24 stundir - 23.09.2008, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir
Ekki liggur endanlega fyrir hversu miklu fé var safn-
að fyrir Mænuskaðastofnun Íslands í söfnun sem náði
hámarki með sjónvarpsþætti á Stöð 2 á föstudag. Þegar
þættinum lauk höfðu safnast 65 milljónir en endanleg
upphæð liggur fyrir í vikunni.
Auður Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands, segir
söfnunarfénu verða veitt til tilraunameðferðar í Þýska-
landi þó enn eigi eftir að semja um tæknileg atriði.
Aðgerðin felst í að opna inn á mænuna aðeins
nokkrum klukkustundum eftir slys og hleypa þaðan út
vökva til að minnka bjúg og bólgur. Þannig verður
reynt að koma í veg fyrir öramyndun í mænunni sem
hindrar taugaboð.
„Það á ekki að setja neitt inn í mænuna, eingöngu
gera henni fært að lækna sig sjálf,“ segir Auður og bæt-
ir við að þessar rannsóknir séu enn á tilraunastigi.
Hún segir svipaða aðgerð hafa verið gerða á þýskri
stúlku og þar hafi sýnt sig að vefurinn hafi læknað sig
sjálfur þó rafmagnið sem stjórnar taugaboðunum hafi
vantað. „Það er auðvitað ekki gefið að fólk læknist
strax. En einhvern tímann verður að hafa kjark til að
stíga fyrsta skrefið.“ fifa@24stundir.is
Söfnunarfé varið til tilraunaaðgerða í Þýskalandi
Þarf kjark til að taka fyrsta skrefið
Hugsjónakona Á laugardag hafði maður samband við
Auði og gaf 5 milljónir í söfnunina.
allt frá því að þau voru sett, og þá
sérstaklega ákvæðið um fimm ára
ráðninguna. „Við lítum svo á að
um ráðningar þessara manna eigi
að gilda sömu reglur og aðra. Ef
þeir gerast sekir eða brotlegir í
starfi þá eru þeir látnir víkja. En
hitt að það sé hægt að láta starfið
renna út í einskonar tímaglasi tel
ég vera mjög varhugavert.“
Hann segist þó skilja ákveðin
rök sem sett voru fram fyrir
ákvæðinu en að á því séu líka van-
kantar sem verði að taka tillit til.
„Það eru ákveðin rök fyrir að
reyna að tryggja gegnumstreymi
svo stjórnendur séu ekki slímfast-
ir í embættum ævilangt. Hins veg-
ar eru vankantar sem fylgja þessu
og þá sérstaklega þegar það verð-
ur uppi á teningnum að einstak-
lingar sem á einhvern hátt hafa
reynst yfirvaldinu óþægilegir séu
látnir fjara úr fyrirhafnarlaust.“
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Við sögðum allan tímann að það
væri mjög varhugavert vegna þess
að með þessu móti væri verið að
setja menn í lykilstöðum undir
duttlungavald yfirvalda. Með
þessu væri hægt að losa sig við þá
með auðveldum hætti einfaldlega
með því að láta ráðningartímann
renna sitt skeið á enda,“ segir Ög-
mundur Jónasson, formaður
BSRB og þingmaður Vinstri
grænna, um ákvæði í lögum um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna um fimm ára skip-
unartíma þeirra.
Jóhanni R. Benediktssyni, lög-
reglustjóranum á Suðurnesjum,
var fyrr í þessum mánuði tilkynnt
að starf hans verði auglýst þrátt
fyrir að hann hafi viljað gegna því
áfram.
Stjórn Lögreglufélags Suður-
nesja hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem félagið lýsir yfir miklum
vonbrigðum með ákvörðun
dómsmálaráðherra að auglýsa
stöðuna. Orðrétt segir að ákvörð-
unin eigi sér „engin fordæmi í
stjórnsýslunni og felur í sér ekkert
annað en uppsögn.“
Hafa ætið mótmælt lögunum
Ögmundur segir að lögin hafi
sætt miklum mótmælum BSRB
Vilja endurskoðun
á fimm ára ákvæði
Formenn BSRB og FFR vilja að lög um opinbera starfsmenn verði endurskoðuð
Á útleið Lög-
reglustjórinn á
Suðurnesjum
ætlar ekki að
sækja um starf-
ið þegar það
verður auglýst.
➤ Lög um réttindi og skylduropinberra starfsmanna voru
samþykkt árið 1996.
➤ Samkvæmt þeim eru embætt-ismenn skipaðir til fimm ára.
Ef auglýsa á embætt þeirra til
umsóknar að þeim tíma liðn-
um verður að tilkynna það
með hálfs árs fyrirvara.
LÖGIN
Gríðarlegur áhugi er á störf-
um í nýrri byggingavöruversl-
un Bauhaus sem opnuð verð-
ur í Grafarholti í desember.
