24 stundir


24 stundir - 23.09.2008, Qupperneq 10

24 stundir - 23.09.2008, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Er þín símsvörun skilvirk? Morgunverðarfundur með Swyx Kynntu þér möguleika til hagræðingar og aukinnar þjónustu á líflegum morgunverðarfundi Þann 25. september næstkomandi bjóða Swyx og Svar tækni til opins morgunverðarfundar á Hilton Nordica. Á fundinum munu þeir Dr. Ralf Ebbinghaus, Executive VP Sales & Marketing og Roland Finke, sölustjóri Norður-Evrópu, ásamt Rúnari Sigurðssyni framkvæmdastjóra Svar tækni, Swyx á Íslandi, kynna kosti Swyx IP símkerfanna. Farið verður yfir þá möguleika sem í boði eru ásamt því að kynna fyrirtækin og framtíðarsýn þeirra. Skráning: Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir en skráningu skal senda á skraning@svar.is með nafni þáttakenda. 25. september 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Hlutirnir gerast nú hratt á Íslandi. Sjeik Mohammed frá Qatar er kom- inn. Hann á nú 5% í Kaupþingi og þjóðin fagnar. Vonir glæðast þegar ar- abísk olíuinnspýting kemur inn í efnahagslífið og bankakerfið. Olíuríkið Qatar er vellauðugt. Orkulandið Ísland vill verða vellauðugt líka. Landsvirkjun fær því góðan stuðning stjórnvalda til að virkja mest í heimi. Ísland vill ekki aðeins að verða ríkast í heimi heldur líka best og betra en Qatar. Orkugróðinn okkar verður til af umhyggju fyrir heiminum og endurnýjanlegri orku. Við erum því miklu betri en sjeikinn, en pening- arnir hans eru mjög góðir fyrir okkur núna. Nú hafa landeigendadurgar fyrir norðan risið upp og vilja virkja nýja 50 megawatta virkjun á eignarlandi sínu. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð- herra er ekkert hrifinn. Hann talar um rányrkju á jarðhita. Eflaust er talsvert til í því. En landeigendur fyrir norðan eru nú ekki beinlínis þeir sem hafa farið fyrir rányrkju síðustu ára. Til þess hefur þá skort bolmagn. Þeir eru ekki sjeikar. Rányrkjuna hefur ríkið sjálft séð um með milligöngu Landsvirkjunar. Þessa þróun ætlaði Samfylkingin að stöðva. Vandséð er að nokkuð hafi gerst í því. Hvergi er talað um rányrkju þegar nýjar virkjanir Íslendinga eru kynntar. Ómar Ragnarsson bendir á að stanslaus áróður sé rekinn innan lands og utan fyrir nýtingu svonefndrar hreinnar og endurnýjanlegrar orku á Íslandi. Óhætt er að taka undir með Ómari, sem spyr Össur hvar hann setji rányrkjumörkin. Nú eru fimm gufuaflsvirkjanir í undirbúningi fyrir norðan. Á Suður- landi er stefnt að Bitruvirkjun og vatnsaflsvirkjanir í undirbúningi eru líka margar. Miklar gróðurskemmdir uppgötvuðust nýlega, eins og fyrir til- viljun, við Hellisheiðarvirkjun. Skömmu síðar fundust miklar gróðurskemmdir við Svartsengi, sem er enn furðulegra af því virkjun þar hefur verið starfrækt í áraraðir. Sláandi er að ekki skuli betur fylgst með afleið- ingum virkjana. Traust á opinberri stefnu vex ekki við það. Framtak landeigenda í Reykjahlíð sem vilja virkja og hafa sótt um einkarétt á orku á jörðum sínum er at- hyglisvert. Hvað gera stjórnvöld nú? Landsvirkjun hef- ur hingað til fengið orkuréttinn fyrir lítið og skammt- að landeigendum lítilfjörlegar bætur fyrir. Nú þurfa stjórnvöld að hugsa sinn gang. Fyrir bændur er best að komast í náin kynni við forríkan arabískan sjeik. Þá breytist hljóðið í sveitar- og ríkisstjórnum sem bera í raun ekki virðingu fyrir neinu nema peningum. Velkominn sjeik Björn Bjarnason telur eðlilegt að auglýsa stöðu lögreglustjórans suður með sjó. Hún sé að renna út. Hann taldi samt ekki eðlilegt að auglýsa stöðu rík- islögreglustjóra, þegar hún rann út í sumar. Hann tel- ur yfirleitt ekki eðlilegt að auglýsa neina stöðu, þegar hún rennur út. Nema þessa einu suður með sjó. Jafnframt segist Björn ekki hafa neitt á móti lögreglustjóranum. Þótt allir