24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 18

24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Patrick er hingað kominn til að kenna í nýrri æfingastöð Hreyf- ingar og miðla þekkingu sinni til þjálfara stöðvarinnar. „Ég hef komið til Íslands áður,“ segir Patrick. „Ég hlakka til að koma til landsins á ný og sjá nýju æfingastöðina og hitta nemendur mína. Síðast þegar ég kom þá kom mér á óvart hversu færir og áhuga- samir þeir voru.“ Hann hóf feril sinn sem klapp- stýra við háskólann í Austin í Texas á níunda áratugnum auk þess sem hann hafði æft tennis öll sín ung- dómsár. Eftir útskrift úr háskóla segist Patrick hafa stigið öðrum fætinum í heim viðskipta og unnið í kyrr- setuvinnu frá 9-5, það hafi æst upp í honum löngun til að gera líkams- rækt að ævistarfi sínu. Kyrr- setuvinnan þótti honum ómögu- leg. Hann varð að fá að hreyfa sig. Mikilvægt að læra „Ævintýrið hófst árið 1988 í Dallas í Texas,“ segir Patrick. „Ég var svo heppinn að hafa besta þjálfara sem hugsast getur í þess- um bransa. Hún þjálfaði mig í sex mánuði af mikilli nákvæmni. Ég fræddist um alla vöðva og líffæri líkamans á þeim tíma og eftir það þjálfaði ég við hennar hlið í þrjá mánuði áður en henni fannst ég tilbúinn að vera með mína eigin tíma. Þessi tími var mikilvægur og ég er henni ávallt þakklátur. Það er mikilvægt að hafa undirstöðuna í lagi og það að læra og safna sér kunnáttu er mikilvægt. Þjálfarinn minn kenndi mér að bera virðingu fyrir því hlutskipti.“ Eróbikk í Hvíta húsinu Árið 1990 hreppti Patrick og lið hans landsmeistaratitil í eróbikki. Í framhaldinu vakti hann töluverða athygli og sýndi eróbikkrútínu sína í þætti Johnnys Carsons og í Hvíta húsinu, George Bush til skemmt- unar. Á árunum sem á eftir fylgdu og til dagsins í dag hefur hann not- ið mikilla vinsælda og velgengni. „Ég hef unnið með Paulu Abdul, Faith Ford úr Murphy Brown, Jane Leeves úr Frasier og Valerie Bert- inelli. Núna þjálfa ég Allison Jan- ney sem leikur í þáttunum West Wing og Samönthu Harris úr þátt- unum Dancing with the Stars sem starfar að auki á E!-afþreying- arsjónvarpsrásinni.“ Tæknin skiptir máli! Í dag starfar Patrick jöfnum höndum sem þjálfari og ráðgjafi annarra þjálfara og er að auki einn þjálfara í sjónvarpsþættinum All Star Workouts, vinsælum líkams- ræktarþætti á The Discovery Channel og Fit TV. Hann hefur gefið út 16 þjálfunarmyndbönd, þeirra á meðal vöktu athygli ABC- æfingakerfi sem hann þróaði og Step Up-æfingakerfi sem fjallað var um í Fitness-tímaritinu og morgunþætti CBS-sjónvarpsstöðv- arinnar með áherslu á að á einni klukkustund í því prógrammi væri mögulegt að brenna 600 kaloríum. Aðspurður um lykilinn að vel- gengni hans segist hann vera bæði strangur og nákvæmur. „Tækni skiptir afar miklu máli hvað varðar árangur. Þú getur eytt svo mörgum klukkustundum í líkamsrækt án þess að ná neinum markverðum árangri ef æfingarnar eru gerðar vitlaust. Ég sem þjálfari ber mikla ábyrgð á því að þeir sem ég þjálfa geri æfingar rétt og þyki strangur vegna þess. Nemendur mínir segja að minnsta kosti að þeim þyki ég strangur en ég trúi að það sé vegna þeirrar ástríðu sem ég ber til starfs- ins.“ Patrick „þjálfari stjarnanna“ er á leið til landsins Hóf ferilinn sem klappstýra Patrick Goudeau, einn eftirsóttasti líkamsrækt- arþjálfari Bandaríkjanna, er á leið til landsins. Hann hefur tekið eró- bikkæfingar í Hvíta hús- inu George Bush til skemmtunar, þjálfað Brooke Shields, Eddie Van Halen og Paulu Ab- dul og er þekktur fyrir að vera eitilharður og ná- kvæmur en gríðarlega skemmtilegur. Áhugasamir og færir Nemendur Patricks á Ís- landi komu hon- um á óvart. Frá tímum Hippókratesar, föður læknisfræð- innar, hafa verið uppi tvær kenningar um leiðir til lækninga; leið andstæðna og leið hliðstæðna. Læknisfræðin byggist að mestu á þeirri fyrri en hómópatía á þeirri seinni. „Hómópatían leitast við að koma jafnvægi á líkamann og að hjálpa honum að lækna sig sjálfur,“ segir Anna Birna Ragn- arsdóttir hómópati. Hómópatar gefa svokallaðar remedíur við hinum ýmsu kvillum sem Anna Birna líkir við start sem bíl sé gefið. „Eftir startið sér bíllinn um að hlaða sig sjálfur alveg eins og líkaminn sér um eigið viðhald sé jafnvægi komið á.“ Hvort fólk ætti því aðeins að leita til hómópata þegar það kennir sér meins segir hún það síður en svo. „Í heilbrigðum líkama er hægt að styrkja ónæmiskerfið með því að gefa réttar remedíur,“ segir hún og bætir við að remedíur séu örefni. „Tími hjá hómópata fer þannig fram að spurt er út í líkamlega sem andlega líðan fólks og þannig leitast við að finna heildræna lausn í stað þess að einbeita sér að einstökum kvillum. Þannig er reynt að komast að rót vandans,“ segir Anna og bætir við að gott sé að fólk sé meðvitað um að það hafi val þegar kemur að eigin heilsu og þeim leiðum sem það leitar til að bæta hana. rs Líkaminn er fær um að lækna sig og styrkja Hómópatía til heilsu LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum landsins fullelduð vara, þarf aðeins að hita upp Grænmetisbuff Án msgNÝTT Prófaðu Birkisafann frá Weleda, hann er vatnslosandi og styður við eðlilega úthreinsun líkamans. Birkisafann er hægt að fá með og án hunangs. Gott er að taka þriggja vikna kúr á safanum Ráðlagður dagsskammtur er ca. 20-30 ml Gott er að blanda safann með eplasafa eða vatni Má einnig taka óblandað Útsölustaðir: Heilsuhúsin, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi , Heilsuhornið Akureyri, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn , Sólarsport Ólafsvík, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Lyfjaver, Nóatún, Hagkaupum Kringlunni og Holtagörðum, Lyfjaval, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Velkomin að skoða www.Weleda.is Vilt þú létta á líkamanum eftir grillveislurnar í sumar? Mjög mikilvægt er að gleyma ekki morgunmatnum áður en haldið er af stað í skólann eða vinnuna. Hrein jógúrt með hunangi er góð- ur kostur fyrir þá sem vilja ekki innbyrða of mikinn sykur. Einnig má bæta út á jógúrtina fræjum eins og t.d. graskersfræjum, þurrk- uðum ávöxtum og jafnvel höfrum. Einnig er hægt að blanda jógúrtina saman með frosnum ávöxtum í blandara. Með þurrkuðum ávöxtum

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.