24 stundir - 10.09.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Umboðsmenn mínir eru á fullu að reyna að
finna lið sem hentar mér. Það hefur ekki
gengið eins og maður vildi en ég hef ákveðið að
gefa þessu tíma út mánuðinn.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@24stundir.is
„Ég er búinn að vera í þreifingum
við ýmis lið og hef fengið tilboð
sem mér hafa ekki fundist nógu
spennandi. Ég er kominn með fjöl-
skyldu og vil ekki lækka mig neitt í
launum frá því sem var síðast. Ef
ekkert kemur inn á borðið sem
hentar verðum við bara heima á Ís-
landi. Þar horfi ég alltaf fyrst og
fremst til Njarðvíkur enda uppal-
inn þar. Ég er í miðjum viðræðum
við menn þar og erfitt að segja hvað
gerist í því en ég hallast alltaf fyrst
og fremst að heimabæ mínum ef ég
hugsa heim,“ sagði Logi þegar
blaðamaður hitti hann að máli.
„Gef þessu tíma út mánuðinn“
Hann hefur upp á síðkastið verið
við æfingar með íslenska landslið-
inu sem hefur í dag keppni í B-deild
Evrópukeppninnar með leik við
Dani kl. 20.45 í Laugardalshöll.
„Núna einbeiti ég mér bara að
leikjunum með landsliðinu en á
meðan eru umboðsmenn mínir á
fullu að reyna að finna lið sem
hentar mér. Það hefur ekki gengið
eins og maður vildi en ég hef ákveð-
ið að gefa þessu tíma út mánuðinn.
Ef ekkert verður komið fyrir 1.
október ætla ég ekki að eltast við
þetta lengur heldur reyna að semja
við lið hérna heima. Það er ákvörð-
un mín að gefa þessu tíma út sept-
ember og sjá til þá hvað umboðs-
menn mínir hafa handa mér,“ sagði
Logi.
Komi hann heim verður hann
þriðji landsliðs- og atvinnumaður-
inn á skömmum tíma til að snúa
heim því þeir Jón Arnór Stefánsson
og Jakob Örn Sigurðarson sömdu
við KR fyrir stuttu. Þeir töluðu
reyndar báðir um að hafa einfald-
lega saknað heimahaganna svo
mikið en Logi vill ólmur halda
áfram í atvinnumennskunni ef
nægilega gott tilboð berst.
Í öðruvísi stöðu en Jón Arnór
„Ég er í öðruvísi stöðu en þeir
[Jón Arnór og Jakob Örn] að því
leyti að ég er með fjölskylduna
mína með mér. Ég hef alltaf verið
með unnustuna mína, Birnu Björk
Þorkelsdóttur, með mér og við
eignuðumst barn saman úti á
Spáni, og ég hefði ekkert haft á móti
því að vera áfram þar ef eitthvað
gott byðist. Auðvitað er ekkert
gaman að vera alltaf að flakka á
milli staða en ég náði því t.d. að
vera í Þýskalandi í fjögur ár og hef
því ekki verið á jafn miklu flakki,“
sagði Logi, og játti því að kannski
væri staðan örlítið að breytast í evr-
ópskum körfubolta.
„Það eru margir leikmenn að
leita sér að liðum, og t.a.m. hafa
fjórir úr liðinu sem ég var í í fyrra
ekki fundið sér lið, þó að við höfum
verið í úrslitum um að komast upp
í efstu deild á Spáni. Þetta er
kannski vegna þess að það eru
komnir fleiri Ameríkanar inn í
deildirnar og það bitnar aðeins á
okkur evrópsku leikmönnunum.“
Logi fór ungur til Bandaríkjanna
og lék þar körfubolta samhliða
námi, og eftir tvö tímabil hér heima
með Njarðvíkingum hélt hann svo í
atvinnumennsku til Þýskalands.
