24 stundir - 20.09.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
HEKLA Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is · Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss
EF ÞÚ KEMST EKKI HRINGINN
Á EINUM TANKI
ÞÁ ERTU Á RÖNGUM BÍL.
SIMPLY CLEVER
Úthlutun lóðar á Tryggvagötu 13 til Ung-
mennafélags Íslands (UMFÍ) hefur enn ekki
verið tekin til umfjöllunar í borgarráði þrátt fyr-
ir að umsögn framkvæmda- og eignasviðs og
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar
um málið hafi legið fyrir um hríð. Heimildir 24
stunda herma að borgaryfirvöld séu treg til að
taka málið fyrir vegna deilna Íþróttabandalags
Reykjavíkur (ÍBR) og UMFÍ en ÍBR hefur um
árabil sóst eftir inngöngu í UMFÍ. Telja forsvars-
menn ÍBR óeðlilegt að úthluta lóð til félagsskap-
ar sem útilokar borgarbúa frá starfi sínu.
Reynir Ragnarsson, formaður ÍBR, segir að
þar á bæ hafi menn bent borgarfulltrúum á
þetta ósamræmi. „Okkur finnst óeðlilegt að
þessum gæðum sé úthlutað á kostnað borgar-
búa án þess að þeir eigi kost á að taka þátt í starfi
UMFÍ. Okkar skoðun er sú að UMFÍ sé ekki
stætt á að synja okkur um aðild og ég veit að það
er skilningur á okkar afstöðu innan borgar-
kerfisins. Hins vegar hafa forsvarsmenn UMFÍ
ekki nálgast okkur á neinn hátt með þetta mál.“
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri
UMFÍ, segir að hann hafi heyrt orðróm þess
efnis að beðið sé með úthlutun lóðarinnar vegna
deilna félagsins og ÍBR. Hins vegar hafi engin
formleg erindi þess efnis borist. „Mér finnst það
mjög sérkennilegt ef það er rétt því að þetta eru
bara tvö aðskilin mál. Mér finnst algjörlega fá-
ránlegt ef þessar deilur ÍBR við okkur eiga að
stoppa úthlutun á þessari lóð og tefja uppbygg-
ingu af hálfu félagsins þar.“
Sæmundur segir að hjá UMFÍ vilji menn
gjarnan fara að fá lendingu í málið. „Næstu
skref ættu bara að vera að taka málið fyrir í
borgarráði og klára það.“ freyr@24stundir.is
Úthlutun á lóð til Ungmennafélags Íslands hefur enn ekki verið tekin fyrir í borgarráði
Deilur UMFÍ og ÍBR tefja lóðaúthlutun
24stundir/Kristinn
Tryggvagata 13 Enn er beðið eftir ákvörðun borg-
arráðs um úthlutun lóðarinnar til UMFÍ
Eftir Kristínu Ýri Gunnarsdóttur
kristing@24stundir.is
Jón Víðis Jakobsson er umsjón-
armaður frístundaheimilis í
Breiðholti. Heimilið heitir Álf-
heimar og er við Hólabrekku-
skóla. Hann leyfir okkur að fylgj-
ast með einum degi hjá sér.
05:00 Vaknaði til að keyrapabba minn út á
flugvöll.
08:00 Mætti í vinnuna eld-snemma, er venju-
lega mættur um níu.
Það var haldinn Bjössafundur
sem er dagskrárfundur sem hald-
inn er einu sinni í viku. Þar er farið
yfir hvað hægt er að gera betur og
hvað við getum lært hvert af öðru í
starfinu.
Eftir það fór ég í innkaupaleið-
angur því við vorum að byrja með
klúbba sem þurfti að kaupa inn
fyrir. Það eru prjónaklúbbur, fönd-
urklúbbur og tilraunaklúbbur.
12:00 Fékk mér hádegis-mat og mætti á frí-
stundaheimilið og fór að undirbúa
daginn.