viti, að hann hatar stjór- ann. Og þegar Björn hatar, þá hat- ar hann fólk eins og sjálfa pestina miklu. Björn hefur í auknum mæli lokast inni í prívatmálum án tillits til ríkisstjórnarinnar. Jónas Kristjánsson jonas.is BLOGGARINN Einkahatur Ekki veit ég hver mánaðarlaunin eru hjá þeim á efstu hæðinni hjá Glitni. Hitt veit ég að það er ekki einkamál fjár- festa hvernig þeir hafa skuldsett ís- lenskt efnahags- kerfi. Áhyggjur almennings snúa að því hvort þjóð- félagið allt þurfi að súpa seyðið af „áhættunni“, sem fjárfestarnir hafa verið að taka á umliðnum árum. Áhættan var nefnilega ekki aðeins tekin fyrir eigin hönd, heldur okkar allra. En Lárus Welding var ekki á því að horfa í neinn baksýnisspegil. „Við erum það sem við erum,“ sagði bankastjóri Glitnis. Nú væri að halda inn í framtíðina. Ögmundur Jónasson ogmundur.is Áhættan í Glitni Það ætti reyndar að auglýsa öll embætti alltaf. Sumir verða sam- dauna starfi sínu eftir örfá ár, aðrir haldast ferskir endalaust. Fyrirkomulagið eins og það hefur tíðkast er nánast eins og æviráðn- ing. Það er ekkert aðhald í því. Jóhann á auðvit- að að líta á þetta sem tækifæri til að hreinsa borð- ið. Ef hann er sterkasti umsækj- andinn, sem óneitanlega eru nokkrar líkur á miðað við starfs- reynslu, þá þarf ráðherra að færa sérstaklega góð rök fyrir því að ráða hann ekki. Það besta sem hann gerir í stöðunni er að leggja inn sterka umsókn … Friðjón R. Friðjónsson fridjon.eyjan.is Sá sterkasti Björg Eva Erlendsdóttir beva@24stundir.is Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylk- ingarinnar, sagði í Silfri Egils á sunnudag að það væri hlutverk Seðlabanka að auka trúnað og traust á gjaldmiðlinum. Ég er honum hjartanlega sammála. Það er óumflýjanleg staðreynd að við höf- um kosið að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil, íslensku krónuna. Hún er sá grundvöllur sem við byggjum á, hvað sem síðar verður. Meðan svo er er það hlutverk stjórnvalda að standa vörð um hana og sjá til þess að hún nýtist okkur sem best. Það verður hins vegar ekki fram hjá því litið að gengi krónunnar hefur verið flöktandi og sveiflast um tugi prósenta milli missera. Það hefur óneitanlega valdið vandræðum og er það eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda framundan að koma á jafnvægi í efnahagsmálum. Ýmis hagstæð merki eru í þá veru og styður jákvætt mat Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins um stöðu íslenskra efnahagsmála þá skoðun. Þar kemur meðal annars fram að til lengri tíma séu framtíðarhorfur á Íslandi öfundsverðar. Stuðningsmenn aðildar að ESB hafa notað tækifærið síðustu mánuði og talað um íslensku krónuna sem ónýtan gjaldmiðil. Þeir hafa notað veikingu hennar sem röksemd fyrir því að Ísland eigi að taka upp evr- una sem gjaldmiðil, vitandi að við þyrftum fyrst að uppfylla ákveðnar efnahagslegar forsendur á grund- velli núverandi gjaldmiðils og að hin hefðbundna leið evruupptöku er innganga í ESB. Þessi umræða hefur ekki bætt stöðu íslensku krónunnar. Hún hefur þvert á móti leitt til þess að traust á krónunni hefur minnk- að, sem er mikið ábyrgðarefni, ekki síst ef slík ummæli koma frá aðilum sem í krafti embættis síns og stöðu eiga að standa vörð um krónuna. Skv. lögum um Seðlabanka er það meginmarkmið bankans að halda stöðugu verðlagi. Í ljósi þessa má segja að Davíð Odds- son hafi verið að gegna skyldum sín- um þegar hann svaraði gagnrýni á ís- lensku krónuna. Það að þau ummæli voru sett fram „að hætti Davíðs“ er ekki ámælisvert heldur nauðsynlegt krydd í umræðuna enda hittu þau í mark. Það segja mér viðbrögð þeirra sem tóku þau til sín. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Að gegna skyldum sínum ÁLIT Ásta Möller astamoll- er@althingi.is

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.