24 stundir - 23.09.2008, Síða 21

24 stundir - 23.09.2008, Síða 21
Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is „Skólum landsins er skylt sam- kvæmt lögum að sinna jafnréttis- fræðslu. Þar sem það er svo margt sem skólum er skylt að gera hefur þessi fræðsla því miður setið á hak- anum. Verkefnið er hugsað sem stuðningur við skólana til að fara af stað,“ segir Arnfríður Aðalsteins- dóttir, verkefnisstjóri þróunarverk- efnisins Jafnrétti í leik- og grunn- skólum. Liður í verkefninu er heimasíðan www.jafnrettiiskolum.is en henni er ætlað að vera aðgengilegur gagnabanki um jafnréttisfræðslu- efni fyrir skóla. Þá verður hægt að nálgast þar upplýsingar um til- raunaverkefni á sviði jafnréttismála sem unnin eru í fimm grunnskól- um og fimm leikskólum. Verkefni úr grasrótinni Arnfríður segir að verkefnin verði unnin á þessu skólaári þannig að á næsta ári verði til fyrirmyndir að verkefnum sem aðrir skólar geti nýtt sér. „Það sem er í raun og veru svo skemmtilegt við þessi verkefni er að þau koma úr grasrótinni, úr skólunum sjálfum. Þetta eru ekki verkefni sem þeim eru rétt,“ segir Arnfríður og tekur dæmi af verk- efni sem unnið er í Vogaskóla í Reykjavík. „Þeir vinna verkefni sem snýr að jafnrétti frá landnámi til vorra daga. Þeir skoða jafnrétti kynjanna á landnámsöld. Hver var staða kvenna og hver var staða karla. Og athuga svo hvernig stað- an er núna.“ Jafnréttislest í Hafnarfirði Í Lækjarskóla í Hafnarfirði sitja sex nemendur í níunda bekk í stýrihópi jafnréttisverkefnis. „Þau hafa sett upp jafnréttislest og leggja af stað í ferðalag með henni. Það verður stoppað víða á leiðinni. Þau ætla meðal annars að rýna í kvik- myndir með tilliti til jafnréttis kynjanna og halda jafnréttisball.“ Í leikskólunum eru einnig unnin fjölbreytt verkefni. „Í Múlaborg í Reykjavík og Hörðuvöllum í Hafn- arfirði er lögð sérstök áhersla á við- horf starfsfólks og stefnt að því að fjölga karlmönnum í starfsmanna- hópnum. Í Reykjakoti í Mosfellsbæ er lögð áhersla á upplýsingaflæði til foreldra en það er svo oft sem mæðurnar eru upplýstar en feð- urnir ekki.“ Þróunarverkefnið Jafnréttis- fræðsla í leik- og grunnskólum er unnið að danskri fyrirmynd og er hugsað til eins árs. Það er sam- starfsverkefni Jafnréttisstofu, fé- lags- og tryggingamálaráðuneytis- ins og fimm sveitarfélaga. Jafnréttisfræðsla efld í skólum Fræðslan hefur setið á hakanum Jafnréttisverkefni Verkefninu er ætlað að efla jafnréttisfræðslu í grunn- og leikskólum. 24stundir/Skapti 24stundir ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 21 Listaháskóli Íslands efnir til alþjóðlegrar ráðstefnu um rannsóknir í listum dagana 3.-4. október næstkomandi. Þar munu lykilfyrirlesarar flytja erindi um mismunandi sjónarhorn sem hugmyndafræði list- rannsókna byggist á. Jafnframt verður rætt um ýmis vandamál er upp koma þegar listir ryðja sér til rúms í fræða- og vísindaheiminum. Þá munu listnemendur í doktorsnámi kynna rannsóknarverkefni sín og gefa ráðstefnugestum innsýn í framkvæmd og miðlun listrann- sókna. ej Ráðstefna um rannsóknir í listum Keilir hefur gert samning um kaup á fimm nýjum kennslu- vélum frá Diamond Aircraft Industries fyrir Flugakademíu Keilis. Vélarnar, sem fram- leiddar eru í Austurríki og Kan- ada, þykja meðal fullkomnustu og öruggustu kennsluvéla í heimi og eru meðal annars not- aðar af bandaríska flughernum til grunnþjálfunar flugmanna. Vélarnar eru allar búnar stýri- pinna og stærri vélarnar eru jafnframt búnar stafrænum stjórntækjum og mælaborði. Diamond-vélar eru knúnar um- hverfisvænum og sparneytnum díselhreyflum. Fyrstu vélarnar koma til lands- ins eftir mánuð en þær síðustu í janúar á næsta ári. Bóklegt einkaflugmannsnám hefst hjá Flugakademíu Keilis um mán- aðamótin. Flugakademían er hluti af Samgöngu- og öryggis- skóla Keilis sem Hjálmar Árna- son stýrir. einarj@24stundir.is Keilir hefur sig til flugs Flugakademía Keilis festir kaup á fimm kennsluflugvélum „Tungumál skipta máli“ er yfirskrift Evrópska tungumáladagsins sem haldinn verður þann 26. september. Meginmarkmið dagsins er að vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungu- málanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða. Markmiðið er einnig að hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfis og utan þess og stuðla að því að viðhalda fjölbreyti- leika tungumála og menningar í Evrópu. ej Evrópski tungumáladagurinn Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími 580 1800 • www.mimir.is MÍMIR símenntun 22.-28. september 2008 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími 580 1800 • www.mimir.is Hver á að þreskja hveitið, hnoða deigið og baka brauðið ef allir eru á námskeiði? Morgunfundur 24. september kl. 8.30 – 10.15. í Skeifunni 8 Hver er hagna›ur fyrirtækis af flví a› starfsmenn me› stutta formlega skólagöngu sæki sér flekkingu? Kunna fleir ekki allt sem starfi› krefst? Ver›ur námi› ekki til fless a› fleir gera auknar kröfur, sækja frekara nám e›a finni sér a›ra vinnu? Er símenntun a›eins fyrir starfsmenn me› framhaldsnám? Frummælendur: Jón Sigur›sson sérfræ›ingur, Vi›skiptadeild Háskólans í Reykjavík Pálmar Sigur›sson skrifstofu- og starfsmannastjóri Hópbíla Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsrá›gjafi hjá Mími-símenntun Andrés Magnússon starfsmannastjóri Póstsins Fyrirkomulag: Fjórar framsögur og pallbor› St‡ring pallbor›sumræ›na: A›alhei›ur Jónsdóttir verkefnastjóri viku símenntunar Skráning: haukur@mimir.is Hvar: Mímir-símenntun, Skeifunni 8, 2. hæ› fiátttaka er ókeypis og bo›i› er upp á léttan morgunver›. Húsi› opnar klukkan 8.10. A› fundinum loknum gefst gestum kostur á a› kynna sér starfsemi Mímis-símenntunar. Í viku símenntunar 2008 er áhersla á kynningu á sta›bundnu námi fyrir einstaklinga me› stutta formlega skólagöngu sem starfa hjá fyrirtækjum á almennum marka›i. Vika símenntunar er haldin a› frumkvæ›i menntamálará›uneytisins en Mímir-símenntun er einn af framkvæmdara›ilum vikunnar fyrir hönd rá›uneytisins. Mímir-símenntun leggur áherslu á a› vera brú milli starfs og náms, flannig a› allir finni tækifæri til a› efla starfsmöguleika sína og lífsgæ›i. E in n ,t v e ir o g þ r ír 4 .2 4 4

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.