Eintak

Tölublað

Eintak - 07.04.1994, Blaðsíða 22

Eintak - 07.04.1994, Blaðsíða 22
Húðflúr er búið að vera svo lengi í tísku að þeir sem byrjuðu fyrstir eru orðnir vel skreyttir. Og því skreyttari æm menn verða þess Ijarlægara verður húðflúrið þeirra einhverri tísku. Það verður trúarbrögð, gæludýr, list. Rnnur Jóhannsson handboltakappi skartar mörgum húðflúrum. Hann sest hér í stól fræðarans og greinir frá því helsta æm hafa ber í huga áður og eftir að fólk sest í stólinn hjá húðflúrmeistara. Tiuraos alls ekki tilbúinn til að fá þér húðflúr. Við lifúm í einnota þjóðfélagi og húflúr eru var- anleg. Það er það sem gerir þau svo ógnvekjandi og líka svo kraftmikil. Að gera óaft- urkraefa ákvörðun er gott fyrir sálina. Ef þú setur hug þinn og kraft í val þitt á húð- flúri, getur það orðið meira en áfast skart. Vel valin húðflúr veita blessun og v e r n d . Spurðu sjálfan þ i g : Við í sérhannað húðflúr, eitthvað sem hannað hefur verið bara fyrir þig, eða þú gætir fundið eitthvað tísku- form sem hangir uppi á vegg í stúd- íói húðflúrmeistarans. Tískuform- unum er oft breytt örlítið fyrir hvern og einn. Þegar kemur að því að fá sér húðflúr er ímyndunarafl þitt eina hindrunin. AÐVÖRUNARORÐ: Myndin þín getur verið túlkuð á hvaða hátt sem er. Almennt líta stór húðflúr betur út á skinni en lítil og flókin og þau hafa meiri áhrif en þau minni. Bandaríski húðflúrmeistarinn Walt Dailey segir stefnu sína vera; því stærra því betra. Hann bendir á að falleg en ógurleg mynd af bjarnar- höfði líti út eins og andlit á reiðum hamstri þegar hún hefur verið minnkuð. Það eru til mörg afbrigði af húð- flúrum og hér minnist ég á algeng- ustu stílana. Svartur og grár stíll (Black and grey work) Er eins og nafnið segir til um, ein- skorðað við svartan oggráan lit. Stíllinn á uppruna sinn í banda- rískum fangelsum þarsem erfitt reyndist að ná í aðra liti. Eða: Altt sem þig langaði að vita um húðflúr en þorðir ekki að spyrja um. Margir af húðflúrmeisturum dagsins í dag hafa fengið hefð- bundna iistþjálfun og hafa myndað hagsmunasamtök húðflúrmeistara sem skiptast á hugmyndum, reynslu og ýmsum tæknilegum hliðum listarinnar. En inni á milli ieynast svartir sauðir, það er að segja krotararnir. Krotarinn er ófaglærður húðflúr- meistari, sem hefur fyrir einhverjar furðulegar hvatir ákveðið að hafi fæðst með þessa list- hæfileika og er tilbú- inn að deila þessum hæfileikum með um- heiminum. Krotarinn vinnur ekki á viður- kenndum stofum og hefur lítið fyrir því að dauðhreinsa tækjabún- að sinn eða skipta um nálar milli viðskiptavina. Þeir hafa oftar en ekki enga tilsögn fengið í húð- flúrun. Krotarinn er upp- spretta ýmissa sjúkdóma og getur skaðað fólk fyrir lífstíð. VARIST KROTARANN! En einhvers staðar út úr sortanum skína ljós viður- kenndra húðflúrmeistara sem hafa náð að skrapa sam- an smá aur til að opna sína eigin stofu, þar sem þeir vinna við aðstæður sem við- urkenndar eru af heil brigðisyfirvöld- um. Samt er það ekki nóg, húðflúr- in eru stundum ekki nógu vel gerð, stungurnar misjafnar og litavalið slæmt. Þú ert gerður ábyrgur fyrir því að finna góðan og ábyggilegan húðflúrmeistara sem þú getur treyst til að flúra á þig hið full- komna verk. Þú ert einnig gerður ábyrgur fyrir því að velja þér mynd, tákn og svo framvegis, sem mun veita þér gleði og þú getur verið stoltur af það sem eftir er ævi þinn- ar. Þú gætir þurft að leita vel og lengi og vera tilbúinn að eyða þó nokkrum peningum í verkið, vegna þess að góð húðflúr eru ekki ódýr og ódýr húðflúr eru ekki góð. Að fá sér húðflúr er stór ákvörðun, svo taktu þér smátíma í að kynna þér þætti þess áður en stóra stundin rennur upp, ekki á eftir. Að finna sér húðflúr Að fá sér húðflúr getur verið stærsta ákvörðun sem sum okkar taka. Og ef þú ert að hugsa: „En ég get alltaf látið taka það af‘ þá ert þú hvað er ég að skuldbinda mig, hvað gefur mér innblástur, hvað gefur mér styrk? Að hugsa um svör við þessum spurning- um getur hjálpað þér að ákveða ímyndina sem per- sónubundið húðflúr gefur þér. Þig gæti langað Hefðbundinn stíll (Traditional) Þessi stíll einkennist afbreiðum svörtum útlínum, sterkutn skugg- utn og björtum litum. Þessi aðferð varð til þegar það þurfti aðfull- tuegja þörfutn húðflúrmeistarans á annatímum. Fljótleg og einföld að- ferð. Fínlínustíll (Fine line) Hárfínar útlínur, oft tnjög nákvœm- ar. Svarta oggráa stílnum er oftast beitt íþessari aðferð, auk margra annarra litaafbrigða. Stungurnar eru grutmar og þarf