24 stundir - 23.09.2008, Page 32

24 stundir - 23.09.2008, Page 32
24stundir ? Ég ætla ekki að þykjast skilja hvað er ígangi á fjármálamörkuðum heimsins.Hugtök eins og skuldatryggingarálag ogstýrivextir eru óskiljanleg orðskrípi ímínum eyrum og gætu alveg eins verið áeinhverju illskiljanlegu tungumáli.Eitt veit ég þó, að hingað til hefur ekkimikið farið fyrir aðgerðum til að sporna við kreppunni á Íslandi, en erlendir seðlabankar hafa tekið við sér og dæla nú milljörðum inn í hagkerfin. Ríkisstjórn Íslands virðist þó sjá, nú þegar nokkur risavaxin fyrirtæki erlendis eru farin á hliðina, að ástandið er ekkert sérstaklega gott. Aðgerðir ættu því að vera í startholunum, en það væri of seint ef að vinur minn hefði ekki hafið björg- unaraðgerðir fyrir löngu. Þegar allir hópuðust í Bónus fór vinur minn í 10-11 og borgaði helmingi meira fyrir matvöru en hann þurfti. Þegar fólk hætti að keyra bílana sína vegna síhækk- andi eldsneytiskostnaðar keyrði vinur minn helmingi meira en hann þurfti – hann byrjaði líka að rúnta og fór alltaf lengri leiðina. Eldsneytiskostnaðurinn jókst jafnt og þétt og nú eyðir hann tug- um þúsunda bensín á mánuði. Loks hóf hann að drekka óhóflegt magn af sterku áfengi á öldurhúsum – bara vegna þess að það er svo ógeðslega dýrt. Þetta gerði vinur minn í viðleitni til að dæla peningum inn í hagkerfið og bæta lausafjárstöðu íslenskra fyrirtækja. Fyrir vikið er hann í dag fátæk fitubolla með áfengisvandamál – en það er ekki tekið út með sældinni að vera písl- arvottur kreppunnar. Píslarvottur kreppunnar Atli Fannar Bjarkason skrifar um hetju. YFIR STRIKIÐ Er einhver að sporna við kreppunni? 24 LÍFIÐ „90’s“-teymið Curver og Kiki-Ow flytja inn Haddaway er sló í gegn með laginu What is Love? fyrir 15 árum. Haddaway spilar á Íslandi í október »26 Ný hljómsveit Heiðars Arnar Kristjánssonar úr Botnleðju, The Viking Giant Show, var að klára nýja plötu. Söngvari Botnleðju fer út í kántrípopp »30 Gamanmyndin Pineapple Express fær þrjár stjörnur frá gagnrýnanda blaðsins er hafði gam- an af myndinni. Fyndnir þriggja stjarna hasshausar »29 ● Hjátrúarverk „Jú það er rétt, ég er að leika í skoska leikritinu eftir William Shake- spere,“ segir Edda Björg Eyjólfs- dóttir leikkona, en sú hjátrú ríkir í leikarastéttinni, að ekki mega nefna nafnið Macbeth á nafn. „Það má heldur ekki blístra í leikhúsi, eða óska leikurum góðs gengis,“ ítrekar Edda sem lofar þó uppfærsluna, sem frumsýnd verður fimmta október. „Þetta er ný leikgerð, sem miðar meira af gjörðum en hinum talaða texta, sem við berum þó auðvitað mikla virðingu fyrir.“ ● Vilja kjósa „Það er ekkert bindandi þó svo allir íbúar skrifi undir áskorun til bæjarstjórnar. Hún getur hunds- að það, þó það sé auðvitað ekki góð pólitík,“ segir Inga Sigrún Atla- dóttir oddviti minnihlutans í sveitarstjórn Voga um ákvörðun meirihlutans um að efna ekki til íbúakosningar um það hvort raf- línur vegna álvers í Helguvík verði lagðar ofan- eða neðanjarðar í gegnum bæjarlandið. 354 af 1.227 íbúum Voga hafa skrifað undir áskorun til bæjarstjórnar um að halda íbúakosningar um málið. ● Greip gæsina „Við vorum á veiðum og skut- um tvær gæsir, önnur datt niður dauð en hin flögr- aði áfram og út á veg. Þar stoppaði jeppi, bílstjórinn vatt sér út, sneri hana úr háls- liðnum og henti henni aftur í skott,“ segir Bjarki Borgþórsson veiðimaður. Hann og félagi hans hlupu á eftir veiðiþjófnum, hróp- uðu og kölluðu en hann þóttist ekki sjá þá. Ástæðan var þó ekki felugallar félaganna því þeir voru bara í venjulegum flíspeysum. Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.