24 stundir


24 stundir - 23.09.2008, Qupperneq 26

24 stundir - 23.09.2008, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir „Af því að lagið hans What is Love var í 52 vikur á vinsældalist- um á tíunda áratugnum,“ útskýrir Kiki-Ow sem stendur fyrir inn- flutningi danspopparans Had- daways frá eyjunni Trínídad í Kar- íbahafinu. Hann átti örstuttan en farsælan tónlistarferil eftir að hafa slegið í gegn árið 1993. Núna, fimmtán árum síðar, er hann á leið til Íslands að spila á næsta 90’s- kvöldi Curvers og Kiki-Ow á Nasa þarnæstu helgi. „Þetta lag er eins og táknmynd tíunda áratugarins og þetta er mest umbeðna lagið þegar við höldum 90’s-kvöld.“ Kiki-Ow bendir líka á að lagið sé sígilt eins og sjáist best þegar hún spilar lagið fyrir menntskælinga. „Ég spilaði á menntaskólaballi um daginn og það má ekki gleyma því að flestir krakkarnir þar voru ný- fæddir þegar lagið var vinsælt en það var samt öskrað með því. Það verður alltaf allt brjálað!“ Haddaway hefur haldið áfram að gefa út plötur fram á okkar ára- tug en aldrei náð sömu vinsæld- um. „Þetta lag var svo vinsælt að allt annað efni hjá honum féll í skuggann. Ég veit ekki alveg af hverju þetta lag sló svona rækilega í gegn, – kannski vegna þess að það fjallar um ást og er líka partíslag- ari.“ Haddaway spilar í minna en klukkustund og aðeins lög frá tí- unda áratugnum. Curver og Kiki- Ow sjá svo um nostalgíuna þess á milli. 90’s-tvíeykið flytur inn stærstu klúbbastjörnu síðasta áratugar Af hverju Haddaway? Morgunblaðið/ÞÖK Curver og Kiki-Ow Alltaf með eitthvað á pönnunni. Ef það er einhver slagara- mælistika til hér á landi þá hlýtur það að vera vinsældalisti tónlist.is, sem gefur upp mest seldu lögin þá vikuna. Nú í lok sumars hlýtur sú staðreynd að lagið Þú komst við hjartað í mér er bæði í fyrsta og þriðja sæti listans að veita því formlega nafnbótina „sumarslagari ársins 2008“. Útgáfa Hjaltalíns er í fyrsta sæti en eldri útgáfa Páls Ósk- ars er í því þriðja. Höfundurinn Toggi, réttu nafni Þorgrímur Har- aldsson, er ekkert hissa. „Ég var alveg harður á því við Palla að þetta yrði massífur slagari ef hann hleypti þessu í útvarps- spilun en hann var eitthvað treg- ur,“ segir Toggi en lagið kom fyrst út á metsöluplötu Páls Óskars í fyrra. Toggi segir eftirspurn eftir lög- um frá öðrum poppurum ekkert hafa aukist þrátt fyrir vinsældir lagsins í sumar. Hann ætlar ekki að hljóðrita sína eigin útgáfu af laginu en vinnur þess í stað, hægt og bít- andi, að fylgifiski frumraunar sinnar Puppy er kom út fyrir tveimur árum. biggi@24stundir.is Bæði í 1. og 3. sæti á tónlist.is Toggi Höfundur lagsins Þú komst við hjartað í mér, sem situr nú í 1. og 3. sæti Netlistans, sölulista tónlist.is. Aðþrengdur Afsakið að ég er til! NEI , ÞÚ ERT EKKI FYRST I NEMANDINN SEM LENDIR Í ÓHAPPI VIÐ ÖKUPRÓF. EN ÞÚ ERT FYRST I NEMANDINN SEM VERÐUR FYRIR ÞVÍ Í BÓKLEGA HLUTANUM. DÓMARI, LEYFI TIL AÐ KOMA FRAM VIÐ VITNIÐ SEM GÍSL. Bizzaró Má ég taka diskinn þinn eða ertu enn að leika þér að matnum? MYNDASÖGUR FÓLK 24@24stundir.is poppmenning Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Þriðjudagur 23. september 2008  Fimm tjá sig um Svarta engla og Dagvaktina. » Meira í Morgunblaðinu Hvernig tókst til?  Eru allir búnir undir það að ala upp börn? » Meira í Morgunblaðinu Mikilvægt starf  Eftir Hveravallavist er hann kallaður Ísbjörninn. » Meira í Morgunblaðinu Skjótti björninn  Á þrjár konur og fjöldann allan af veðhlaupahestum. » Meira í Morgunblaðinu Sjeik í Kaupþing  Eru góðir tímar í vænd- um í uppsjávarveiðinni? » Meira í Morgunblaðinu Loðnan og makríll

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.