24 stundir - 10.09.2008, Blaðsíða 18

24 stundir - 10.09.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2008 24stundir KYNNING Nýverið opnaði verslunin Urban dyr sínar fyrir viðskiptavinum en þetta er töff verslun fyrir flotta stráka. Jón Davíð Davíðsson, verslunarstjóri Urban, segir versl- unina, sem er staðsett á þriðju hæð í Kringlunni, þegar hafa fengið góð viðbrögð. „Ég myndi segja að þetta væri flott búð fyrir unga stráka, hvort sem þeir vilja vera í götutísku eða fínni. Við bjóðum upp á vörur frá G-Star, Diesel-línu sem er hönnuð á 12- 16 ára stráka, Levı́s, nýtt merki sem heitir Tumble Ń Dry og hin- ar sívinsælu Björkvin-hettupeysur. Hettupeysurnar hafa verið sér- staklega vinsælar nú þegar skól- arnir eru nýbyrjaðir. Auk þess fáum við fljótlega nýtt merki sem heitir Wesc sem er rosalega vin- sælt erlendis og við búumst við álíka vinsældum hér á landi.“ svanhvit@24stundir.is Urban er verslun fyrir unga flotta stráka Hettupeysurnar vinsælar Flottur Í Urban má fá flott föt á töff stráka. ALLT SEM HUGURINN GIRNIST Verslanir opnar mán-mið 11-19, fim 11-21 fös 11-19, lau 11-18 og sun 13-18 smaralind.is / 528 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 3 5 3 3 8 Höfuðbeina- og spjaldhryggs- meðferð er óvenjulega mild en jafnframt öflug meðferð, sem hef- ur það meginmarkmið að skapa heilbrigt jafnvægi á öllum sviðum líkamsstarfseminnar og viðhalda því. Með léttri snertingu er losað um spennu og vinding í lík- amanum og hefur slík meðferð reynst vel þeim ungabörnum sem þjást til að mynda af ung- barnakveisu, eyrnabólgu og svefn- leysi, að sögn Lilju Petru Ásgeirs- dóttur, lífeindafræðings og græðara. Spenna myndast í fæðingu „Í fæðingu getur myndast mikil spenna í líkama barnsins, enda er þetta ein erfiðasta upplifun sem við göngum í gegnum á lífsleið- inni. Bara það að barnið þurfi að snúa sér niður í fæðingarveginn, komast út og byrja að anda veldur spennu í svokölluðum þverhimn- um sem skipta líkamanum í hólf. Það er að segja magasvæði, háls- svæði og höfuðið. Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð er mjög spennulosandi meðferð þar sem ég nálgast barnið rólega og að- stoða það við að komast í full- komið jafnvægi. Eins afmyndast höfuðkúpan mikið í fæðingunni og hefur náttúrulegan hæfileika til að rétta sig af, en ef það tekst ekki sem best er meðferðin einnig afar góð til að aðstoða við það ferli,“ segir Lilja Petra. Höfuðið viðkvæmast Lilja Petra segir það orðið nokkuð algengt að foreldar komi með ung börn til sín í meðferð og þá allt niður í nokkurra vikna gömul. Hún nálgast barnið rólega og gefur því þann tíma sem þarf til að kynnast sér og sinni orku. Til að byrja með talar hún við barnið og meðhöndlar það gjarn- an á meðan það er í fanginu á foreldrum sínum. „Ég byrja gjarn- an á því að snerta fæturna létt, síðan kviðsvæðið og síðast höf- uðið þar sem það er viðkvæmasti hlutinn og sá sem börnin vilja verja. Oft fáum við börnin líka til að liggja á bekk og vinnum með þau þar. Meðferðin snýst í raun um létta snertingu þar sem unnið er mjög huglægt og tengt inn á ákveðin svæði í líkamanum. Snertingin er í sjálfu sér mýkri en nudd og unnið með festur sem hægt er að losa um til að láta barninu líða betur,“ segir Lilja Petra. Má nota á meðgöngu Höfuðbeina- og spjaldhryggs- meðferð hentar öllum aldurs- hópum en í meðferð eldri barna er gjarnan notaður leikur og þau látin lita eða leika sér á meðan meðferðaraðilinn situr með barn- ið í fanginu. Lilja Petra segir að einstaklingsbundið sé hve oft þurfi að koma með börnin, stundum dugi einn tími en stund- um þurfi að koma oftar. Meðferð- ina er einnig hægt að nota á með- göngu og nokkuð er um að ljósmæður hafi lært aðferðina til að nota sem aðstoð við fæðingu. maria@24stundir.is Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð fyrir ungabörn Mild og róleg snerting Lilja Petra Algengt að foreldrar komi með ung börn í meðferð.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.