24 stundir - 10.09.2008, Side 32
24stundir
? Hver árstíð hefur sinn sjarma. Haust-ið er mitt uppáhald. Hressandi haust-lægðir, hallandi sólargeislar og laufblöð ídumbrauðum, gulum og alls kyns brún-um litum. Bak við mína haustrómantíklúrir minning um að rölta í skólann ínýprjónaðri appelsínugulri peysu meðhjartamynstri, sparka í vel valinn stein
og leyfa honum að rúlla með mér áleiðis
í ferska haustloftinu.
Sumarið er núna að baki og í lífi okk-
ar allra hafa ýmist gerst ævintýr eða ekki.
Allt sögur í sjálfu sér. Það sem við reyn-
um skilur stundum eftir sig merki sem
líkaminn skrásetur. Lifandi manneskjur
fá ör. Með tímanum verður til eins kon-
ar ævisaga í formi öra, hrukkumyndana,
húð- og æðaslits. Svo ekki sé minnst á
breytingar á eðlilegum háralit, tann- og
háramissi! Við getum safnast saman
undir teppi með kakóbolla, nú þegar fer
að kólna, og sagt hvert öðru örasögur.
Þrætt líkamann frá höfði niður að tám.
Sjáðu, hér er ör á handarbaki eftir elda-
mennsku í unglingapartíinu þarna í den,
ör á öðru hnénu eftir óhapp í sólar-
landaferðinni anno 1974, nebbaörið sem
kom eftir að mútta kreisti stóru bóluna
sem vildi ekki springa af sjálfsdáðum,
ponsu magaörið eftir ófrjósemis-
aðgerðina og nýju örin eftir aðgerðirnar
sem verða til vitnis um handleggsbrotin í
Spröngunni.
Lifandi jörð verður fyrir hnjaski rétt
eins og yfirborð lifandi fólks. Líkami Ís-
lands er þakinn örum, gömlum sem nýj-
um. Þetta er líkami okkar allra, förum
nú vel með hann, elskurnar mínar.
Örasögur
Jóna Ingibjörg
skrifar um líkama þjóðar
og lands.
YFIR STRIKIÐ
Hvaða sögu
segir þinn
líkami?
24 LÍFIÐ
Frjálshyggju-, framtíðar- og fang-
elsismyndin Death Race angar af
pungsvita og fær þrjár
stjörnur
Kostirnir við einka-
væðingu fangelsa
»27
Nýnemavígsla Tækniskólans fór
fram í gær. Lítið var þó um hin
hefðbundnu hróp og
svívirðingar.
Allir vinir
í Tækniskólanum
»30
Þáttur af South Park með syngj-
andi jólakúk fór fyrir brjóstið á
Rússum. Þeir vilja láta
banna þættina.
Burt með syngjandi
jólakúkinn
»27
● Sultar öll kvöld
„Ég fór með 24
krukkur og þær
seldust upp á
korteri,“ segir
Guðrún Ög-
mundsdóttir en
hún fór með verð-
launasultuna sína,
rabarbarasultu með chili og papr-
iku, á markaðinn í Mosfellsbæ um
síðustu helgi. Þeir sem ekki náðu í
krukku hjá Guðrúnu þurfa þó ekki
að örvænta. „Ég ætla að mæta með
50 krukkur næst. Nú fara því öll
kvöld í rabarbarann,“ segir hún en
markaðurinn verður á hverjum
laugardegi frá kl. 12-16 á meðan
veður og grænmeti leyfir.
● Að opna á
sorgina „Sjálfs-
vígum hefur fylgt
sektarkennd og
fólk hefur verið
feimið að ræða
um þau. Þetta
átak er gert til að
opna á þá sorg og
þann missi sem því fylgir þegar
einhver nákominn fellur fyrir eigin
hendi,“ segir Halldór Reynisson á
Biskupsstofu. Kyrrðarstund verður
í Dómkirkjunni klukkan 20 í kvöld
og kertafleyting á Tjörninni að
henni lokinni í tilefni
alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna.
Er hún sérstaklega ætluð aðstand-
endum þeirra sem framið hafa
sjálfsvíg.
● Ný sportsíða
„Sportid.is verður
síða þar sem öll-
um íþróttum
verður gert hátt
undir höfði, frá
fótbolta til curl-
ing, með umfjöll-
unum, úrslitum,
myndum, og viðtölum,“ segir Sig-
urður Ingi Vilhjálmsson, sem
ásamt Sverri Júlíussyni opnar
íþróttasíðu 27. þessa mánaðar. Sig-
urður segir aðra miðla ekki anna
eftirspurn. „Fólk er svo lengi að
leita að því sem það vill sjá, þó efn-
ið sé vel unnið. Þarna verður allt á
einum stað, auðvelt og handhægt.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
Það eru mikilvægar upplýsingar fyrir fasteignasala og eigendur fasteigna í
söluhugleiðingum. Skráðu fasteignina á mbl.is/fasteignir.
! ! !
" #! !