24 stundir - 10.09.2008, Blaðsíða 1

24 stundir - 10.09.2008, Blaðsíða 1
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur fifa@24stundir.is Kristbjörg Marteinsdóttir æfir nú stíft fyrir Avon-gönguna í New York þar sem safnað er til styrktar rannsóknum á brjóstakrabba- meini. Hún greindist með brjósta- krabbamein árið 2003 en í febrúar á þessu ári greindist hún aftur, nú með meinvarp í hægra lunga og hefur verið í vikulegri lyfjameðferð síðan í byrjun mars. Heldur mér við efnið „Katrín Sveinsdóttir vinkona mín er líka að fara í gönguna og hún plataði mig til að taka þátt. Ég lét slag standa en hélt reyndar að ég yrði búin í lyfjameðferðinni,“ segir Kristbjörg og bætir við: „Ég ákvað að það væri mitt markmið að fara. Þetta er rosalegur hvati og heldur mér við efnið. Ef ég væri ekki að fara út væri ég ekki búin að vera svona dugleg.“ Hún segir gönguna styrkja sig mikið. „Í fyrstu göngunni eftir að ég kom af spítalanum komst ég varla nokkra metra. Nú geng ég 10 km eins og ekkert sé og upp í 20 suma daga. Í staðinn fyrir að taka bíllyklana og hoppa upp í bíl hugsa ég hvort ég geti ekki gengið.“ Kristbjörg gengur um 60 kíló- metra á viku til að halda sér í þjálf- un en vegna lyfjameðferðarinnar Maraþon í miðri lyfja- meðferð  Ætlar að ganga 64 kílómetra á tveimur dögum þrátt fyrir lungnakrabbamein ➤ Avon-gangan fer fram í NewYork 4. og 5. október. Gengnir eru 42 km fyrri daginn en 21 þann seinni. ➤ Styrktarfélagið Göngum sam-an styrkir rannsóknir á brjóstakrabbameini og stendur fyrir vikulegum gönguferðum. GÖNGUR hefur þurft að tappa vatni af hægra lunganu nokkrum sinnum. „Ég er ekki með fullstarfandi lunga en ég er bara með rosalega gott vinstra lunga,“ segir hún og hlær. Hún seg- ir lyfjagjöfina líka hjálpa mikið og þakkar fyrir að þurfa ekki að gang- ast undir lyfjapróf fyrir gönguna. Gengur gegnum lyfjameðferð „Ég er rosa spennt að fara, það er farið að styttast í þetta,“ segir Krist- björg. Til þess að öðlast þátttökurétt þurfa konur að safna áheitum fyrir 1800 dollara hið minnsta. „Við vilj- um eiginlega ekki safna meiru því þeir peningar yrðu eftir úti, við viljum frekar safna hérna heima. Margar hafa verið að safna fyrir Krabbameinsfélagið en ég safna fyrir Göngum saman, enda segi ég að ég sé raunverulega að „ganga“ í gegnum lyfjameðferð.“ 24stundirmiðvikudagur10. september 2008172. tölublað 4. árgangur Tortilla, grillaður kjúklingur, kryddhrísgrjón, jalapeno og mikið af osti. Taco Bell | Hjallahrauni 15 | Sími: 565 2811 | www.tacobell.is Þú leggur línurnar Létt & laggott! – Línurnar í lag! L&L E N N E M M / S Í A / N M 3 2 1 6 5 Gerði Kristnýju rithöfund langaði til að skrifa draugasögu fyrir unglinga þar sem hún gæti leyft sér smá óhugnað en sjálfri finnst henni slíkar sögur eftirminnilegar. Alvöru óhugnaður MENNING»19 Bardagakappinn Gunnar Nelson hef- ur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu á sviði blandaðra bar- dagalista. Hann er ósigraður á at- vinnumannsferli sínum. Nelson tekur slaginn FÓLK»30 Börn og uppeldi 11 12 13 13 11 VEÐRIÐ Í DAG »2 Dómsdagsspámenn hafa spáð heimsendi í dag. Baggalúts-liðar bíða spenntir eftir því að sjá hvort þeir hafi rétt fyrir sér í þetta skipti. Heimurinn ferst í dag »26 Helmingslíkur eru á því að Logi Gunnarsson körfuknattleiksmaður leiki með Njarðvík á næstu leiktíð eftir sex ára veru í at- vinnumennsku. Á leið heim? »14 „Án sérstaks samnings um inn- heimtu seðilgjalda er hún ólög- mæt,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem tel- ur þörf á að beita sektum. Ólögleg innheimta »22 SÉRBLAÐ Brúðuleikhússýning þar sem brúður talasaman um kynferðislegt ofbeldi virðist hafaþau áhrif að börn tali frekar um ofbeldi semþau hafa verið beitt. Eftir eina slíka sýninguúti á landi komu átta tilkynningar um kyn-ferðisofbeldi til barnavernd-arnefndar. Brúður tala saman »16 „Fyrstu dagarnir í skólanum geta verið erfiðirfyrir börnin,“ segir Magnea Jóhannsdóttirnámsráðgjafi. Allur undirbúningur skiptirmáli þegar kemur að því að koma rútínu íréttar skorður. Ræða þarf við börnin ummikilvægi þess að líða vel ogað hafa reglu á hlutunum.“ Erfiðir dagar »17 „Í fæðingu getur myndast mikil spenna ílíkama barns, enda ein erfiðasta upplifunsem við göngum í gegnum. Bara það aðbarnið þurfi að snúa sér niður í fæðing-arveginn, komast út og byrja að andaveldur spennu,“ segir LiljaÁsgeirsdóttir græðari. Spenna í líkamanum »18 BÖRN OG UPPELDIAUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@24STUNDIR.IS Lög um akstursbann og sérstök námskeið fyrir unga ökumenn hafa borið mikinn árangur. 55% færri hafa framið svo alvarleg brot að beitt hafi verið akst- ursbanni eða sviptingu. Umferðarbrotum ungra fækkar »6 Forsvarsmenn fjárfestingarbank- anna VBS og Saga Capital töldu það ekki gott skref að sameinast Icebank. Saga Capital og VBS hafa hafið formlegar sam- einingarviðræður. Sameiningu við Icebank hafnað »12 „Ég get bara ekki hætt að brosa. Ég er hæstánægður að þurfa ekki að fara frá fjölskyldunni,“ segir Mark Cumara, 23 ára Þorlákshafnarbúi sem 24 stundir sögðu frá á laugardag. Þá stóð til að hann yrði sendur úr landi um miðjan september en nú hefur hann fengið leyfi til að dveljast hér á með- an mál hans er til umfjöllunar hjá Útlendingastofnun. Ekki sendur úr landi Mynd/Egill Bjarnason „Get bara ekki hætt að brosa“ Blokkirnar í fyrsta áfanga Skuggahverfisins verða endurklæddar vegna galla. Framkvæmdir munu standa fram á vor og gæti kostnaður num- ið tugum milljóna króna. Óljóst er hver ber kostnað vegna þessa. Lúxusblokkir í Skuggahverfinu Verða klæddar á ný »2 »10

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.