24 stundir - 23.09.2008, Síða 22

24 stundir - 23.09.2008, Síða 22
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is Þann 1. ágúst tíndi Adolf Ingi upp samferðamenn sína, þá Hrafnkel Kristjánsson, Samúel Örn Erlings- son, Óskar Þór Nikulásson og Guðmund Harðarson á leið sinni til Keflavíkur. „Við flugum í gegnum París þá seinna um kvöldið og vorum svo komnir til Kína á laugardags- morgni. Ferðalagið sjálft var 28 tíma langt en vegna tímamismunar var runnin upp laugardagur í Pek- ing.“ Vertíðin hefst „Við fórum strax í að innrétta skrifstofuna okkar sem var í því sem kallast International Broad- casting Center, þar var vinnustaður okkar næstu vikurnar. Við þurftum að koma fyrir tækjum okkar og gera klárt fyrir útsendingar. Kín- verjar tóku vel á móti okkur og það kom mér skemmtilega á óvart að kynnast því hversu hjálpfúsir þeir eru. Undirbúningurinn varð allur léttari vegna þessa.“ „Ólympíuleikarnir hófust svo með miklum látum og ógleyman- legu opnunaratriði. Þeir enduðu svo auðvitað með miklum látum líka vegna góðs árangurs íslenska handboltaliðsins. Það fór hreinlega allt á hvolf, hér heima og hér úti líka vegna þessa.“ Adolf Ingi líkir ástandinu við vertíð. „Það eru engir frídagar, vinnudagurinn er langur, frá 12 til 18 tíma á dag en vegna þess hve mikið ævintýri leikarnir eru þá heldur skemmtunin og stemningin manni gangandi.“ Öskubuskusagan Adolf segir fréttateymið hafa Allt á hvolfi Vinnu- dagarnir voru langir en skemmtilegir. Adolf Ingi heillaðist af gömlum hverfum í Peking Ævintýrið í Kína Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður lagði af stað til Kína þann 1. ágúst síðastliðinn og var ekki kominn aftur til Ís- lands fyrr en sjö vikum seinna. Veran í Kína reyndist ein mest spenn- andi fréttavertíð sem Adolf minnist og reis hæst velgengni íslenska landsliðsins í handbolta. Hús í ríkislitnum Gamall maður í Hutong. Múrinn Adolf heimsótti múrinn og myndaði útsýnið. fundið verulega fyrir áhuga ann- arra fjölmiðla á Íslandi eftir sigur- inn gegn Pólverjum. „Auðvitað varð allt vitlaust,“ segir Adolf. „Gengi liðsins var orðið að svolítilli öskubuskusögu, hvernig gat lítil þjóð eins og Ísland unnið sigra á ólympíuleikunun í liðsíþrótt eins og handbolta?“ Adolf Ingi fór í viðtöl og svaraði ótal fyrirspurnum erlendra fjöl- miðlamanna um íslenska liðið. „Síðustu dagana var ég í viðtölum hjá írska útvarpinu, sænska sjón- varpinu, danska útvarpinu og fleiri fjölmiðlum, blaðamenn héðan og þaðan, þar á meðal frá bandarísk- um stórum dagblöðum, höfðu samband við okkur til að leita eftir upplýsingum um landsliðið og til þess að reyna að komast í samband við íslenska liðið og forráðamenn þess. Stemningunni er varla hægt að lýsa. Þetta var rússíbani.“ Erfiðar fjarvistir Eftir Ólympíuleikana urðu Adolf Ingi og Óskar Þór eftir í Kína enda beið þeirra önnur vinnutörn vegna Ólympíumóts fatlaðra. Þeir fengu þó 12 daga frí og konur þeirra beggja komu til að heim- sækja þá út til Kína. „Það bjargaði því sem bjargað varð af geðheilsunni að fá konuna mína til mín. Án hennar komu veit ég ekki í hvernig ástandi ég hefði orðið því mín beið önnur vinnu- törn skömmu síðar við ólympíu- leika fatlaðra sem hefði þýtt sjö vikna fjarvist frá konu minni og börnum. Meðan ég var að vinna við ólympíuleikana reyndi ég að vera eins mikið í sambandi og ég gat en vegna tímamismunarins gat það verið erfitt. Það var helst að reyna að fara snemma á fætur og ná að tala við konuna mína áður en hún fór að sofa, í gegnum Skype. Börnin gat ég hitt með því að vaka lengur og ná þeim þegar þau voru nývöknuð á morgnana.“ Gömlu Hutang hverfin Í fríinu gat Adolf loks litast um í Kína en ekkert færi gafst til þess í vinnutörninni við ólympíuleikana. „Ég fór til Forboðnu borgarinn- ar og heimsótti múrinn, fór á þessa dæmigerðu ferðamannastaði sem svo margir fara og heimsækja. Ég verð þó að segja að langhrifnastur varð ég af því að heimsækja gömlu Hutong hverfin í Peking. Þar hefur tíminn staðið kyrr og forvitnilegt að ganga um þröngar götur og sund sem er varla metri á breidd. Húsin voru öll máluð í rík- islitnum, gráu. Þá var skemmtilegt að fara á litla og skemmtilega veitingastaði. Maður fer bara inn og bendir á það sem mann langar til, bendir jafnvel á máltíðir þeirra sem sitja á næsta borði. Ég og kona mín brögðuðum á alls kyns lystisemdum. Þá bragð- aði ég á sæhesti og sporðdreka sem ég kalla reyndar ekki máltíð heldur manndómsraun.