Að sögn talsmanns verslunar-
innar sóttu alls um 650 manns
um stjórnunarstöður í versl-
uninni. Þá segir hann að yfir
1.250 umsóknir hafi nú þegar
borist um ein 150 störf sem
verið er að ráða í þessa dag-
anna.
Byggingavöruverslunin mun
verða sú stærsta á Norð-
urlöndunum, eða 22.000 fer-
metrar að flatarmáli og hefur
bygging hennar staðið yfir í
rúmt ár. ejg
1250 hafa sótt
um 150 störf
Ný byggingavörubúð
Hæstiréttur úrskurðaði í gær að
Viggó Þórir Þórisson skuli sæta
farbanni til 11. nóvember næst-
komandi. Að þeim tíma liðnum
hefur hann verið í farbanni í 19
mánuði, eða lengur en nokkur
annar en dæmi eru um í íslenskri
réttarframkvæmd. Viggó er grun-
aður um auðgunarbrot og til-
raunir til slíkra sem varða sam-
tals um 900 milljónir dala. Brotin
á hann að hafa framið þegar hann
var framkvæmdastjóri Verð-
bréfaþjónustu sparisjóðanna.
Verðbréfaþjónusta Sparisjóðanna
er nú gjaldþrota og í skipta-
meðferð. þsj
Íslandsmetshafi
áfram í farbanni
Erlend lögreglulið
hafa enn ekki haft
hendur í hári Iv-
ans Konovalenko
frá Litháen, sem
eftirlýstur er af ís-
lensku lögregl-
unni vegna hníf-
stunguárásar á
Mánagötu fyrir
hálfum mánuði. Ivan komst úr
landi í gegnum Keflavíkurflugvöll
en mistök hjá lögreglu urðu þess
valdandi að ekki var tilkynnt til
landamæraeftirlits að Konova-
lenko væri eftirlýstur. fr
Konovalenko
enn leitað
Lögregla þurfti að skakka leikinn
þegar slagsmál brutust út í miðbæ
Akureyrar seinnipartinn í gær
meðal átta áhafnarmeðlima bresks
togara sem lá þar við festar.
Að sögn lögreglunnar voru
mennirnir mjög drukknir en tog-
arinn lagðist að bryggju í gær.
Einn var fluttur á slysadeild en
meiðsl hans reyndust lítilsháttar og
fór hann um borð að lokinni lækn-
isskoðun.
Félagar hans voru fluttir á lög-
reglustöðina þar sem fimm þeirra
voru látnir sofa úr sér.
Ekki liggur fyrir út af hverju
mennirnir slógust.
aak
Breskir sjómenn í slag á Akureyri
Lögðu sig á löggustöð
Haukur Ingibergsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofn-
ana, vill einnig láta endurskoða lögin. „Það er á annan áratug síðan
lögin voru samþykkt og það er full ástæða til að endurskoða ýmis
ákvæði þeirra laga eða fella þau úr gildi. Meðal annars er þetta
ákvæði um fimm ára skipunartíma. Reynslan varðandi það að til-
kynna forstöðumanni sex mánuðum áður en skipunartími hans
rennur út hvort starfið verði auglýst til umsóknar hefur nánast
aldrei verið notað, að því ég veit. Allavega sjaldnar en sú aðferð að
ráðherra og forstöðumaður nái samningum um starfslok ef ráð-
herra telur heppilegt að skipta um.“ Haukur segir félagið ekki taka
til umræðu málefni einstakra forstöðumanna og því hefur það ekki
fjallað beint um málefni Jóhanns R. Benediktssonar. „Félagið skoð-
ar hinsvegar hvernig farið er með kjaramál og lagaákvæði almennt
séð. Ef þetta fer að tíðkast almennt þá mun félagið skoða það.“
Ákvæðið nánast aldrei notað
Ung kona, ökumaður bíls, slapp
með skrekkinn þegar hún missti
stjórn á bíl sínum ofan við Ártúns-
brekku í gær.
Að sögn lögreglu eru bílveltur
fátíðar á þessum slóðum enda veg-
urinn bæði beinn og breiður og
engin hálka komin enn.
Skýrsla verður tekin af öku-
manni í dag og þá liggur fyrir hvað
olli óhappinu.
Konan var ein í bílnum. aak
Valt í Ártúnsbrekku
Lík karlmanns sem fæddur er
árið 1947 fanns í fjörunni í Foss-
vogi í gærmorgun og er málið nú
til rannsóknar hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar
lögreglunnar segir að nú sé beðið
eftir niðurstöðu krufningar og
fyrr en hún liggi fyrir verði ekki
hægt að staðfesta með óyggjandi
hætti hvað varð manninum að
aldurtila.
Hann segir þó ekkert benda til
þess að eitthvað saknæmt hafi átt
sér stað, líkast til hafi hann látist
af slysförum.
elias@24stundir.is
Lík karlmanns fannst í Fossvogsfjöru
Lögreglan bíður nið-
urstöðu krufningar