24 stundir - 23.09.2008, Side 13

24 stundir - 23.09.2008, Side 13
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 13 FÆRÐ ÞÚ HAUSTUPPBÓT? – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. Drögum á morgun 24.09.200 8 Drögum út tuttugu milljónamæringa á morgun. I . Seðlabanki Bandaríkjanna hef- ur samþykkt að breyta fjárfest- ingarbönkunum Goldman Sachs og Morgan Stanley í hefðbundn- ar bankastofnanir. Þýðir það að Goldman og Morgan munu sæta eftirliti Seðlabankans og annarra eftirlitsaðila í ríkari mæli en þeir hafa gert hingað til. Til dæmis munu þeir þurfa að halda eig- infjárhlutfalli sínu umtalsvert hærra en þeir hafa gert og má gera ráð fyrir því að hagnaður þeirra í framtíðinni verði minni en áður. Með ákvörðuninni er tímabili stórra fjárfestingarbanka á Wall Street endanlega lokið, en Gold- man og Morgan voru einir eftir hinna fimm stóru fjárfestingar- banka sem voru mjög umsvifa- miklir á undanförnum árum og áratugum. Bear Stearns var fyrr á árinu keyptur af JPMorgan Chase og Bank of America keypti Mer- rill Lynch fyrir skömmu. Þá hefur Lehman Brothers sótt um greiðslustöðvun fyrir móður- félagið og er gert ráð fyrir að hann verði lýstur gjaldþrota inn- an tíðar. Breytt lagaleg staða Goldman og Morgan mun gera þeim auð- veldara að endurskipuleggja eignasöfn sín og sömuleiðis auð- velda samruna þeirra við aðra banka, stærri eða smærri. Hins vegar má líta á breytinguna sem merki um að lausafjárstaða bank- anna tveggja sé verri en áður var talið. Þá var greint frá því í gær að japanski fjármálarisinn Mitsub- ishi UFJ Financial Group muni kaupa 10-20% hlut í Morgan Stanley fyrir allt að 8,5 milljarða dala, andvirði um 750 milljarða króna. Gengi bréfa Morgan Stanley hækkaði umtalsvert í kjölfar fréttanna í gær. bjarni@24stundir.is Goldman Sachs og Morgan Stanley ekki lengur fjárfestingarbankar Wall Street ekki samt eftir Umskipti Eftir breytinguna verður enginn hinna fimm stóru fjárfestingarbanka starf- andi á Wall Street sem slíkur. Mynd/Reuters a Hins vegar má líta á breytinguna sem merki um að lausa- fjárstaða bankanna tveggja sé verri en áður var talið. Aðgerðir bandarískra stjórnvalda til þess að spyrna fótum við krepp- unni sem ríkir á fjármálamörkuð- um hafa haft góð áhrif á fjármála- markaði heims, þar á meðal þann íslenska segir í grein sem birtist á vef Wall Street Journal í gær. Segir í greininni að stjórnvöld á Íslandi og eftirlitsaðilar á fjármála- markaði hafi alltaf trúað því stað- fastlega að íslenska hagkerfið væri nægjanlega sterkt til þess að standa af sér niðursveilu þá sem ríkir á mörkuðum heims, jafnvel þó að krónan hafi látið undan árásum og bankarnir hafi þurft að greiða hátt verð fyrir lánsfé. Hins vegar hafi sú mikla þensla sem einkennt hefur íslenskt at- hafnalíf inn á erlenda markaði og ójafnvægi í vöruskiptum, sem sýni að Íslendingar, lifi umfram efni, haft þau áhrif að Ísland virðist „eitrað“ í hvert skipti sem alþjóð- legir markaðir ganga í gegnum erf- iðleika. gh Ísland virðist eitrað Wall Street Journal um fjármálakreppuna

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.