„Ég fór frá Njarðvík 2002 til Ulm
í Þýskalandi og var þar í eitt tímabil
sem gekk mjög vel. Þaðan fór ég til
Giessen í tvö ár en meiddist á fyrra
tímabilinu og var svolítinn tíma að
koma mér í gang aftur. Svo tók ég
eitt ár með Bayreuth og var þá bú-
inn að vera fjögur ár í Þýskalandi,
þannig að mér fannst kominn tími
til að breyta til og fór til Finnlands
2006. Þar átti ég gott tímabil sem
lauk í mars eða apríl þannig að ég
fór beint til Gijon á Spáni og náði
nokkrum leikjum í úrvalsdeildinni
en við féllum svo um vorið. Ég
samdi samt við Gijon aftur því þeir
ætluðu sér beint upp aftur en því
miður töpuðum við í úrslitaleik um
það síðasta vor,“ sagði Logi, sem vill
vera atvinnumaður svo lengi sem
skrokkurinn leyfir.
Í góðu lagi að koma heim
„Ég fór út tvítugur og hef verið
sex heil tímabil úti en var líka í
menntaskóla í Bandaríkjunum þeg-
ar ég var 16-18 ára. Samanlagt er ég
því búinn að vera úti í átta ár en ég
er engan veginn orðinn þreyttur á
því.
Ég vil vera atvinnumaður á með-
an líkaminn leyfir, til svona 36 ára
aldurs, en ef ég þarf að koma heim í
eitt eða fleiri ár þá er það í góðu
lagi. Ég stefni samt ótrauður á að
vera áfram úti og það getur ým-
islegt gerst á næstu vikum. Spánn er
aðalstaðurinn sem ég vil vera á því
körfuboltinn er á háu stigi þar og
mér finnst líka mjög gaman að búa
og vera á Spáni. Ég skoða samt alla
möguleika.
Ég met það þannig að það séu
helmingslíkur á að ég komi heim og
þá vil ég helst fara til Njarðvíkur.
Það yrði ekkert slæmt og ég veit
að tengdaforeldrarnir og mamma
og pabbi væru nú alveg til í að fá
stelpuna okkar, Söru Björk, heim í
heilan vetur í staðinn fyrir að horfa
bara á hana í gegnum netið.“
Landsliðs-
maður Lands-
liðið á hug Loga
allan þessa dag-
ana en það mætir
Danmörku í
kvöld.
„Vil vera atvinnumaður
á meðan líkaminn leyfir“
Helmingslíkur á því að Logi Gunnarsson körfuknattleiksmaður leiki með sínu gamla félagi, Njarðvík,
á næstu leiktíð Landsliðsmaðurinn einbeitir sér að verkefnum landsliðsins þar til málin skýrast
Njarðvíkingurinn Logi
Gunnarsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik,
segir helmingslíkur á að
hann leiki í Iceland Ex-
press-deildinni á Íslandi
nú í vetur eftir sex ára
veru í atvinnumennsku.
Hann segist þó hvergi
nærri orðinn þreyttur á
að spila á meginlandi
Evrópu og horfir þar
helst til Spánar, en þar
hefur hann spilað síðustu
tímabil og búið ásamt
konu sinni og dóttur sem
orðin er hálfs árs gömul.
➤ Logi hefur frá árinu 2002 leik-ið í atvinnumannadeildum í
Þýskalandi, Finnlandi og nú
síðast á Spáni með Gijon.
➤ Hann lék í fjögur ár í Þýska-landi með Ulm, Giessen og
Bayreuth. Veturinn 2006-
2007 lék Logi með ToPo í
Finnlandi.
ATVINNUMAÐUR Í 6 ÁR
24stundir/Golli
Ólafsfirðingurinn Baldur
Ævar Baldursson endaði í 7.
sæti í langstökkskeppninni
á Ólympíumóti fatlaðra í
Peking í gær. Baldur stökk
5,42 metra sem er jöfnun á
besta árangri hans í T 37-
flokknum. Hann komst í
úrslit í keppninni en hann
hafði sett sér það markmið
að enda í 5. sæti.
Ólafsfirðingurinn Baldur Ævar jafnaði sinn besta árangur í Peking