“ „Við fórum svo auðvitað á markaði ýmiskonar en Kínverjar eru duglegir við að selja eftirlík- ingar af merkjavöru sem var áhugavert að sjá. Ég keypti annars kínversk listaverk, muni til minn- ingar um veru mína þar og ým- islegt smálegt.“ a Þá bragðaði ég á sæhesti og sporð- dreka sem ég kalla reyndar ekki máltíð held- ur manndómsraun. 22 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir Harpa Einarsdóttir fatahönnuð- ur flytur til Boston á næstunni og tekur við starfi hönnuðar og teiknara í fyrirtækinu Harmonix sem er í eigu MTV games. Þar mun hún hafa yfirumsjón með hönnun á búningum tölvuleiksins Rockband. „Ég fór í fyrsta sinn til Boston nýverið þegar mér var boðið þang- að af fyrirtækinu í atvinnuviðtal,“ segir Harpa um hvort hún kunni vel við sig í borginni. „Mér leist afar vel á borgina og það er mikill kostur hversu stutt er að fara til New York.“ Harpa segist ekki enn vera búin að finna sér íbúð þar ytra. „Ég ætla að byrja á því að finna mér lítið en hentugt húsnæði nálægt vinnunni. Þegar börnin mín koma út næsta vor þá verð ég búin að finna mér góða íbúð aðeins lengra frá miðborginni í rólegra um- hverfi. Ég er aðeins búin að vera að skoða og hægt er að fá fínt ein- býlishús fyrir sömu upphæð og íbúð hér á Íslandi.“ Fyrir þá sem vilja gera hagstæð og góð kaup á húsgögnum og skemmtilegum hlutum má benda á vefsíðu Hörpu á Facebook þar sem hún ætlar að selja stóran hluta búslóðar sinnar hér á landi. dista@24stundir.is Harpa Einarsdóttir selur búslóðina á netinu Líst vel á Boston Harpa Einarsdóttir Selur búslóð sína á Facebook. Að þessu sinni er birt brot af bloggsíðu Jóns Sigurðarsonar, eig- anda og forstjóra Löðurs. Hann er á ferðalagi um Mið- og Suður-Am- eríku og sendir færslur af ferðum sínum á jonhaukur.blog.is. Ég kom inn á bar á ströndinni rétt hjá aðaltorginu og er þá spurður af nokkrum Kanadamönnum hvort ég sé búinn að kaupa miða í lottóinu. Nei, hvaða lottó? spyr ég. Nú, Chic- ken Shit lottóinu, segja þeir. Hvað er það??? Þá benda þeir mér á svona pall sem er á ströndinni fyrir framan bar- inn. Pallurinn er svona 3 x 3m á kant med neti umhverfis sem er svona 1 m á hæð. Pallurinn er allur alsettur reitum með tölum fra 0 til 99. Þeir segja mér að númerið kosti 1Belize$ sem eru 50 kr. og verðlaunin séu 100 Belize$. Ok. Ég kaupi 5 númer. Þá kemur maður med stóra körfu á staðinn og býður einni konu að taka hænu upp úr körf- unni, hún eigi síðan að sveifla hæn- unni í þrjá hringi og upp og niður þrisvar sinnum og sleppa henni svo inn i hringinn. Það númer sem hæn- an skítur á er vinningshafinn. dista@24stundir.is Ferðadagbókarbrot Jóns Sigurðarsonar Kjúklingaskítslottó „Þetta er matar- og menning- arferð þar sem hápunkturinn er vegleg þakkargjörðarmáltíð,“ segir Sólveig Baldursdóttir, rit- stjóri Gestgjafans, um helgarferð á vegum Ice- landair til Bost- on þann 28. nóvember þar sem hún hefur tekið að sér far- arstjórn. „Boston er dásamleg borg,“ bætir hún við. „Ég bjó þar í þrjú ár og lærði tungumál og bókmenntir við háskólann í Boston.“ Sólveig segir dæmigerða þakk- argjörðarmáltíð vera kalkún með vel útilátnu meðlæti. Meðlætið er oft vel útilátið og í sætara lagi, sætar kartöflur og grasker til dæmis. Hún nefnir að auki að útsölurnar í Boston byrji daginn eftir þakk- argjörðina, 28. nóvember, og séu flestar verslanir opnaðar mun fyrr en venjulega, sumar kl. 5 að morgni! „Það verður enginn svik- inn af þessari borg,“ segir Sól- veig. „Við ætlum að borða góðan mat, njóta menningar og þess að versla á góðum kjörum.“ kg Lystisemdir í Boston Nú geta ferðamenn sem stefna til Bandaríkjanna sótt um tíma- bundið dvalarleyfi rafrænt á vef bandaríska sendiráðsins. Áður þurfti að fylla út I-94 eyðublað um borð. Vanafastir þurfa ekki að hafa áhyggjur því áfram verður tekið við I-94 eyðublöðunum til 12. janúar 2009. Veitt leyfi gildir í 2 ár frá útgáfu. kg Dvalarleyfi LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Það bjargaði því sem bjarg- að varð af geðheilsunni að fá konuna mína til mín. útlönd

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.