væru allar horínar, gerði Millner þá játn- ingu, að hann hefði gefið þær vin- um sínum og kunningjum. „Já, þu ert höfðingi“, varð Kjarval þá að orði og var ekki mcira um þetta talað þeirra í miUi. Einhverju sinni vakti Millner Kjarval sambýlismann sinn að næt ux-lagi og hrópaði hástöfum: „Teatret brændcr! Teatret bræn- der!“ „Æ, þegiðu strákur", anzaði Kjarval og sneri sér til veggjar. „Teatret brænder! Teatret brænd- er!“ endurtók Millner og bar óð- an á. „Æ, þegiðu strákur", svaraði Kjarval sem fyrr. „Teatret brænd- cr!“ öskraði Daninn í þriðja skipti og hristi Kjarval allt livað af tók. Þá reis Kjarval upp við dogg og þeim tíma hafðl reykvískúm lista- 328 SUNNUDÁGSBIíAÐ ALÞÝÐUBXAÐIB ^

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.