24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is 116.900Tækifærisverð: kr. stgr. (Verð áður: 155.800 kr.) A T A R N A Tæki færi í september Glæsileg alklæðanleg uppþvottavél. Sex uppþvottakerfi. Tímastytting þvottakerfa („varioSpeed“). Orkuflokkur, þvottahæfni og þurrkhæfni: A/A/A. Sérlega hljóðlát: 44 dB (re 1 pW). Uppþvottavél SE 66T373EU VÍÐA UM HEIM Algarve 20 Amsterdam 16 Alicante 20 Barcelona 19 Berlín 14 Las Palmas 24 Dublin 14 Frankfurt 13 Glasgow 15 Brussel 16 Hamborg 14 Helsinki 17 Kaupmannahöfn 14 London 19 Madrid 21 Mílanó 20 Montreal 19 Lúxemborg 13 New York 23 Nuuk 1 Orlando 26 Osló 14 Genf 12 París 18 Mallorca 25 Stokkhólmur 13 Þórshöfn 12 Suðvestan 5-13 og rigning með köflum, en þurrt A-lands. Hæg suðlæg átt á morgun, en gengur í sunnan 8-13 m/s sunnantil á land- inu. Vætusamt, einkum S- og V-lands. Hiti 7 til 13 stig. VEÐRIÐ Í DAG 10 9 10 9 11 Vætusamt og svalt Suðlæg átt, víða 8-13 m/s og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast NA-lands. Vindur upp á sjö til tólf metra á sekúndu verður landinu, hvassast á Suðurlandi. VEÐRIÐ Á MORGUN 10 10 13 11 12 Rigning víðsvegar um land „Ég er ekki í vafa um að þessi kaup munu skipta miklu máli fyrir Kaupþing. Bankar og fjármálafyrirtæki út um allan heim hafa legið utan í mönnum í Katar með það fyrir augum að fá þá inn sem hluthafa. Það gefur því góða mynd af styrk Kaupþings að Sheikh Mohammed [Bin Khalifa Al-Thani] skuli kaupa hlut í bankan- um,“ segir Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Eglu hf., sem á tæplega tíu prósenta hlut í Kaupþingi, um kaup Q Iceland Finance ehf. á rúmlega fimm prósenta hlut í Kaupþingi. Félagið er í eigu Sheikh Mohammed sem er í konungsfjölskyldunni í Katar sem farið hefur með völd þar frá því á 19. öld. Ólafur og Sheikh Mohammed hafa þekkst í þrjú ár. Sá síðarnefndi á rúmlega tólf prósenta hlut í matvælafyrirtæk- inu Alfesca sem Egla, félag Ólafs, á tæplega 40 prósenta hlut í. Alls keypti Q Iceland 37,1 milljón hluti í Kaupþingi á genginu 690. Andvirði hlutanna er um 25,5 milljarðar króna. Kaupin hafa átt sér nokkurn aðdraganda en viðræður hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Miklir fjármagnsflutningar hafa átt sér stað til Mið-Austurlanda samfara miklum verðhækk- unum á olíu undanfarin ár. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað gríðarlega frá árinu 2003 en þá kostaði fatið af olíu 25 dollara en fór hæst í 147 dollara í júlí á þessu ári. Síðan hefur verðið fallið nokkuð en er ennþá hátt. Konungsfjölskyldan í Katar hefur notið góðs af auknum tekjum í olíuiðnaði og jarðgas- vinnslu. Á milli fimmtán og sautján prósent af jarðgasvinnslu heimsins eru í Katar en í landinu búa rúmlega 800 þúsund manns. Ólafur segir mikilvægt að íslensk fyrirtæki geti sýnt að þau séu tilbúin að vinna með er- lendum fjárfestum. „Það hefur tekist hjá Kaup- þingi að fá góða erlenda fjárfesta inn í hópinn og það mun skipta sköpum í framtíðinni.“ magnush@24stundir.is Bróðir emírsins í Katar hefur keypt rúmlega fimm prósenta hlut í Kaupþingi Mun skipta miklu máli fyrir Kaupþing „Mér fannst ummæli Seðla- bankastjóra ekki sanngjörn og í ódýrari kantinum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. Vísað er til um- mæla Davíðs Oddssonar um lýð- skrumara í viðtali á Stöð 2 sem lagt hefur verið út af síðan. Ágúst Ólaf- ur er sammála Árna Páli Árnasyni þingmanni sem sagði á Rúv að um- mælin væru Seðlabankastjóra ekki sæmandi og gjörbreyta þyrfti stjórn Seðlabankans ef halda ætti krón- unni. Varaformaður Samfylkingar tekur undir með þingmanninum, en telur þó að ummæli Seðlabanka séu skaðlaus og hafi hvorki afleið- ingar í stjórnmálum né efnahagsmálum. „En þau sýna þá tímaskekkju að Seðlabankinn sé athvarf uppgjafa stjórnmálamanna.