14:00 Krakkarnir eru allirmættir og þá er sam-
verustund með þeim. Svo er hress-
ing og þá er þeim gefið eitthvað létt
að borða. Það var skyr og kíví í
þetta skiptið.
15:00 Skipti krökkunumniður í val, þeir sem
völdu klúbba fóru í þá.
Ég sé um tilraunaklúbb og við
bjuggum til sprengjur. Eftir
klúbbastarf bjuggum við til brúður.
Ég settist niður með nokkrum
krökkum sem ég tók mynd af dag-
inn áður og við bjuggum til brúður
úr andlitunum á þeim. Þetta vakti
mikla lukku hjá þeim sem voru í
þessu með mér. Aðrir voru í frjáls-
um tíma þar sem þau mega ráða
hvað þau langar að gera.
17:00 Byrjað er að sækjakrakkana um fjögur
og klukkan fimm eru allir farnir
heim og við lokum.
18:00 Fór heim og settiupp skeggið og
mætti í barnaafmæli því ég er
töframaður. Þar töfraði ég fyrir
krakka og lét hluti birtast og hverfa
og bjó til peninga, einnig bakaði ég
kökur og allt mögulegt.
20:00 Fékk mér að borðaog horfði á sjón-
varpið um kvöldið þar til ég fór að
sofa.
Finnst frábært að
starfa með börnum
24stundir með Jóni Víðis Jakobssyni sem er umsjónarmaður frístundaheimilis
➤ Er átta ára og er búinn aðvera það í þrjátíu ár.
➤ Búinn að vinna hjá ÍTR í 5 ár.Var áður í barnastarfi hjá al-
þjóðlegum sumarbúðum
barna. Fór út um allan heim í
sumarbúðir með því félagi.
➤ Er töframaður og hefurstundað töfrabrögð í tíu ár.
Hefur gefið út töfrabragða-
bók.
➤ Er formaður í hinu Íslenskatöframannagildi.
MAÐURINN
24 stundir/Valdís Thor
Jón Hefur gaman af því að starfa með börnum og leggur upp úr því að hafa starfið sitt
sem skemmtilegast
Samþykkt hefur verið af bæj-
arráði Árborgar að óska eftir
því að Vegagerðin kanni
möguleika á að gerð verði
jarðgöng undir Ölfusá í stað
brúar. Möguleiki er að í því
brúarstæði sem hefur verið á
skipulagi er að brúin fari yfir
náttúruminjar. Talið var rétt
að skoða möguleika á jarð-
göngum. Sú ákvörðun á ekki
að tefja tvöföldun Suður-
landsvegar.
Jarðgöng undir Ölfusá
Jarðgöng í
stað brúar
Keilir festi á miðvikudag kaup
á fimm nýjum kennsluflug-
vélum fyrir Flugakademíu
skólans. Kaupin fóru fram í
Vínarborg. Kaupverðið, tæpar
200 milljónir króna, er að
mestu fjármagnað af seljand-
anum Diamond Aircraft Ind-
ustries og Bank Austria.
Flugakademía Keilis
Keilir kaupir
fimm flugvélar
STUTT
● Löggæsla Bæjarráð Grinda-
víkur mótmælir því harðlega að
ekki hafi verið staðið við samn-
inga og fyrirheit um aukna lög-
gæslu í bæjarfélaginu. Þetta
kemur fram í bókun bæjarráðs.
Þar er vísað til fyrirheita sem
gefin voru við nýskipan lög-
reglu um næstsíðustu áramót.
Einnig er vísað í samning sem
gerður var árið 2000 milli bæj-
aryfirvalda og sýslumanns.
● Menning í landslagi Ráð-
stefna um byggingararf,
skipulag og list í landslagi á
Bifröst 27. september 2008 kl.
13:00 til 16:00. Menningarráð
Vesturlands og Háskólinn á
Bifröst halda sameiginlega
ráðstefnu um byggingararf-
inn, skipulag, íslenska bygg-
ingarlist í dreifbýli og list í
landslagi. Opið öllum.