mikla færni til að útkoman verði fínleg og nákvœm mynd. Hœtta er á því að myndin hverfl smátt og smátt. Ættbálkatákn (Tribal) Breiðar ogsvartar línur, alls kyns fortn og tákn. Engin tvö húðflúr eru eins og er oft tilfinning húðflúr- meistarans sem rœður þar tniklu. Þessi stíllgefur kraftmikið útlit og stenst tímans tönn auð- veldlega. Raunsæisstíll (Realistic) Er, eins og nafnið ber með sér, mjög raunverulegt myndform oftast sótt í landslag og hið daglega líf. Sérsmíðað (Custom) Upprunategt verk, aðeins hannað fyrirþig. Austurlenskur stíll (Oriental) Þessi stíll er meira en bara eitt og eitt mynd. Hér er um stórverk að rceða. Myndefnið er sótt aftur i fornar austurlenskar þjóðsögur og trúar- brögð. Hér er meira hugsað utn túlkun og andlega þýðingu myndar- innar, frekar en myndina sjálfa. Reyndu að vera svolítið raunsær þegar þú velur þér húðflúr. Að fá sér nafn kærustunnar/kærastans er svo til örugg leið til að þurfa að láta fela eða fjarlægja flúrið seinna. Eins erfitt og það er að hugsa sér að hljómsveitin sem þú hlustaðir á átj- án ára verði ekki í eins miklu uppá- haldi hjá þér um fertugt, þá eru mjög miklar líkur á því. Öll þess konar áhrif hverfa hraðar en húð- flúrin. Hvað er húðflúrun? Húðflúrun fer þannig fram að lituðum nálum er stungið í gegnum ysta lag húðarinnar (Epidermis) og niður að yfirborði þelsins (Derm- is). Liturinn bindur sig við næst- efsta lag húðarinnar (Dermis) sem endurnýjar sig ekki. Vel gerð húð- flúr eru stungin um það bil 2-3 millimetra í húðina. Að stinga húðflúr er meira en bara að teikna fallega mynd. Þetta er nokkurs konar aðgerð því að fag- lærður og viðurkenndur húðflúr- meistari er meira en bara listamað- ur. Vandinn Iiggur í því að stinga rétt í skinnið. Ef stungurnar eru of djúpar blandast liturinn líkamsvökvum sem dreifa litnum og flúrið getur blásið upp. Ef stungið er of grunnt eyðist blekið upp smám saman þangað til myndin hverfur eða verður að skugga. Til er orðatiltæki sem segir; „Þú færð það húðflúr sem þú átt skilið". Þú hefur allan rétt á því að fá svör við öllum þeim spurningum sem þú hefur fram að færa. Og þér á ekki að finnast þú vera undir ein- hverri pressu með mynd sem þú ert ekki ánægður með. Hins vegar verðum við að muna að húðflúr- meistarinn er að þessu viðskipt- anna vegna og getur ekki eytt tíma í að ræða hvað sé fyrir þig og hvað ekki. Flestir húðflúrmeistarar verða mjög ánægðir ef kúnninn kemur ákveðinn og veit hvað hann vill. Svo þegar þú ert búinn að velja mynd og meistara, situr í stólnum, þá skaltu varast að vera með óþarfa athugasemdir, því þær fara einfald- lega í skapið á honum. Lanaar þig að halda húðflúrmu? Þegar þú ert orðinn húðflúraður þá er það í þinni ábyrgð hvemig þú ætlar að láta til takast. Hugsaðu um nýja flúrið þitt eins og gæludýr. Þú þarft að fæða það (með græðandi kremum), þú þarft að halda því hreinu (með volgu vatni og sápu) og fara út að ganga nteð það (leyfa því að anda). Og ólíkt gæludýrun- um þá mátt þú ekki klóra því, alveg sama hvað það biður fallega. í sannleika sagt er það sem skrifað er hér að ofan léleg tilraun til að gera eftirmeðferðina skemmtilegri en hún er. Stuttu effir að nýja flúrið er kom- ið á, tekur þú eftir því að svæðið sem flúrið er á verður aumt og við- kvæmt, eins og þú hafir verið of lengi í sól. Þetta er vegna þess að líkaminn framleiðir hvata eftir örv- andi áreiti sem heita endorfín og streyma þeir um líkamann. Jæja, svo ferðu heim með nýja húðflúrið og þá hvað? Akkúrat ekki neitt. Leyföu umbúðunum að vera á, ná- kvæmlega þann tíma sem húðflúr- meistarinn mælir með. Það þýðir ekkert að kíkja, þú hefur allt þitt líf til þess. Eftir um það bil 4-10 tíma frá flúrun getur þú tekið umbúð- irnar af, ef þú ért seint á ferðinni skaltu sofna með þær til að vernda húðflúrið og rúmfötin. Þegar tími er kominn til að taka umbúðirnar af, gerðu það þá varlega. Ef þær festast skaltu nota volgt vatn til að hjálpa þér. Notaðu hendurnar, ekki klút, og hreinsaðu húðflúrið með mildri sápu, skolaðu létt og þurrk- aðu síðan varlega, ekki strjúka og berðu létta urnferð á af græðandi kremi. Þú vilt ekki drekkja húðflúr- inu í kremi, það á aðeins að halda því röku. Berðu á það eftir þörfum, þegar það er orðið þurrt og stammt. Þvoðu það á hverju kvöldi. Eftir fyrstu vikuna, skiptu þá úr græðandi kremi yfir í gott raka- krem og láttu lofta um húðflúrið eins mikið og þú getur, til að flýta 22 FIMMTUDAGUR 7. APRfL 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.