“ Ágúst Ólafur segir óuppgert mál milli ríkisstjórnarflokkanna hvort komið verði á fót nýrri hlutlausri stofnun í stað Þjóðhagsstofnunar. „Mér finnst að hana þurfi að endurvekja. “ beva Davíð – skaðlaus en ódýr Rannsókn á fíkniefnasmyglinu sem kom upp 10. júní síðastlið- inn er enn í gangi. Í þar síðustu viku voru framkvæmdar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við málið. Fundust í þeim frekari sönnunargögn sem tengjast málinu. Ekki fæst upp- gefið hver þau gögn eru. fr Frekari gögn í hasshlassmáli Samdráttur í verklegum fram- kvæmdum hlýtur að leiða til þess að auðveldara verði að fá iðn- aðarmenn til viðhalds, að mati Andrésar Magnússonar, fram- kvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. „Í þessu ástandi sem hefur ríkt á markaðnum hafa menn vanrækt viðhald vegna þess að ekki hefur fengist fólk í það. Ég get ímyndað mér að menn fari að huga meira að þessu núna.“ Samdrátt í sölu á fatnaði og dýr- ari tækjum mátti merkja strax í vor. Að sögn Andrésar verður ekki hægt að meta sölu á haust- fatnaði fyrr en líða tekur á októ- ber. ibs Auðveldara að fá menn í viðhald Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Formaður Frjálslynda flokksins kom heim frá Rússlandi í gær til að takast á við mestu innbyrðis deilur sem orðið hafa í flokknum frá stofnun, segja menn sem starfað hafa í Frjálslynda flokknum frá upphafi. Nú sé formaður í hættu, í viðbót við það sem var þegar Mar- grét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson tókust á um varafor- mannsembættið. Átök sem enduðu með útgöngu Margrétar og stuðn- ingsmanna hennar úr flokknum. Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður flokksins, styður Kristin H. Gunnarsson áfram sem þingflokks- formann og telur hann hafa sætt einelti. Kolbrún Stefánsdóttir ritari styður Kristin. Magnús Þór Haf- steinsson varaformaður styður Kristin ekki og miðstjórn vill að Kristinn víki. Allir á móti öllum En þetta er mál þingflokksins, þar inni er Jón Magnússon harð- astur gegn Kristni, en Grétar Mar segist styðja formanninn hvernig sem fer. Í miðstjórn sitja tveir fyrrverandi þingmenn, Sigurjón Þórðarson, sem liggur undir feldi formanns- framboðs, og Magnús Þór Haf- steinsson, sem er varaformaður og jafnframt aðstoðarmaður for- mannsins en er honum ósammála um þingflokksformanninn. Magn- ús Þór neitar að tjá sig um hvort trúnaðarbrestur felist í þessu. Þótt órói vaxi í stofnunum flokksins er því jafnan neitað að vegið sé að formanninum. Jón Magnússon þingmaður ritar þó um dugleysi þingflokksformanns og formanns sem hafi haldið fundi í sumar: „Á mínum pólitíska ferli þá þekki ég ekki annað eins áhugaleysi um pólitík eins og þarna kemur fram og virðingarleysi við fólkið í flokknum,“ segir Jón. Hann kveðst enn treysta Guðjóni og telur minni líkur en meiri á að flokkurinn klofni. „Ég vænti þess að formaður taki skynsamlega ákvörðun.“ Grét- ar Mar þingmaður telur línur fara að skýrast. Sjálfur kveðst hann sátt- ur við að Kristinn sitji áfram þenn- an þingvetur sé það vilji formanns- ins. Hann telur niðurstöðu miðstjórnar ekki góða og trúir því ekki að menn kljúfi lítinn flokk um það hvort þingflokksformaðurinn sitji átta mánuðum lengur eða skemur. „Ef menn kljúfa tapa allir.“ Illvígar deilur Frjálslyndra  Vantraust í efstu embættum í Frjálslynda flokknum  Grétar Mar segir ástæðulaust að kljúfa flokkinn vegna Kristins Samstarf: Þeir standa ekki saman eins og einn maður. ➤ Formaður flokksins hefur lýststuðningi við þingflokks- formanninn. ➤ Varaformaður og aðstoð-armaður formanns vill þing- flokksformann burt. STAÐA EFSTU MANNA STUTT ● Öll börn á leikskóla Aldurs- takmark á leikskóla Hafn- arfjarðar verður lækkað í tveimur áföngum næstu fjögur ár miðað við tillögu formanns fræðsluráðs frá fundi í gær. Fyrst verður það lækkað í 18 mánuði, eftir tvö ár í 15 og árið 2012 í 12 mánuði. Þá er gert ráð fyrir að fæðingarorlof hafi verið lengt í 12 mánuði. ● Alelda Kveikt var í sex ára gömlum jeppa á Grafnings- vegi aðfaranótt fimmtudags. Hafði hann staðið þar í tvær vikur með sprungið dekk. Lögreglan biður þá sem geta gefið upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Lögregla sem kölluð var til vegna óþefs í blokk í Pro- kuplje í Serbíu fann hestshræ fast í loftræstistokki á 12. hæð. Var óþefurinn orðinn slíkur að blokkin var rýmd og eitur- efnasveit var kölluð út. Tals- maður lögreglunnar segir að enginn hafi hugmynd um hver kom hræinu fyrir, eða hvernig farið var að því. Óþefur í blokkinni Hestur á 12. SKONDIÐ

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.